Alþýðublaðið - 30.07.1963, Page 7
HIN SfÐAN
: :\iZ
>V%WWWWWMWWMHWWWWMWWWWWWWWMMWW
Varhugaverð
skemmtiferð
DRENGIRNIR hérna á myndinni tókust á hendur hættu-
legt ökuferðalag laust fyrir síðustu helgi. Þeir heita Brian og
Sean og eiga heima í Giasgow. Einn góðan veðurdag voru
þeir að leika sér skammt frá heimilum sínum og komu þá
auga á þriggja tonna vöruflutningabifreið, sem freistaði þeirra
meira en lítið. Snáðamir tóku sér sæti aftur undir palli bif-
reiffarinnar og uggðu ekki að sér er bílstjórinn, Sam Jeffrey
ók af stað án þess að veita þeim eftirtekt. Sátu nú piltarnir sem
fastast og bíllinn ók áfram á fleygiferð. Það var ekki fyrr en
kona nokkur tók eftir þeim og tókst aö láta stöðva bifreiðina
eftir að hún hafði ekið meira en mílu vegar, að leik tvímenn-
inganna lauk. Það er talin hafa verið mesta miidi að ekki
hlauzt slys af þessu tiltæki ungu mannanna.
Á myndinni sjáum við Brian litla til vinstri og Sean til
hægri þar sem þeir sátu í ökuferðinni eftirminnilegu.
I
UliiiiiiiitiiMiuimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii /iiiiiiiiiiiiutiiu*
i !
Verölauna-
veitingar á
kvikmynda-
hátíð
ÍTALSKI kvikmyndastjór-
inn Federico Fellini fékk
fyrstu verðlaunin á þriðju al
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í Moskvu fyrir mynd sína
„88&i4“. Danska kvikmyndin
„Den kære familie" fékk verð
laun fyrir framúrskarandi
góða myndatöku. Gullverð-
laun fengu tékkneska mynd-
in „Við getum ei fyrirgefið"
og júgóslavneska myndin
„Kozara“, — þær fjalla báð
ar um baráttuna gegn nazist
um. Bezti leikarinn var kjör
inn Bandaríkjamaðurinn
Steve Macqueen fyrir leik
sinn í „Flóttinn mikli“ og hin
indverska Suhitra fékk
verðlaun „sem bezta leikkon
an fyrir leik sinn í mynd-
inni „Giftingarhringurinn".
Hámark hátíðahaldanna
var þegar hinn kunni Fell-
ini gekk fram á sviðið og tók
við fyrstu verðlaununum úr
hendi rússnesks kollega síns
Grigory Chukrau, formanns
dómnefndar kvikmyndahátíð
arinnar. Hinir sex þúsund
þátttakendur hátíðahaldanna
vorú samankomnir í salnum,
þar sem verðlaunaveitingin
fór fram, og fögnuðu þeir
Fellini ákaflega.
T arzan
bjargar
gestum
HUNÐURINN „Tarzan" bjarg-
aði 40 mannslífum á áströlsku
fjallahóteli 370 km. fyrir sunnan
Sidney, er eldur kom þar upp að
næturlagi. Allir voru í fastasvefni
unz hótelstjórinn vaknaði við span
gólið í „Tarzan", sem lét sem óður
væri. Hóteístjórinn vakti svo gest
ina einn af öðrum og flúðu þeir í
náttfötunum einum saman út i
snjóstorm og hríð, sem geisaði úti
fyrir.
Fleiri afforot
MIKIL fjölgun afbrota átti sér
stað í London árið 1962. Frá þessu
skýrði Sir Joseph Simpson iögreglu
fulltrúi í nýútkominni ársskýsiu
um lögreglumái í Lundúnum. Tel-
ur Simpson að fjöiga þurfi f
Lundúnalögreglunni um 6000
manns til þess að fullnægjandi sé
fyrst nm sinn.
Mest fjölgaði ofbeldisglæpum.
Líkamsárásum fjölgaði um 271 frá
árinu áður og urðu 2.991. Nauðgan
ir uxu um 178 í 1.345.
Morð f Lundúnum árið 1962
urðu 38 og er það þremur meira
en var 1961. í fyrsta slnn x sögu
Lundúnalögreglunnar fóru svo rán
yfir 1000.
Lundúnalögreglan framkvæmdi
18,610 handtökur á unglingum inn
an 21 árs árið 1962 og er það 454
meira en árið áður. 25.302 hand-
tökur fóru fram á fólki yfir 21
árs.
öngvit
40 ARA gömlum bankarængja
í Phíladelphia í Bandaríkjuirum
tókst ekki betur til en svo að þatS
steinleið yfir hann í miðji*
ætlunarverki sínu.
