Breiðablik - 01.11.1908, Blaðsíða 7

Breiðablik - 01.11.1908, Blaðsíða 7
BREIÐABLIK 87 menningfarmótiS virðist því að standa í nánu sambandi viö guðstrú og guðs- hugmynd. Maðurinn er nú eitt sinn svo úr garði ger, að trúarhugmyndirnar rista dýpst í sálarlífi hans. Frakkneskur rithöfundur, Gustav Le Bon, hefir nýlega sagt: Þær bylt- ingar mannkynssögunnar, sem mest er um vert, og hrinda nýjum menningaröld- um af stað, koma fvrst fram í hugmynd- um, skilningi og trúarskoðunum mann- anna. Minnisstæðustu atburðir mann- kynssögunnar eru áhrif ósýnilegra bylt- inga í hugarfylgsnum mannanna. Guðshugmyndin kristilega hefir orðið undirrót kristinnar siðmenningar og fram- fara. Við það er kannastaf lang-flestum hugsandi mönnum, hverjar trúarskoðanir sem þeir annars aðhyllast. Sé einhverju öðru haldið fram, virðist það fá heldur lítið bergmál og ekki vera mikill gaumur gefinn. En svo framarlega að trúarbrögðin sé í raun og veru sannur grundvöllur allrar siðmenningar, ætti menn eigi að láta þau litlu varða og liggja í þagnargildi. Ekk- ert umtalsefni ætti því að vera hngljúfara. Þegar þjóð vor, sem nú befirfengið nýjan og sterkan áhuga í menningarbaráttu sinni, lætur sér skiljast þetta, verður bergmálið meira í huga hennar, þegar verið er að leitast við að ræða trúmál og setja þau í samband við hugsanastraum- ana, sem nú eru sterkastir með þjóð- unum. Sérhver áhugamaður í siðmenningar- baráltu þjóðar vorrar ætti um leið að vera áhugamaður í öllum trúræknismál- um. Hinar tjörugu og heitu trúmála- umræður heimsins ætti að fá hátt og hvelt bergmál í sálu hans. Hann ætti að skoða þær sem eitt sterkasta siðmenning- araflið í lífi þjóðarinnar, — nýjan botn- vörpung, er fært gæti óumræðilega auð- legð að landi. _S'WLAr_S'W&''-i NÝJA GUDFRÆDIN. ftjNNAÐ skrímslið, sem nú er L uppi í kristninni, og ógnar j með að leggja kristnar bygðir í eyði, nefnist nýja guðfræð- 7 in. Engin orð, sem til eru á s vorri tungu, eru of sterk til að lýsa því afskaplega illhveli. Þeir, sem henni fylgja (sbr. Sam. okt. 1908), hljóta að vera lang-mestir aula- bárðar allra þeirra, sem uppi eru í heim- inum, eða uppi hafa verið, Þeir hafa hvorki ráð né rænu, vita ekkert hvert þeir eru að fara, eru , ,stefnulausir“, ana út í bláinn, trítla á eftir einum í dag og öðrum á morgun. En það er nú minst. Þeir hljóta að vera varmenni líka. Með falskenningum sínum draga þeir fólk á tálar og leiða út í „hreinan og beinan heiðindóm“. Nýja guðfr. ,,geng- ur í lið með óvinum kristninnar“. Hún ,,spillir kennimönnunum“, „erófyrirleitin og gjörir menn óvandaða með framkomu sinni“. Hún „spillir prédikaninni“, glamrar um framfarir og vísindi, ,,vill ekki styggja neitt af börnum sínum“ með því að tala um synd, ,,villir al- menningi sjónir“, ,,beinir hugum rnanna að bókstafnum en frá andanum (!!)“> vinnur að því af öllum mætti að gróður- setja efann í sálum manna og halda hon- um þar við“, — ,,dregur athyglina frá Kristi“ — „drepur áhugann11 hjá unguni prestum, tæmir prestaskólana, er,,óvin- ur hinna ólánssömu“, ,,óvinur kristni- boðsins meðal heiðingja“, er ,,í eðli sínu hrein og bein vantrú“. ,,Hún byrja viðskifti sín með fleðulátum og fagur- gala“ og „endar með því að fl á mann lifandi. ,,Hún er andlegur ræningi, sem rænir mann öllu og þar með lífinu sjálfu“. Er eigi lýsingin fögur? Þetta er nú ljósið fagra, er ,,allir, sem standa uppi vor megin, eða réttara sagt sannleikans megin (!) í baráttunni, ætti að kosta kapps um að varpa yfir ágrein- ingsmálið, náungum sínum til andlegrar

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.