Breiðablik - 01.11.1908, Qupperneq 9
BREIÐABLIK
89
VID PRESTASKÓLANN
í Reykjavík hafa breyting-ar heilmiklar orðið,
vegna biskupsskiftanna. Síra Jón Helgason er
orðinn forstöðumaður hans í stað síra Þórhalls.
En Haraldur Níelsson, guðfræðikandídat, settur
í kennaraembætti það, sem síra Jón hefir haft á
hendi. Prestaskólinn verður því framvegis í
góðra manna höndum. Báðir eru þeir, lektorinn
nýi og dócentinn, miklir áhugamenn og heitir
trúmenn, lærðir vel og góðum gáfum gæddir.
Mvndi þeir álitnir hverjum prestaskóla prýði og
kirkjunni vænlegir til langrar starfsemi og bless-
unarríkrar hvar í heimi sem væri, báðir menn á
bezta aldri. Vonum vér að þeim takist að hrinda
nýrri trúaröldu af stað með þjóð vorri og hlúa að
trúrækni hennar á allar lundir.
SKIPIN MÍN.
Ef skip mín öll um öldu-geim
í einum flota sigldu heim,
ó, mikil undur! eg held þá,
að yrði höfnin næsta smá,
ef skip mín öll um öldu-geim
í einum flota sigldu heim.
Ef hálfan flotann heimti’ eg tninn
um haf tneð dýrstan varning sinn,
svo mikinn auð eg «ætti þá,
að öfund vekti kótigum hjá,
ef hálfan flotatin heimti’ eg minn
um haf með dýrstan varning sinn.
Ef að eins kæmi heil í höfn
húti hjartans ,,Þrá“ mín yfir drötn
eg aldrei hirti’ um ægis-dyn,
því, ef í sæinn færu hin,
eg nyti lífsins satnt við seim,
ef sigldi ,,Þráin” til mín heitn.
Ef sökkva skyldi hún í haf
en hin með tölu komast af
með ofur-fetmi auðs og seims
og allri vegsemd þessa heims,
ó, vei ! Hve artnur yrði’ eg þá
ef ein í hafi týndist ,,Þrá“
Ó, skín í heiði hitnins sól
á hafi mínum skipa-stól !
Ó líðið vindar létt og hægt,
að leiðið megi verða þægt ;
en ef í hafi ólga hefst
og Ægir kongur fórnar krefst,
þá skip mín öll um öldu-geim
hanneigi,—bara’ ef ,,Þrá“ komst heim.
Jón Runólfsson.