Frækorn - 15.10.1903, Qupperneq 12
140
FRÆKORN.
Krists og friðþægingu hans fyrir syndir mann-
anna. Samkvæmt kenningu Christian Science
hefur kvöl Krists á krossinum verið tómur
hugarburður, og kvölin, sem olli því að sveiti
hans varð sem blóðdroþar, verið einungis vegna
ófullkomleika hugsunar hans. Sjálf hefur Mrs.
Eddy sagt: „Hefði vizkan stjórnað öllum
hugsunum Jesú, þá hefði hann aldrei spáð um
dauða sinn og með því flýtt fyrir honum eða
orsakað hann". Það má ekki gleyma því, að
í nýja testamentinu er jafnan talað um sárs-
aukann og bölið sem virkileika, sem mæti
mönnunum hér í lífi fyrir guðlegt tilstilli í
þeim tilgangi, að knýja menn til yfirbótar og
helgunar.
Christan Science á að vera byggð á biblíunni,
en kemur þó hvarvetna í bága við kenningar
biblíunnar, nema svo, að biblían sé útskýrð á
þann veg, að ekkert vit verði í henni. Bent
hefur líka verið á, að þessi „vísindi" komi
hættulega nærri því, að drýgja syndina á móti
heilögum anda, sem ekki verður fyrirgefin, með
því þau tileinka sér heilagan anda, og láta
því heilagan anda bera ábyrgðina af þeirri
syndsamlegu heimsku, sem leynist undir klæða-
faldi kenningarinnar um, að til sé ekkert brot,
synd eða sekt.
Sérstakiega hafa líka þeir, sem ritað hafa
gegn Christian Science, sýnt fram á, hversu sú
kenning leiðir til hræsninnar. Hræsni er
það, að sýnast annað en það, sem er. Þegar
líkaminn þolir ekki við fyrir kvölum, verður
maður að segja: „Það er engin kvöl til". Þó
líkið liggi á börunum fyrir augum manns,
verður maður að segja: „Það erenginn dauði
til." Á bls. 296 í bók Mrs. Eddy (Science
and Health) stendur: „Ef blekkingin segir:
eg hefi tapað minninu, þá verður þú að mót-
mæla því. Enginn hæfifeiki tapast." „Efbarnið
grætur og segir: Eg meiddi mig, verður
móðirin að bera það oían í barnið, og það
enda þó blcðið streymi úr sárinu, og segja:
Hvaða heimska! Þú hefur ekki meítt þig, þú
bara ímyndar þér það." (Sjá bls. 336). „Sjón,
heyrn og öll skilningarvit eru eilíf og geta ekki
bilað", segir á bls. 418, sem þá þýðir, að blindur
maður verður að standa á því fastara en fót-
unum, að hann sé ekki blindur, og heyrnar-
laus maður uppástanda, að hann heyri. — Á
bls. 541 stendur: „Maðurinn getur ekki glatað
heilagleikanum, og þó hann syndgi verður hann
að fullyrða, að engin synd sé til." Qetur nokkur
hlutur skapað hræsnina, ef ekki þetta? Þegar
maður fer að telja sjálfum sér og öðrum trú
um það, sem hann veít að er ósatt, og fer að
lifa samkvæmt því, þá verður hann ósjálfrátt
að hinum aumasta hræsnara.
Quðfræðiskennari einn, dr. Dixon, staðhæfir
í ný útkominni ritgjörð, að hjá „hinum full-
komnustu" Chr. Sci. sé ekki hvatt til hjóna-
bandsins, og að Mrs. Eddy kenni, að konur geti
nú á dögum orðið barnshafandi fyrir heilagan
anda, eins og María mey, og að til séu konur
í Massachusetts, sem fullyrði, að þær hafi alið
börn á þann hátt.
Læknar og heilbrigðisstjórnir eiga í miklu
stríði við Christian Scientists. Mrs. Eddy kennir,
„að óþarft sé að þvo líkamann eða þurka, í
þe'm tilgangi að hreinsa burtu óheilnæma út-
dömpun líkamans." Hún segir enn fremur: „Að
þvo tingbarnið daglega er ekkert náttúrlegra
eða nauðsynlegra heldur en það væri, að taka
fiskinn daglega upp úr vatninu og velta honum
í forinni."
Dr, Burton hefur samið þessar sjö ákærur á
hendur Christian Science kenningunni:
„(1) Hún þykist'vera kristileg, en er íraun-
inni heiðin. Hann tilfærir orð eftir Pundita
Ramabai, þar sem hún segist kannast við Chr.
Scri. sem sams konar speki, sem kennd hafi
verið á ættjörðu sinni, Indlandi, í 4,000 ár.
(2) Hún þykist vera trúin, sem Jesú Kristur
kenudi, en segist þó hafa verið fyrst uppgötvuð
af konu fyrir 35 árum.
(3) Hún þykist vera vísindaleg, en mótmælir
þó fyrstu meginreglum vísindinna.