Breiðablik - 01.02.1912, Blaðsíða 11

Breiðablik - 01.02.1912, Blaðsíða 11
BREIÐABLIK 139 HRINGUR FISKIMANNSINS. Eftir SELMU LAGERLÖF. (Framhald) Cecco hló, er hann sá fiskimennina, hálfbog'na yfir árum, vinna eins og væri þeir aS flýja rauðan dauðann. Sáu þeir ekki, að þetta var að eins dálítið vindkast? Þeir hefði mátt hinkra rólegir við og láta Feneyja-konurnar kaupa allan smokkfiskinn þeirra og krabbann. Ekki skyldi hann draga bát sinn í naust, þó stormurinn væri nú orðinn svo ákafur að hver vanalegur maður myndi hafa tek- ið hann til greina. Öldurnar lyftu þvotta- brúnum upp og urpu á land upp, en þvottakonurnarflýðuæpandiheim. Herra- menn, er gengu fram og aftur mtð barða- stóra hatta, urðu af með þá ofan í síkin, og það var götustrákunum mikið fagnað- arstarf að veiða þá upp aftur. Seglum var svift frá möstrum,er sigldu svo loftið, smá lækkandi, börnum blés um koll og þvotturinn sem hékk á stögum í þröngu hverfunum, • flaug í loft upp og féll til jarðar langar leiðir brottu, allur rifinn og táinn. Cecco hló að storminum, sem etin lék sér með alls konar léttings vöru. Storm- ur, sem hræddi fugla og gerði strákapör í grendinni! Nú vildi hann þó draga bát- inn inn undir brúarboga, því þetta var þó gola, sem ekki var að vita, upp á hvaða ósóma kynni að taka. Undir kveld fór Cecco að finnast að gaman hefði verið að vera úti á hafi. Prýðilega myndi hafa gertgið þar úti und- an slíkum blæstri. En á landi var ömur- legra. Hér brakaði í reykháfum, þök tók í loft upp af naustum, risu uppáenda og skelti svo niður. Þaksteinum rigndi niður í síkin. Vindurinn skelti aftur hurð um og gluggahlerum,æddi inn undir opn- ar hallarsvalir og braut þar niður útskorna skrautið. Cecco var enn hinn öruggasti, samt fór hann ekki heim að hátta. Hann gat eigi farið heim með bátinn og þá var betra að hinkra við og gæta hans. En er einhver gekk fram hjá honum og sagði, að þetta væri voða-veður, vildi hann ekki kannast við það. Hann hafði verið úti í meira ó- veðri í æsku. ,,Stormur“, sagði hann við sjálfan sig, ,,var hægt að kalla þetta storm? Og menn skyldi nú halda, að hann hafi blás- ið upp, er eg varp heiðurspeningnum í San Marco. Eins og hann ætti yfir al- mennilegum stormi að ráða!“ En er nótt kom.gjörðu stormur og haf atlögu, svo að Feneyjar skulfu á grunni sínum. Gradenigo hertogi og herrarnir í ráðinu háa fóru í náttmyrkrinu inn í San Marco til að biðja fyrir borginni. Blysberar gengu á undan þeim og lögðu blysin svo í storminum, að þau lágu flöt eins og smáfánar. Stormurinn svifti svo í hina þungu gullskrúðkápu hertogans, að tveir menn urðu að halda henni niður. Cecco fanst þetta hið furðulegasta, er hann hefði séð. Gradenigo hertogigekk sjálfur til kirkju fyrir þessa Ólundar golu! Hver myndi úrræðin hafa orðið, ef komið hefði stormur í lagi? Öldurnar skullu viðstöðulaust upp að stauragirðing strandarinnar. Nú í nátt- myrkrinu var það líkast því, að skrímsli með hvítum hausum hoppuðu upp úr djúpinu og læstu sig með klóm og tönn- um í stólpana til að reyna að rífa þá upp frá ströndinni. Cecco tanst hann heyra óarga blásturinn, er þau skullu niður aftur. En það fór að fara skjálfti um hann, er hann sá þau viðstöðulaust koma upp aftur og rífa í stauragii ðinguna.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.