Alþýðublaðið - 15.08.1963, Síða 12
heitir þetta nýja og glæsilega sófasett
CARIO-sófasettið er með springi í baki og lausum svamppúðum í sæti. —
Á CAItlO-sófasettið má velja: belgísk, þýzk, dönsk og íslenzk áklæði.
deildin tekur í umboðssölu notuð húsgögn, ef þér skiptið, og fáið ný í Skeifunni.
Skeifan annast þannig um allt. Selur yður ný húsgögn á góðum skilmálum og
annast fyrir yður sölu hinna gömlu. Ef yður vantar notuð húsgögn eða staka
muni þá komið í B-DEILDINA í KJÖRGARÐI.
Útsvör....
Framh. af 4. síðu
þá reiknað saman útsvar og að-
stöðugjald
Lágmarksútsvar einstaklinga ei
kr. 13.00
Skatt- og útsvarsskrá Kópavogs
liggur frammi á skrifstofu skatt-
stofunnar í Kópavogi og á bæjar-
skrifstofunni alla virka daga frá
kl. 10-12 og 13-1'S, nema laugar-
dag 10-12 f.h.
Kærufrestur er til 13. ágúst .g
skuiu kærurnar vera skriflegar.
Kærurnar skal senda skattstofunni
eða umboðsmanni skattstjóra.
Eins og áður er sagt fjöigaði
gjaldendum í Kópavogi allnokkuð
frá fyrra ári, enda kom í íjis í
framtölunum að heildartekjur
Kóþavogsbúa höfðu vaxið um 50%
frá'árinu áður.
í órafjarlægð frá Maumee háskólanum.
— Ég sagði bara, að það gæti verið að
þetta litla þjórfé kæmi yður betur en mér.
Það er engin ástæða til að ráðast á mig
fyrir það eitt.
Við Maumee háskólann sjá óánægðir stúd
entarnir fram á að lið þeirra muni tapa
næsta leik.
— Scioto Iiðið er ósigraö til þessa, og
það hefur aldrei verið skorað hjó þeim all-
an keppnistímann. — Það getur verið að
drepsótt brjótist út svo fresta verði leikn-
um.
— Poteet, ætlarðu að koma með mér á
fundinn fyrir leikinn við Scioto? — Eða
viltu kannski heldur horfa á gamla kvik-
myndahetju í sjónvarpinu á stúdentagarð-
inum?
HESTAKONA
Framhald af 16. síðu
reglan gat þá ekkert frekara að-
hafst og hélt Sigráður áfram
ferð sinni.
Fór hún um Laugardal og gisti
á Laugarvatni. Þaðan hélt hún
austur í Biskupstungur og gisti
þar.
Þaðan var ferð hennar heitið
að Hvítárnesi, en þar gerði nún
ráð fyrir að hvíla sig í einn eða
tvo daga, áður en hún riði norö-
ur um til Hveravalla.
En eins og áður segir hittu
ferðamenn hana þar aðfaranótt
þriðjudagsins og töldu hana vera
veilta. Komu þeir boðum þess
efnis til sýslumannsins í Árnes-
sýelu, sem þegar hafði samband
við dómsmálaráðunejjið um
málið.
Varð það úr, að Jón Guðmunds
son lögregluþjónn á Selfossi var
sendur við annan mann eftir Sig
ríði upp í Hvítárnes. Fóru þeir
þangað í fyrri nótt.
Þar hittu þeir Sigriði og kom
hún með þeim af fúsum vilja.
Ekki taldi Sigríður sig hafa ver-
ið veika. Samt hefði hún nú verið
hálflasin og mjög þreytt. Varð
hún við óskum Jóns. að snúa við
og hætta við frekari leit að sinni
Hún mun hafa komið til Reykja-
víkur í gær. Hestur Sigríðar mun
hafa orðið eftir þar uppfrá, en í
gær mun lögreglan hafa gert ráð
stafanir til þess- að flytja hest-
inn til Sigríðar.
ERNIR...
Framhald af 5. síðu.
urs og fylgjast með og vernda eft
;ir mætti varpsvæði þeirra fáu
para, sem eftir eru í landinu, en
slík barátta er mjög vonlítil nema
löggjafarþingið fáist til að banna
aö bera út eitur með öllu.
Félagið heiðraði r.ýlega Daníel
Kjálsson, bónda á Breiðabólsstað
á Skógarströnd, en hann bjargaði
á sl. veðri 2 örnum úr dýraboga.
Fékk félagið mjög fagra litmynd
af erni, tekna og gerða af hinum
þekkta fuglaljósmyndara Birni
Björnssyni frá Norðfirði og var
Njáli afhent, myndin ásamt heið-
ursskjali, fyrir noklcru síðan.
Kona málub
Framhald af 16. síðu.
ingu og misþyrmdu henni á ýms-
an liátt. Ekki var um nauðgun'að
ræða, og ekki applýst hvort einu
sinni hafi verið gerð tilraun til
nauðgunar.
Þarna skammt frá voru menn að
vinna að undirbúningi þjóðhátíð-
arinnar og komu þeir brátt á vett-
vang og stöðvuðu frekari óhæfu-
vérk. Voru mennirnir tveir hand-
teknir og hafðir í gæzluvarðhaldi
í 4—5 sólarhririga meðan málið
var í rannsókn. Niðurstöður rann-
sóknarinnar hafa nú verið sendar
saksóknara ríkisins.
Eins og fýrr segir voru menn-
irnih á þrítugsaldri, annar var úr
Reykjavík en hinn úr Vestmanna-
eyjum. Konan er búsett í Vest-
mannaeyjum, hún mun hafa verið
drukkin.
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum
fór að mestu út um þúfur í sínu
gamla formi. Olli því óveður. Hins
vegar voru skemmtanir í samkomu
húsum bæjarins og fór allt fram
með friði og spekt.
12 15. ágúst 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