Lögrétta - 25.06.1930, Qupperneq 11
LÖGRJETTA
eftir eigin þörfum og landshátt-
! um. Stjórnarskrá og þingskipun
Bandaríkjanna er einnig eftir-
tektarverð að því leyti, að hún er
elsta skrifuð stjórnarskrá heims-
ins, sem nú er í gildi — þótt hún
sje ekki nema 143 ára, svo mikil
og tíð eru umskiftin í þessum efn-
um.
Bandaríki Norður-Ameríku eni
lýðveldissamband 48 ríkja (og
nokkurra lýðlenda), sem hvei’t
um sig eru sjálfstæð í mörgum
greinum og hafa sín eigin þing,
en koma fram út á við sem ein
ríkisheild og hafa ýms mál sam-
eiginleg, sem ráðið er af sameig-
inlegu þingi og forseta.
Þingið (congress) er í tyeimur
deildum og kemur saman árlega,
fyrsta mánudag í desember. Önn-
ur deildin heitir senat eða öld-
-ungaráð, en hin fulltrúadeild.
Senatið er taiið virðulegasta
stjórnarstofnun alríkisins og hef-
ur að ýmsu leyti mest völd. Sena-
toramir, sem eru 2 fyrir hvert
sambandsríki, hvort sem það er
stórt eða lítið, eru kosnir til sex
ára í senn, en þriðjungi þeirra er
rutt annaðhvort ár. Þeir mega
ekki vera yngri en þrítugir, þurfa
að hafa 9 ára borgararjett og vera
heimilisfastir í ríki því, sem þeir
kom fram fyrir. Varaforseti sam-
bandsríkisins er jafnframt forseti !
senatsins, en hefur ekki atkvæðis-
rjett nema þegar atkvæði standa
á jöfnu.
1 fulltrúadeildinni sitja 430—
440 þingmenn, eða sem .svarar
1 fulltrúa fyrir 211 þúsund kjós-
endur, kosnir til 2 ára í senn með |
almennum kosningarrjetti karla !
og kvenna í senn. Kjörgengir
eru allir, sem eru 25 ára og hafa
7 ára borgararjett. Þingmenn
beggja deilda hafa 7500 dollara
árslaun. Báðar deildirnar eru að
lögum jafnrjettháar í löggjafar- |
málum, en fjárlög ber þó fyrst að j
leggja fyrir fulltrúadeildina. For- i
seti þeirrai' deildar hefur einnig j
nokkura sjerstöðu og talsvert
mikil völd og áhrif, sem að vissu
leyti gera starf hans hliðstætt
starfi forsætisráðherrans í Bret-
landi. Hann er kosinn af meiri-
hluta deildarinnar og getur verið
alt að því einráður um vinnu-
brögð hennar og m. a. um skipun
fastanefnda, En slíkar nefndir
vinna mest af eiginlegum störf-
um deildarinnar og ráða mestu
um úrslit mála, óbeinlínis að
minsta kosti. En senatið hefur
aftur á móti að öðru leyti meiri
völd og áhrif en fulltrúadeiidin,
því það á mikinn þátt í allri
framkvæmdastjóminni ásamt for-
setanum, getur haft gagngerð
áhrif á embættaveitingar og ekki
síst á utanríkismál, eiíis og ljós-
lega kom fram í viðskiftum þess
og Wilson forseta. Senatið hefur
einnig dómsvald að því leyti, að
1 það dæmir pólitískar ákærur, sem
fulltrúadeildin getur sett fram á
hendur forsetanum.
Forsetinn hefur, einkum á síð-
ustu árum, orðið æ mikilsverð-
ari liður í stjómarfarinu og
valdamikill. Hann er valinn af
þar til kosnum kjörmönnum til 4
ára í senn og má endurkjósa
hann, en það er venja, að sami
maður sje ekki forseti lengur en
2 kjörtímabil. Forsetinn hefur,
eins og sambandsstjórnin, aðset-
ur í Washington, verður að vera
fæddur í Bandaríkjimum og ekki
yngri en hálffertugur. Hann fær
100 þúsund dollara árslaun og er
fjórðungur þeirra talinn ferða-
kostnaðarfje. Forsetinn, sem að
ýmsu leyti svarar til konungs og
forsætisráðherra í löndum þing-
bundinnar konungsstjórnar — fer
með framkvæmdastjórn ríkisins
og er fulltrúi þess og fyrirsvars-
maður út á við. Afstaða hans og
staða senatsins eru sjerkennileg-
ustu þættimir í amerísku stjóm-
arfari og valda því, að eiginlega
er ekki hægt að segja að þing-
ræði sje þar á evrópuvísu, þótt
lýðræði sje þar mikið lögum sam-
kvæmt.
