Alþýðublaðið - 30.07.1963, Síða 2
i mmtfrnx: Góll J. Asiporsso* (&V>> ua tíenedlkt Gröndal,—Aðstoðarrltst]on
( Dgi'gg’U GuCmundssoD - Fréttastjórl: Sigvaldl HJálmarsson. - Clsur
i M MO - 14 302 — 14 903. Auglýsingasíml: 14 906 — AOsetur: AlþýSuhúslB
I *- Fren'smlöja A!WOublaCs:ns, Hverfisgötu 8-10 — Askrlftargjald kr. 65.0C
| g BlvUh. I Uuasölu kr. 4 00 elnt. Otgefandi: Albýöuflokkurlnn
f
EKKI HÆRRA VERÐ
VERÐLAG á ýmsum vörum hefur farið hækk
andi, og er það vissulega áhyggjuefni. Sumar þess
ara hækkana eiga innlendar orsakir, en aðrar verða
vegna hækkandi verðlags erlendis. Er vert að minn
ast þess, að síðustu mánuði hefur verið stöðug hækk
un á verðlagi í nálega öllum nágrannalöndum okk-
ar, og er engin von til þess, að íslendingar komist
hjá afleiðingum þess.
Frjálsari verzlunarhættir í tíð viðreisnarinnar
hafa gerbreytt vöruvali og stóraukið þægindi
fólks hér á landi. Hins vegar er deilt um, hvort rétt
sé að auka frjálsræðið með því að afnema allt verð
lagseftirlit. Var á það minnzt síðast í ritstjórnar-
grein í Vísi í gær.
Rétt er að gera sér grein fyrir, hvað hægt er
að gera með verðlagseftirliti og hvað ekki. Slíkt eft
irlit getur ekki tryggt rétt verð á hverjum smáhlut
í hverri búð. En það getur haft stórfelld áhrif á verð
lagningu, ekki sízt í heildsölu, og þannig sparað
neytendum stórar upphæðir. Þess vegna hefur ver
ið talið rétt að halda þessu eftirliti og er það á stefnu
| skrá núverandi ríkisstjórnar.
Stjórn sjálfstæðis- og framsóknarmanna 1950
I —55 lét undan kröfum verzlunarinnar um að af-
nema verðlagseftirlit. Kom þá fljótlega á daginn,
að eftirlitsleysið var misnotað í stórum stíl og álagn
ing hækkuð á mörgum vöruflokkum úr hófi fram
Hins vegar eru ekki þær aðstæður hér á landi, að
samkeppni geti notið sín til að halda verði niðri að
I nokkru ráði, nema á einni og einni vörutegund.
Ekki hefur verið birt skýrsla um árangurinn af
afnámi verðlagsákvæða á nokkrum vörutegundum
fyrir tveim árum. Mun þó hafa komið í ljós, að ýms-
ir aðilar höfðu tilhneigingu til að notfæra sér það
ástand til hins ítrasta á kostnað neytenda.
Þeir, sem berjast fyrir afnámi verðlagsákvæða,
gera það augsýnilega til að fá álagningu hækkaða.
Það mundi gera vörur dýrari, og er ástand verð-
lags- og kaupgjaldsmála ekki með þeim hætti, að
slíkum verðhækkunum sé á bætandi. Þess vegna
verður að halda verðgæzlunni.
„Frjálst verðlag”, sem Vísir talar um, mundi
þýða „hærra verðlag11. Neytendur treysta verð-
gæzlunni til að reikna kaupmönnum: og kaupfélög-
um þá álagningu, sem þessir aðilar sannanlega
þurfa, en óska ekki eftir að greiða eyri fram yfir
það.
Auglýsið í Alfíýðublaðinu
Auglýsingasíminn er 14906
HANNES Á HORNINU
í + flttræður aíreksmaður.
+ HugprúSur maður, sem barðist fyrir hugsjón sinni. |
ýr Arftaki söguhetjanna í íslendingasögunum.
Verkfall hjá blaðamönnum?
r ■
•iimiiM „fimmmmmmmmmmiimimmnmiiiiiiHmmmiimmiimiimmmiiMmmmiMiMmmimimimiurMi
JÓHANNES JÓSEFSSON varð
áttræður á sunnudajrinn. Hann var
mikíll afreksmaður og fáir hafa
sett meiri svip á borgina en hann
hina síðustu þrjá áratugi. Afrek
Jóhannesar voru ekki aðeins unn
in á íþróttaleikvöngum og í fjól-
leikahúsum í öðrum heimsálfum
og þó voru þau mikil og minnis-
stæð, heldur verð ég að álíta, að
stofnun ungmennaféiagshreyfing-
arinnar og bygging Hótel Borgar
hafi verið merkustu afrekin, sem
þessa kempa vann.
HANN VABÐ HEIMSFRÆGUR
íþróttagarpur af ást til lands og
þjóðar. Hann stofnaði ungmenna-
félögin af sömu rót og sama hug-
sjónin benti honum heim til
Fróns á sínum tíma með aleigu
sína, sem hann lagði alla fram cg
meira til, til þess að auka veg
þjóðarinnar, sem hann og gerði.
Þróun í fjárhagslífi varð til þess,
að fjármunir lians björguðust, en
það gat hann ekki séð fyrir — og
enginn gat séð fyrir eins og ástand-
ið var um og upp úr 1930.
