Alþýðublaðið - 16.05.1963, Blaðsíða 13
Ársþing BÆR VERÐLAUN
Bandalag æskulýðsfél. Reykja-
víkur hélt ársþing sitt nýlega. Þar
voru gerðar ýmsar breytingar á lög
um dg Gfefnfc^krá samtakanna.
Bygging æskulýðshallar virðist nú
ekki tímabært viðfangsefni í bili
þar eð hentugra þykir að .ireifa
æskulýðsstarfsemi borgarinnar
meira í hin ýmsu þéttbýlu og mann
mörgu hverfi.
íþróttasamböndin fylkja sér hins
vegar ein um byggingu íþróttahúss
ins í Laugaidalnum, sem jafnframt
verður sýningarhöll verzlunarsam-
taka og borgar.’inar yfirleitt.
B.Æ.R. vill hins vegar sem heild
leggja áherzlu á að efla samstarf
ÚT er komin hjá Almenna bólta-
félaginu önnur bók mánaðarins
fyrir maímánuð, hin kunna rúss-
yeska saga, Dagur í lífi ívans
Denisovichs eftir Alexander Solz-
henitsyn. Þýðandi er Steingrímur
Sigurösson.
Þessi saga, sem varð heims-
fræg næstum sama daginn og hún
birtist í fyrsta sinn, gerist í rúss-
neskum fangabúðum á Stalinstím-
anum. „Ekkert þessu líkt hefur
nokkru sinni birzt í sovétbókmennt
um,” bergmálaði í blöðum um all-
an heim, en í Rússlandi seldist
tímaritsheftið, þar sem sagan birt
ist, upp á nokkrum dögum, og
aðalpersóna sögunnar, Ivan Deni-
sovichs, varð umræddasta persóna
Sovétríkjanna.
Bókin er 176 bls. að stærð. —
Káputeikningu hefur Atli Már
gert, prentun hefur Víkingsprent
annazt, en Bókfel} bókbandið.
og kynni hinna ýmsu aðildarfélaga
með því að beita sér fyrir æsku
lýðsdegi og jafnvel æskulyðsviku
þar sem efnt yrði til samicbmu-
halds, listkynninga og sýninga,
sem túlkuðu sem bezt hugs jónir cg
áhugamál unga fólksins á hverjum
tíma.
Auk þess yrði aukin og efld fyrir
greiðsla um útvegun fræðsluþátta.
fyrirlesara, kvikmynda og kyrr-
mynda, sem orðið gætu starfsemi
hinna ýmsu aðildarsamtaka að Jiði,
og haldi nnámskeið fyrir verðandi
foringja og forystumenn.
Þing B.Æ.R. taldi nauðs.vnlegt
að s‘jóm Worgarinnar notfærði
sér sf>m bezt þessi samtök æsku-
lýðsins og styrkti því frjálst fram
tak B Æ.R. til virkrar þátttöku í
starfsemi Æskulýðsráðs þess, sem
nú starfar. Hér eru framréttar
hendur unga fólksins sjálfs og á-
húgasamra manna og kvenna, sem
unnið hafa áratugum eaman að
félagsmálum æskunnar í horginni
og eru því reynslunni ríkari um
allt, sem æskulýðsmál snertir.
Taldi þing þetta einsætt, að
Bandalagið nyti framvegi.s styrks
frá borg og ríki til cflmgar~siarf-.
semi sinni og fól verðandi stjórn
að athuga um slíkan fjárhagsgrund
völl i náinni framtíð. fíu hingað
til hafa samtökin engan opinberart
stuðning hlotið nema þá óheinlín-
is, og hefur fjárþröng því mjög
torveldað allt starf B.Æ.R. -
Núverandi stjórn BÆ.R. er
þannie skiouð: Sr. Árelíus Níe's-
son formaður, S_r. Ólafur Skúlason
ritari, Ingi B. Ársælsson féhirðir,
Ólafur Pálsson varaformaður,
Gísli Gunnarsson meðstj., Gullveig
Sæmundsdóttir meðstj., Ragnar
I Kjartansson meðstj.
SKÓLASUT AÐ
HALLORMSST AD
Árný Skúladóttir.
í síðasta jólablaði Æsknnnar,
efndi blaðið og Flugfél’g ís’ands
til spurningaþrautar. Spurningar
í þrautinni voru alls 40 og var frest
urinn til að svara þeim ú'runninn
1. maí sl. Alls bárust 386 svör, af
þeim voru 146 rétt og var dregið
um verðlaunin. Úrslit urðu þau,
að Árný Skúladóttir Hlíðarbraut 9
Hafnarfirði hlaut fyrstu verðlaun
sem er flugferð með vél fiugfélags
íslands fram og aftur til Noregs
og þriggja daga dvöl þar.
