Breiðablik - 01.08.1908, Page 16
48
BREIÐABLIK
En þá sá sankti Pétur, að móöir hans
tók að slíta sig af hinum fordæmdu, sem
héngfu í henni. Hún tók um hendur
þeirra og losaði tökin, svo hver á fætur
öðrum steyptist aftur niður í vonda slaö-
inn.
Sankti Pétur heyrði eigfin eyrum,hvern-
ig- þeir báðu hana ogf grátbændu, en
hún gat ekki liðið, að neinn annar yrði
hólpinn en hún sjálf. Hún losaðist við fleiri
og fleiri og steypti þeim niður í afgrunn-
inn. Við hvert fall fyltist geimurinn
kveinstöfum og formælingum.
Þá kallaði sankti Pétur til móður sinn-
ar, að hún skyldi auðsýna miskunnsemi;
en hún vildi ekki með nokkuru móti heyra.
Hún hélt fram uppteknum hætti.
Og sankti Pétur sá, að engillinn flaug
hægar og hægar, eftir því sem byrðin
léttist. Síðan skulfu fætur hans undir
honum og hann féll á kné.
Loks var að eins einn einasti eftir,
sem hélt sér í móður sankti Péturs.
Hann hefði vafið örmum um háls henni
og nauðaði og grátbændi í eyra henni,
að hún vildi vera svo væn að lofa sér að
fylgjast með inn í blessaða Paradís.
Þau voru nú svo langt komin, að
sankti Pétur var farinn að breið'a hendur
út, til að taka á móti móður sinni. Hon-
um fanst engillinn ekki þurfa að hreyfa
vængi nema svo sem tvisvar, til að kom-
ast upp á fjallsbrúnina.
En þá hætti engillinn snögglega að
hreyfa vængina, og auglit hans. varð
myrkt eins og nóttin.
Því nú seildist gamla konan með hönd-
um sínum aftur fyrir sig og greip um
hendur þess, sem hélt um háls henni ;
hún reif og sleit, þangað til henni tókst
að losa tökin, svo nú var hún orðin laus
við hinn síðasta.
í sama vetfangi féll engillinn marga
faðma niður, eins og hefði hann eigi mátt
til að hreyfa vængi.
Hann leit til hinnar gömlu konu sárum
raunasvip. Tökin um mitti hennar losn-
uðu sjálfkrafa og hann lét hanafalla, eins
og væri hún honum byrði of þung, nú er
hún var ein orðin.
Síðan hófst hann með einni vængja-
sveiflu upp í Paradís.
En sankti Pétur lá lengi á sama stað
og hágrét og drottinn sat grafkyr við
hlið hans.
„Sankti Pétur“, sagði drottinn að lok-
um, „aldrei hefði eg haldið þú myndir
gráta svo, þegar þú værir kominn í Para-
dís“.
Þá lyfti sá gamli drottins þjónn höfði
og svaraði: ,,Hvers konar Paradís er
þetta ? Eg heyri angistaróp ástvina
minna og sé eymd meðbræðra minna !“
En auglit drottins varð dapurt af
dýpstu hugarraun. ,,Hvað myndi eg
fremur vilja en veita yður öllum Paradís,
fulla ljóss og hamingju“, sagði hann.
,,Og skilur þú ekki, að það var þess
vegna, sem eg steig niður til mannanna
og kendi þeim að elska náungann eins og
sjálfa sig. Því það skalt þú vita, sankti
Pétur, að eins lengi og kærleiksleysið er
sterkast í fari þeirra, er griðastaður eng-
inn á himni eða jörðu, þar sem sársauki
og kvöl nær eigi til þeirra“.
BREIDABLIK
Mánaðarrit til stuðnings íslenzkri menning.
Fridrik J. Bergmann
ritstjóri.
Heimili: 259 Spence St., Winnipeg, Canada.
Telephone 6345.
Utgefendur:
Breidablik Publishing Co.,
M. Markússon, ráðsmaður.
O 5 Mclntyre Block, - Winnipeg, Canada.
Verð : Hver árg. 1 doll., á íslandi 4 kr.
Hvert eintak 10 cts.
Borgist fyrirfram.
Prentsmidja Ólafs S. Thorgeirssonar
678 Sherbrooke St., Winnipeg.