SAMTAUIÐ VIÐ JÓHANNES í
útvarpinu á sunnudagskvöld, er án '
efa merkasta og bezta samtal, sem I
fram hefur farið í útvarpi síðan
útvarp hér hóf göngu sína. Jó-
hannes var látlaus og mál hans
gott, frásagnir hans skemmtilegar
og ákaflega fróðlegar, þó saknaði
ég sögunnar af því er hann barðist
við ungverska tröllið í London við-
beinsbrotinn — og varð þó ckki
sigraður.
SAGA JÓHANNESAR er mikil.
Það væri illa farið ef hún yrði ekki
skráð..En Jóhannes er hlédrægur
— allt að því feiminn þegar hann
fer að tala um sjálfan sig. Ég
tel það því ekki lítið afrek af
Stefáni Jónssyni að hafa fengið
hann til að segja frá. — Ég skrif-
aði grein um Jóhannes_ hálfatt-
ræðan og gat nokkuð afreka hans.
Mér hafði tekizt að ná tali af hon-
um örskotsstund undir vegg úti.
Ég sendi honum hérmeð síðbúna
afmæliskveðju með þökkum -yrir
unnin afrek sem lengi verða í minn
um liöfð.
ÞEGAR ÞETTA ER RITAÐ lít-
ur út fyrir, að verkfall blaða-
manna hefjist á fimmtudag, þannig
að ekkert blað komi út á föstu-
dagsmorgni. Mér hefði þótt það
merk tiðindi fyrir fimmtán árum
ef mér hefði verið sagt, að ein-
hvern tíma gæti til þess komið,
að blaðamenn legðu niður vinnu
hjá blöðum sínum. En svona er
þetta. Verkföllin eru orðin al-
AKUREVRARBÆR efndi til liug-
myndasamkeppni um skipulag
Miðbæjarins á Akureyri á 100
ára afmæli Akureyrarkaupstaff-
ar. Alls bárust 15 tillögur. Dóm-
nefndin hefur nú lokiff störfum og
eru úrslit kunn.
1. verðlaun hlutu þeir Gunn-
laugur Halldórsson og Manfreff
Vilhjálmsson, Bessastaðahreppi.
2. verfflaun hlutu Helgi Iljálm-
arsson, Drápuhlíð 7 Reykjavík og
FRIÐRIK
Framhald af 1. síffu.
Þetta skákmót mun vera hiff
sterkasta á þessu ári, og að verffa
þar í þriffja sæti er mikiff afrek.
Affeins þrír vinningar skildu milli
efsta og neðsta manns. Petrosjan
og Keres eru meff rúm G0% út úr
mótinu en Friðrik og Najdorf tæp
54%, sýnir þetta hve jöfn og hörff
keppnin var.
Margir telja, aff Friffrik sé alltaf
vaxandi skákmaffur og hafi hann
á undanförnum árum sýnt nýjar
hliðar á skákmennsku sinni.
Alþýðuölaffiff óskar Friffriki til
hamingju með þennan ágæta árang
ur.
menningseign. Blaðamenn kvarta
undan því, að launakjörin séu
misjöfn og að þeir geti ekki þolað
mismunun í þeim efnum. Aðallega
mun vera átt við byrjendur. Þó að
illa líti út i dag vona ég að aöilar
komist að niðurstöðu áður en til
verkfalls kemur.
Ilaukur Viktorsson, Bjarnastíg 7,
Akureyrl. j
3. verðlaun hlaut Sigurffur Thor-
oddsen, Hafnarfirffi.
1. verðlaun voru 100 þúsund
krónur, 2. verðlaun 50 þúsund
krónur og 3. verðlaun 25 þúsund
krónur.
Auk þessa kcypti Akureyrar-
bær tillögu frá þeim Reyni Vil-
hjálmssyni skrúðgarðaarkitekt og
Stefáni Jónssyni fyrir 15 þúsund
krónur og einnig tillögu Guðmund
ar Samúelssonar Akranesi fyrir
10 þúsund krónur. j
SIGLDU Á
Frarnhald af 1 síðu
vík og fólk heíur kannaff ströndina.
Klukkan þrjú fór landhelgisflug-
vélin og ætiaði aff kanna svæðiff
vestur á Mýrar.
Veffur var gott á sunnudagsnótt
ina, suffaustan átt, en snérist í
vestlæga áít er ícið á daginn. I
gær stóff vindur af landi.
Aðalstraumar hér í grennd liggja
inn sundin, og eins upp undir
Skaga og vestur á Mýrar.
Kristinn Ólafsson er kvæntur,
en Jörgen ókvæntur.
Hannes á horninu
15 tillögur um
skipulag bárust
AUGLÝ
frá Happdrætti Alþýðubiaðsins
Happdrætti Alþýðublaðsins vill hér m eð njinna á, að allir þeir, sem fara í
sumarfrí á næstunni og eiga miða í HAB, gleymi ekki að endurnýja fyrir
‘ ágústdráttinn.
Skrifstofa dappdrættisins er opin venjulegan skrifstofutíma og er að Hverf-
mo,
ísgötu 4, Reykjavík. Sími 17458.
Happadrætti Alþýðublaðsins
g 30. júlí 1963 — ALÞÝ0UBLAÐIÐ