Önnur verðlaun hlaut llelga
Þórðardóttir Sauðanesi pr. Blöndu
ós, flugferð fram og aftur á ein-
hverri af flugleiðum FlugféJags ís-
lands hér innanlands. Þriðju,
fiórðu og fimmtu verðlaun sem
voru peningar hlutu: Alrún Krist-
mannsdóttir, Sundi Eskifirði, Guð
jón Ingvarsson, Fögrubrekku 6
Kópavogi og Kristín Björg Hilm-
arsdóttir, Rauðalæk 8 Reykjavík.
Þessi Noregsför verður sú þriðja
í röðinni, sem Æskan og Flugfél9g
íslands gangast fyrir með börn
til útlanda. Æskan er elzta og
stærsta barnablað landsins og er
nú gefin út í 11 þúsund eintökum.
Ritstjóri hennar er Grímur Engil-
berts.
T ilkynnmg
Húsmæðraskólanum að Hallorms
stað var slitið 28. f.m. að viðstödd
um um 150 gestum, auk nemcnda
og starfsfólks skólans.
Athöfnin hófst með guðsþjón-
ustu og prédikaði sóknarpresturinn
sr. Marinó Kristinsson. Forstóðu-
kona skólans, Guðrún Ásgeirsdóttir
flutti skólasUtaræði^. Lýsti hún
starfsháttum skólans og afhenti
nemendum prófskírteini. Jóhannes
Stefánsson skólanefndarmaður
flutti ávarp og Sigurður Blöndaí
skógarvörður afhenti gjöf frá 20
ára nemendum, látlausan og íagr
an kertastjaka með áletruninni:
Til minningar um Sigrúnu P.
Blöndal Hallormsstað.
Að lokum var opnuð myndar’eg
og fjölbreytt handavinnusýning, og
gestir þágu rausnarlegar veitingar.
í haust hófu 30 stúlkur nátn
við skólann, og luku nú 14 próf-
um yngri deildar, en 14 frá eldri
déild, þar af tveir gagnfræðingar,
sem luku prófi eftir eins árs nám
við skólann. Hæstu einkunn við
burtfararpróf eldri deildar hlaut
Kristbjörg Jenný Sigurðardóttir,
Húsey 9,32, næst varð Guðrún Ljós
brá Björnsdóttir Ketilsstöðum
Hjaltastaðaþinghá 8,98 — báðar
gagnfræðinga.r — en þriðja í röð
innj vafrð Kolbrún Vigfúsdóttir
Borgarfelli Skaftártungu 8,59. Kol
brún hafði stundað nára í tvo vet-
ur við skólann. Af yngri deildar
stúlkum hlaut Guðrún Sigurðar-
dóttir Húsey hæstu einkunn 8,95,
næst varð Guðlaug Kröyer ÍJnalæk
með 8,50, þá Auður Jónsdóttir
Múla Álftafirði með 8,48.
Skólahættir voru með líku sniði
og. áður. Nemeddur skiptust á
heimsóknum vlð Eiðaskólanema,
haldin var árshátíð og farið í
styttri ferðir um nágrenni skólans,
ýmsir gestir heimsóttu skólann
m.a. námsstjóri húsmæðrastigsins
Halldóra Eggertsdóttir og Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri, sem
sýndi skuggamyndir og flutti er-
indi.
Dvalarkostnaður eldri deildar
stúlkna varð kr. 9900 skó.iaánð,
en yngri deildar kr. 8900 og er þá
handavinnuefni meðtalið.
í orlofsleyfi Ásdísar Sveinsdótiur
stýrði Guðrún Ásgeirsdóttir skói-
anum. Aðrir fastir kennarar voru:
Þórunn Þórhallsdóttir Egilsstöð-
um, sem kenndi handavinnu og
Marsibil Jónsdóttir Reykjavik,
sem kenndi matreiðslu. Stundaken®
arar þeir sömu og áður, Þórný Frið-
riksdóttir og Sigurður Blöndal.
Margar umsóknir um skólavist
fyrir næsta ár hafa þegar borizf.
Sumargistihús verður starfrækt
á Hallormsstað í sumar. Þar verða
a.m.k. þrjár orlofsvökur hús-
mæðra og þegar hafa verið ákveðn-
ir þar ýmsir fundir fjórðungssam-
taka.
• t
ísafirði sagt upp
ísafirði 29. aprfl.
Iðnskóla ísaf jarðar var slitið 23.
apríl sl. Skólastjórinn, Björgvin
Sighvatsson, hélt ræðu við skóla-
uppsögnina og afhenti nemendum
bókaverðlaun fyíir námsárangur
og störf í þágu skólans. í ræðu
! sinni gerði skólastjórinn grein fyr
| ir skólastarfinu á vetriniun.
i Skólinn var settur 9. janúar sl.
