Breiðablik - 01.02.1912, Blaðsíða 14

Breiðablik - 01.02.1912, Blaðsíða 14
I42 BREIÐABLIK vildi hann gera til að þóknast honum og honum hepnaðist líka aS draga fram bát- inn. Hann hjálpaði hinum ókunna að stíga upp í og greip árar. Cecco hló að sjálfum sér. ,,Hvað ertu að hugsa? Legðu að minsta kosti eigi út!“ sagði hann. ,, Hefir þú nokkuru sinni séð annan eins öldugang? En seg hon- um þá, að það sé ekki á nokkurs manns valdi!“ En honum fanst hann ekki geta sagt hinum ókunna manni, að það væri ófært. Hann sat hægur í bátnum, eins og væri hann að fara út til Lido eitthvert sumar- kveld. Og Cecco tók að toga árar út til San Giorgio Maggiore. Það var óálitlegt;hvað eftir annað skol- aði öldunum yfir þá. ,,Æ, hrópið í karl- inn“, sagði Cecco hálfhátt við sjálfan sig, „hrópið í karlinn, sem leggur út í annað eins veður! Það er annars gætinn gam- all fiskimaður, kallið í hann!“ Nú reis báturinn upp á feikna hæðir og ók svo niður djúpa dali. Brimið af öld- unum löðraði um Cecco; þær skunduðu fram hjá honum eins og fælnir hestar, en honum smáþokaði þó nær San Giorgio. ,,Fyrir hvern gerir þú alt þetta, leggur bát og líf í sölur?“ sagði hann. ,,Þú veizt þó ekki einu sinni, hvort hann muni borga þér. Hann lítur eigi út eins og herramaður. Hann er eigi betur búinn en þú sjálfur“. En þetta sagði hann einungistil að láta ekki kjarkinn bila og þurfa ekki að blygð- ast fyrir meinleysi sitt. Honum fanst hann til neyddur alt að gera,sem mannin- um í bátnum þóknaðist. ,,En ekki fer þú til San Giorgio með neinu móti, asninn þinn!“ sagði hann. ,,Þar er vindstaðan enn verri en við Rialco“. í öllu falli lagði 'nann bátnum við hér og hélt í bátinn meðan ókunni maðurinn gekk áland. Honum fanst, að hyggilegast væri nú að yflrgefa bátinn og laumast á brott, en hann gerði það ekki. Fyrr hefði hann gengið í dauðann.en svíkja ókunna mann- inn. Hann sá hann ganga upp áeynaoginn í San Giorgio kirkjuna. Skömmu síðar kom hann aftur með brynjuklæddum riddara. ,,Ró þú með okkur yfir til San Nicolo in Lido!“ sagði ókunni maðurinn. ,,Þó það væri nú“, hugsaði Cecco, ,,því ekki til Lido?“ Úr því það var lífsh iski að fara til San Giorgio, hví skyldi þeir víla fyrir sér þenna spöl út til Lido? Og Cecco varð hræddur við sjálfan sig, af því hann hlýddi hinum ókunna manni að leggja út í opinn dauðann, því hann stýrði beina leið til Lido. Nú er þeir voru tveir í bátnum,var erf- iðið enn meira. Hann vissi eigi hvernig hann myndi geta enzt. ,,Þú áttir þó enn mörg ár eftir ólifuð“, sagði hann og tók að ákæra sjálfan sig. En undarlegast var, að hann alls eigi var hryggur. Hann fann eigi til sorgar vegna sona sinna eða nokkurs annars. Og svo fyltist hann metnaði af að geta komist áfram. ,,Gamli Cecco kann að taka í ár“, sagði hann við sjálfan sig. Þeir lögðu að við Lido og báðir ókunnu mennirnir gengu á land. Þeir gengu upp til San Nicolo in Lido og komu brátt aftur með gamlan biskup, klæddan í hen.pu og hökul, með bagal í hendi og mítur á höfði. ,,Ró þú nú beint til hafs!“ sagði fyrsti ókunni maðurinn. Gamli Cecco fór að skjálfa. Átti hann að róa út á hafið, þar sem synir hans höfðu farist? Nú sagði hann eigi framar neitt spaugsyrði við sjálfan sig. Hann hugsaði eigi heldur eins mikið um storm- inn og þá skelfingu að eiga að halda út á gröf sonanna. Þegar hann nú var að róa þangað,fann hann að hann var að gefa meira en lífið út fyrir ókunna manninn. Þeir sátu allir þrír þögulir í bátnum,

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.