Ræninginn otaði byssu sinni að
gjaldkeranum, Samuel D. Galati,
og sagði við hann hvössum rómi:
„Þetta er rán. Upp með pen-
ingana“.
Hinn 66 ára bankavörður, Step-
hen Ryan, stóð við enda annars
borðs í afgreiðslusalnum og sá,
hvað verða vildi. Hann seiltíist
undir borð og þreif þar riffil og
hleypti af skoti.
Ræningjanum brá svo við þetta
að það leíð yfir hann. Þustu menn
þá til og afvopnuðu hann. Flestum,
brá þó í brún, þegar í ljós kom a0
byssa ræningjans var lcikfanga-
byssa hlaðin meinlausum plastkul
um.
Hann: Þú vilt alls ekki giftest
mér?
Hún: Nei, en það er allt í íagt
með að vera trúlofuð þér dálítinn
tíma.
| Naglar og nálar \
| í maga konunnar |
SOVÉZKIR fæknar hafa orð
ið að framkvæma mikla
skurðaðgerð á armenskri
konu, Antaram Khachatryan,
sem er fertug að aldri og
þjáðist af óvenjulegum og ill
kynjuðum taugaköstum.
Læknarnir veiddu hvorki
meira né minna en 230 nagla
og 340 nálar úr maga konunn
ar. Hún gaf þá skýringu á
þessu undarlegu fyrirbrigði,
að „illir andar“ hefðu gef-
ið henni fyrirskipanir um að
gleypa þessa hluti.
Tass fréttastofan hermdi,
að nokkrir naglarnir hefðu
stungizt í lifur konunnar og
önnur viðkvæm líffæri, en
bætti því við að hún væri
samt sem áður úr allri hættu.
Læknarnir áttti í fyrstu í
mestu erfiðleikum með að
greina sjúkdóm konunnar.
Hún kvartaði sáran yfir maga
verkjum og héldu sumir
læknanna, að hún kynni að
þjást af magakrabba. Var
loks tekin röntgenmynd af
konunni, sem sýndi að van-
líðan hennar stafaði af
miklu magni nagla og nála,
sem liún hafði látið ofan í sig.
Ekki fékkst konan til að játa
naglaátið fyrr en uppskurð-
urinn hafði átt sér stað.
ai iii 11111111*111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiuiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiii
8.00
12.00
13.00
15.00
18.30
19.20
20.00
20.20
20.50
21.10
21.30
21.45
22.00
22.10
23.00
HIN SIOAN
ÚTVARP REYKJAVÍK
Þriðjudagur 30. júli
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8,30 Fréttir. *—•
8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir),
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
„Við vinnuna": Tónleikar. 4
Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Vcður-
fregnir. — Tónl. — 17.00 Fréttir . — Endurt. tónlistarefni).
Þjóðlög frá ýmsum löndum. — 18.50 Tilkynningar.
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
Xónleikar í útvarpssal: Mauno Nelimarkka hornleikari frá Hel&*
inki leikur, við undirleik Ólafs Vígnis Albertssonar.
a) Canto serioso eftir Carl Nielsen.
b) Andante fyrir horn og píanó eftir Herbert Hriberschek
Ágústsson.
c) Tveir þættir úr hornkonsert op. 8 eftir Franz Strauss.
Frá Japan; III. erindi: í Kyoto, borg hofa og hátíðahalda (Kjar«
an Jóhannsson verkfræðingur).
Kórsöngur: Lögreglukór Reykjavíkur syngur. Söngstjóri: Páll
Kr. Pálsson. Píanóleikari: Fritz Weisshappel.
a) „Kaldalónskviða", níu lög eftir Sigvalda Kaldalóns, útsctft
fyrir karlakór af söngstjóranum.
b) Þrjú tvísöngslög, raddsett af Páli Kr. Pálssyni.
c) Tvö lög eftir Pál Kr. Pálsson: „Syngdu mér söngva,, cg
„Heilir frændur".
Þýtt og endursagt: Henry Ford, forvígsmaður vélaaldar (Bakl-
ur Pálmason).
Samleikur á tvö píanó: Kjell Bækkelund og Robert Levin lci!;rw
norska dansa op. 35 eftir Grieg (Hljóðr. á tónlistarhátíðinni *
Björgvin á þessu sumri).
íþróttir (Sigurður Sigurðsson).
Fréttir og veðurfregnir.
Lög unga fólksins (Guðný Aðalsteinsdóttir).
Dagskrárlok.
ALÞÝÐUBLAÐTÐ — 30. júlí 1963