í skólanum voru 27 nemendur. og
tilheyra þeir samtaJs 11 iðngrein-
i um. Undir próf gengu 23 nemend-
ur. Þar af luku burtfaraprófi 11 og
tilheyra þeir eftirfarandi iðngrein-
um: 3 í netagerð, 2 bifvélavirkiar,
2 ljósmyndarar, 1 rafvirki, 1 mál-
ari, 1 múrari og 1 nemandi i hár-
greiðslu.
Hæstu aðaleinkunn á burtfarar-
prófi hlaut Árni Guðbjarnason raf-
virki, ísafirði, 8,83, sem jafnframt
var hæsta aðaleinkunn yfir skólann
Hæstu aðaleinkunn í 2. bekk
hlaut Ásgeir .Sigurðsson 8,69, og
hæstu aðaleinkunn í 1. bekk hlaut
Helgi Júlíusson 8,65.
Framhald á 12. síðu.
FRA YFIRKJORSTJORN
VESTFJARÐAKJÖRDÆMIS
Við kosningar til Alþingis, sem fram eiga að fara
9. júní 1963, verða eftirtaldir framboðslistar í kjöri í
Vestf jarðak j ördæmi:
A — listi Alþýðuflokksins:
1. Birgir Finnsson, alþingismaður, ísafirði.
2. Hjörtur Iljálmarsson, skólastjóri, Flateyri.
3. Ágúst Pétursson, skrifstofumaður, Patreksfirði.
4. Ósk Guðmundsdóttir, frú, Bolungarvík.
5. Pétur Sigurðsson, vélstjóri, ísafirði.
6. Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri, Reykjavík.
7. Guðmundur Andrésson, rafvirki, Þingeyri.
8. Jens Hjörleifsson, verkamaður, Hnífsdal.
9. Kristján Þórðarson, bóndi, Breiðalæk, Barðastrandarhreppl.
10. Bjarni Friðriksson, verkamaður, Suðureyri.
B — listi Framsóknarflokksins:
1. Hermann Jónasson, alþingismaður, Reykjavík.
2. Sigurvin Einarsson, alþingismaður, Saurbæ, Barðastrandar-
sýslu.
3. Bjarni Guðbjörnsson, bankaútibússtjóri, ísafirði.
4. Halldór Kristjánsson, bóndi, Kirkjubóli, Önundarfirði.
5. Bogi Þórðarson, kaupfélagsstjóri, Patreksfirði.
6. Gunnlaugur Finnsson, bóndi, Hvilft, Önundarfirði.
7. Hafliði Ólafsson, bóndi, Ögri, Ögurhreppi.
8. Ólafur E. Ólafsson, kaupfélagsstjóri. KróksfjarðarnesL
9. Torfi Guðbrandsson, skólastjóri, Finnbogastöðum, Ámes-
hreppi.
10. Ragnar Ásgeirsson, héraðslæknir, ísafirði.
D — listi Sjálfstæðisflokksins:
1. Sigurður Bjarnason frá Vlgur, ritstjóri, Reykjavík.
2 Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdastj., Reykjavik.
3. Matthias Bjamason, framkvæmdastjóri, ísafirði.
4. Ari Kristinsson, sýslumaður, Patreksfirði.
5. Kristján Jónsson, kennari, Hólmavik.
6. Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður, Bolungarvík.
7. Rafn A. Pétursson, framkvæmdastjóri, Flateyri.
8. Aðalsteinn Aðalsteinsson, bóndi, Hvallátrum.
9. Andrés Ólafsson, prófastur, Hólmavik.
10. Marselíus Bemharðsson, skipasmíðimeistari, ísafirði.
G — listi Alþýðubandalagsins:
1. Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambands íslands,
Reykjavík.
2. Steingrímur Pálsson, umdæmisstjórl, Brú, Hrútafirði.
3. Ásgeir Svanbergsson, bóndi, Þúfum, N-ísafjarðarsýslu.
4. Ingi S. Jónsson, skrifstofumaður, Þingeyri.
5. Játvarður Jökull Júlíusson, bóndi, Miðjanesi, A-Barða-
strandarsýslu.
6. Haraldur Guðmundsson, skipstjóri, ísafirði.
7. Davíð Davíðsson, bóndi, Sellátrum, V-Barðastrandarsýslu.
8. Guðsteinn Þengilsson, héraðslæknir, Suðureyri.
9. Páll Sólmundarson, sjómaður, Bolungarvilc.
10. Skúli Guðjónsson, bóndi, Ljótunnarstöðum, Hrútafirði.
ísafirði, 9. maí 1963.
í yfirkjörstjórn Vestfjarðakjördæmis:
Högni Þórðarson
Ólafur Guðjónsson
Sigurður Kristjánsson
Jónatan Eiuarsson
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. maí 1963 13