Breiðablik - 01.11.1908, Side 8
88
BREIÐABLIK
aðstoðar og leiðbeining'ar, sem í þeim
efnum vaða í villu og svíma“ (Sam.
225—6).
Herra minn trúr !
Og þó er hér átt við sannkristna menn,
meginþorrann af yngri kynslóð þeirra,
sem nú fylgja erindi krístindómsins bæði
í ræðu og riti, — menn, sem í kristilegri
lífsbreytni standa þeim oftast langt um
framar, er slíka dóma feila, — menn, sem
verja öllu lífi sínu og hæfileikum til að
draga hugi fráhverfra en mentaðra manna
aftur að fagnaðarerindi Krists.
Sé þessi lýsing sönn, er lítil von urn
kristnina í heiminum. Þýzkaland er alt á
valdi nýju guðfræðinnar. Seytjándu
aldar rétt-trúnaðar guðfræðin má heita
þar alveg útdauð. Norðurlönd sömu-
leiðis. Allir háskólarnir þar fylgja nýrri
stefnunni. í Noregi, þar sem rétt-trún-
aðarstefnan gamla var svo undur-rótgró-
in,er nú ekki einn einasti guðfræðikenn-
ari við háskóla þjóðarinnar, sem fylgir
gömlu stefnunni og eru þó allir heit-
trúaðir fyrirmyndarmenn.
Á Englandi eins. Bækur íhaldssöm-
ustu mannanna í kennarastöðum og bisk-
upanna eru góður vottur. Þeir rita oft á
móti ýmsurn skoðunum nýjustu guðfræð-
inga, eins og búast er við. En guðfræð-
in þeirra sjálfra, íhaldssömustu guðfræð-
inganna þar, myndi álitin ný guðfræði,
lökustu tegundar,væri hún hingað komin
og um hana dæmt frá vestur-íslenzku
rétt-trúnaðarsjónarmiði. Þó er England,
ættjörð Campbell''s og dr. f '/!í')'Ht’’.s',líklega
íhaldssamasta landið í þessum efnum.
Bandaríkin og Kanada fylgja nú öllu
frekar þýzkri guðfræði en brezkri. Bæk-
ur þær, sem út koma nú í guðfræði hin
síðari ár, bera þess ljósastan vott, að
gamla rétt-trúnaðarstefnan á þar ,,for-
mælendur fá“ með guðfræðikennurum.
Og í öllum helztu kirkjum landsins hafa
til margra ára verið fiutt-ar guðfræðikenn-
ingar, sem kallaðar myndi hryllileg ný
guðfræði frá sjónarmiði ísl. rétt-trúnað-
armanna.
Og þetta fráfall alt ætti að vera aula-
hætti og varmensku að kenna ! Trúir
nokkur því? Eða ér það að eins sagt til
að æsa upp hugi auðtrúa alþýðu gegn i
því, sem henni er sýnd að eins skrípa-
mynd af, og látin halda,að sé dýrið mikla,
sem talað er um í opinberunarbókinni ?
Síra Jón Helgason, forstöðumaður
prestaskólans í Reykjavík, dæmir um
stefnu nýju guðfræðinganna nokkuð á
annan veg. Hann segir: ,,Ranglátari
og ósannari dóm er ekki hægt að kveða
upp um þá en þann, að þeir vilji sæ ra
kristna trú í hjartastað. Guðfræð-
ingar hinnar nýju stefnn vilja umfram alt
vinna að því, að tímans börn geti tileink-
að sér fagnaðarboðskap Jesú Krists, svo
að hatin verði líf og kraftur í lífi þeirra,
eins og hann hefir verið í lífi undanfar-
inna kynslóða. Því að þeir finna sárar
til þess en tnargur rétt-trúaður, sem nú
hygst að vinna guði þakklátt verk með
því að gjöra þá og starf þeirra tortryggi- 1
legt með staðlausum getsökum og
sleggjudómum, hvílíkt ntein það er fyrir
tímans börn að fara á mis við blessunar-
áhrif kristnu trúarinnar. Þeir leitast því
við að skera burtu ýmislegt það af um-
búðum kristindómsins, sem nú fælir tím-
ans börn frá kirkjunni og kristindómin-
um; þeir reyna að íklæða hin gömlu opin-
berunarsannindi nýjum búningi, sem hin
núlifandi kynslóð getur felt sig við og
rökstyðja þau og útlista á þann hátt, er
bezt fær samþýðst hugsunarhætti nútírn-
ans; þeir reyna að tala máli kristindóms-
ins á tungu, sent vorir tímar skilja og
nota þær röksemdir einar og ályktanir,
sem vorir tímar taka gildar. “
Hver dómurinn skyldi sanni nær? Hver
skyldi á meiri þekkingu bygður? Hver ,
skyldi hafa lesið fieiri bækur eftir nýja
guðfræðinga, menn eins og síra Jón
Helgason, kennararnir við prestaskólann
á íslandi, —eða þá dómararnir hér fyrir
vestan ? Hver dómurinn finst mönnum
nú líklegri? Eða kristilegri?
<