Breiðablik - 01.11.1908, Qupperneq 11

Breiðablik - 01.11.1908, Qupperneq 11
BREIÐABLIK 91 Á Hofmannaflöt. v~= Einar Hjörleifsson: Smælingjar. Fímm sögur. Winnipeg 1908. Kostnaðarmað- ur Olafur S. Thorgeirsson. 130 bls. Verð $ 85C. Eins og: getið er í síðasta blaði,er komin út ný bók hér fyrir vestan á kostnað Ólafs S. Thor- geirssonar eftir Einar Hjörleifsson og; nefnist Smælingjar. Bókin er 130 bls. á stærð og- í henni fimm sög’ur, sú síðasta lang-lengst. Fyrsta sagan er æfintýr örstutt og hefir áður verið prentað í Eimreiðinni: Góð boð. Þó stutt sé, tel eg æfintýr þetta eitt með því allra-bezta, sem eftir höfundinn liggur. Það er um valdafýkn mannanna og mun skynbærum lesendum finnast vel frá því gengið. Það er eins og höggið í stein. Næsta sagan nefnist Fyrirgefning. Það eru nugleiðingar dálítillar neðursetu-telpu út af dauða húsmóður hennar, sem hefir verið henni skelfing vond. Barnið heldur fyrst, að ómögulegt sé annað en húsmóðir hennar hafi farið illa. Hún hafi verið svo frámunalega slæm. Öll þau atvik koma upp í huga litlu stúlkunnar, þegar hús- móðir hennar hatði beitt. hana óvenjulegri harð- neskju. Kveldinu áður en hún dó, hafði hún hót- að að flengja hana að morgni, miklu fastar og óþyrmilegar en nokkuru sinni áður. En það varð ekkert af því, um morguniun var hún dáin, hatði orðið bráðkvödd um nóttina. Brátt kemur fram bylting í huga Siggu litlu- Þegar hún fer að hugsa um vonda staðinn, hvað hann sé hryllilegur og óttalegt þar að vera, fer henni að finnast, að svo vond hafi þó húsmóðir hennar ekki verið, að hún ætti að fara þangað. Siggu kemur þá fyrst til hugar, að gefa henni brúðuna sína, hún kunni þá betur að geta sofnað í vonda staðnum. En er til kemur, fær hún sig ekki til að fara svo illa með brúðuna. Þá fer hún að biðja frelsarann að afstýra þessu, láta ekki húsmóður sína fara í vonda staðinn. En ekki er hún alveg viss um, að þetta sé mögulegt. Þá kemur barninu ráð í hug : Að leggja Passíu- sálmana ofan á líkið, þá sé meiri líkindi til, að hægt verði að frelsa húsmóður hennar. Hún ter á fætur um hánótt, þegar fólk er í fasta svefni, seilist upp á hillu eítir bókinni og leggur hana ofan á krosslagðar hendurnar, sem fastast höfðu barið hana. Svo sofnar hún vært með brúðuna í faðminum og fyrirgefning í huga. Sagan er svo hnittirega sögð, að eigi er hægt að lesa, nema veltast um af hlátri. Og þó er hún þrungin alvöru dýpsta spurnaratriðis manns- andans. Þá er stutt saga : Þurkur. Búðarmaður og læknir sitja í makindum og eru að tala um til- finningar manna í dauðanum og hefir læknirinn þar mikinn fróðleik á hraðbergi. Þá kemur fá- tæklings bóndi þar inn úr nágrenninu, og fer að tala um skuldaskifti sín við lækninn. En lækn- irinn kemst að því, að maðurinn er fárveikur og talar óráð, — segir honum að fara óðar í rúmið. En hver á þá að sjá um þurkinn á töðunni ? Ekki getur konan það og ekki krakkarnir. Loks er hann borinn út á búðarloft og lagður þar í sæng. Fám dögum síðar var hann látinn. Þá hetði hann getað sagt um, nvort síðustu kenning- ar um tilfinningar mantia í dauðanum sé réttar. En hver sér nú um þurkinn á töðunni? Skilnaður heitir fjórða sagan. Hún er um þann óumræðilega sársauka, sem vaknar í sálu aldurhniginnar móður út af því, að eftirlætis- sonur hennar ætlar til Ameríku. Sagan er sálar- málverk í fyrstu röð. Vitlausa Gunna er síðasta sagan og lang- lengsta. Hún er af tveimur vinnukonum. Önnur er gædd mörgum mannkostum, en dregin á tálar af manni, sem hún trúlofast. Hin hrasar ekkert, er réttlát og hrein í augum heimsins, en eltir hina með hrakyrðum og særingum í sorg hennar eftir vonbrigðin og missi barnsins af öfund út af því, að þessum karlmanni leizt betur á Gunnu. Loks gengur það svo langt, að Gunna missir vald yfir sér og tekur hina og lúber hana, svo hún liggur eftir í meiðslum. Sýslumaður fær húsmóður þeirra, sem er valkvendi, til að sætta þær. Hún kemst svo langt með Gunnu, að hún fer og biður fyrirgefningar, sem hin hefir lofað að veita. ,,Eg fyrirgef þér“,segir Gudda. ,,Enþað þyk- ir mér vænt um, að eg veit að guð fyrirgefur þér ekki“. Þessu getur Gunna aldrei gleymt. Það stendureins og knífstunga gegn um sálu hennar, gjörir hana harða og óþjála, ólíka öllum öðrumí

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.