Þetta lýsir sjer í því, að for-
setinn er ekki einungis óafsetjan-
legur, en einnig þannig settur, að
hann ber eiginlega ekki stjórnar-
farslega ábyrgð gagnvart þinginu
og það getur ekki haft áhrif á
hann eða komið fram ábyrgð á
hendur honum nema með mála-
rekstri, þar sem fulltrúadeildin
kærir og senatið dæmir, en þarf
þó tvo þriðjunga deildarinnar til
þess að kveða upp áfellisdóm. For-
setinn hefur sjer til ráðuneytis
10 ráðherra, sem hann útnefnir
sjálfur án íhlutunar þingsins og
eru þeir embættismenn hans,
bera ábyrgð gerða sinna gagn-
vart honum einum, en ekki þing-
inu, og mega meira að segja ekki
vera þingmenn eða sitjá á þing-
fundum.
Þetta snertir alt saman stöðu
forsetans, sem yfirmanns fram-
kvæmdavaldsins. Hinsvegar er
hann lögum samkvæmt alls ekki
aðili löggjafarvaldsins, það er ein-
göngu hjá þinginu og þar sem
hvorki forsetinn nje ráðherrar
hans — og að vísu engir em-
bættismenn — mega sitja á þingi,
getur hann lítil áhrif haft á lög-
gjöfina beinlínis (nema ef hann
er áhrifamikill foringi meirihluta-
flokks). Það eru þingmennirnir,
sem öllu ráða einir um löggjöf-
ina og frumvarpafjöldinn er afar
mikill. Rjett fyrir stríðið komu t.
d. fram á einu þingi 27500 frum-
vörp, þar af 20 þúsund í fulltrúa-
deildinni. En þessi frumvarpa-
fjöldi er síaður eða skorinn niður
í stórum stíl í nefndum og kem-
ur aldrei til umræðu.
Að nokkru Íeyti er samt sam-
starf milli forsetans og senatsins,
þannig að forsetinn, getur haft
áhrif á löggjöfina og senatið á
framkvæmdastjórnina. Forsetinn
hefur sem sje frestandi neítunar-
vald við lögum þingsins. Ef hann
í stað þess að skrifa undir þau,
endursendir þau þinginu innan 10
daga frá samþykt þeirra ná þau
ekki fram að ganga nema tveir
þriðjungar beggja deilda sam-
þykki þau á ný. Forsetinn getur
einnig kvatt til aukaþings þegar
hann vill, aðra hvora deildina eða
báðar. Hann getur einnig frestað
þingfundum, en aldrei komið á
þingrofi. Senatið hefur aftur á
móti hönd í bagga með fram-
kvæmdavaldi forsetans, þannig,
að hann getur ekki gert samn-
inga við erlend ríki án samþykkis
11
-pTE
3G
Simar. 819, 1850, 2319
Pósthólf 427
Simnefni:
Tóbak
Tóbaksverslun
Tobaccoco
Selur allskonar:
Neftóbak. Munntóbak, Reyktóbak, Vindla, Cigarettur,
Eldspýtur, Reykjarpípur. Tóbaksáhöld,
Sælgæti, Súkkulaði.
Einkaumboð fyrir:
British American Tobacco Co. Ltd, London, \
Crosse & Blackwell Ltd. London,
C. J. von Houten & Zoon Weasp,
Burk & Braun, Cottbus.
Umboð og einkaumboð fyrir:
Brödr. Braun, C. W. Obel, E. Nobel, Chr. Augustinus,
A. M. Hirscprung & Sönner o. fl. firmu i Kaupm.höfn.
Stærsta sjerverslun landsins
í Tóbaks- og Súkkulaðivörum.
3E
þess og verður oft að taka tillit
til þess um embættaveitingar.
Það er loks einkennilegt um
stjórnar og þingskipulag Banda-
ríkjanna, að hæstirjettur hefur
einskonar yfirumsjón með lög-
gjafarstarfi þingsins og getur af-
numið lög, sem honum þykja
koma í bága við anda eða bókstaf
stjórnarfars ríkisins og grund-
vallarlaga. Jafnframt hverjum for-
setaskiftum fara einnig venjulega
fram embættismannaskifti í stór-
um stíl, t. d. sendiherraskifti er-
lendis — og í öll helstu embætti
eru skipaðir fylgismenn forsetans
og flokks hans. Flokksveldið ræð-
ur.
Kanada þingið.
Þingskipulag og stjórnarfar
Ivanada hefur orðið fyrirmynd
stjórnarfarsins í öðrum sjálf-
stjórnarlöndum innan bretska
heimsríkisins og því rjett að at-
huga það nokkuð. Fulltrúaþing
var fyrst stofnað í landinu 1774,
er landið, sem áður var frönsk
nýlenda, komst undir breskt yf-
irráð 1763. En 1867 komst á
það sambandsskipulag, sem enn
gildir og var þess minst hátíð-
lega fyrir nokkru og komu ís-
lendingar í Winnipeg þá m. a.
fram með sýningu hins foma Al-
þingis, sem mikla athygli vakti.
Kanada ræður raunverulega sjálft
öllum málum sínum, þótt nokkrir
málaflokkar sjeu taldir sameigin-
leg mál þess og Bretlands og
æðsti maður landsins sje lands-
stjóri útnefndur af Bretakonungi.
Þingið er í tveimur deildum. í
annari, senatinu, sitja 96 eða í
hæsta lagi 104 þingmenn, sem
landsstjórinn útnefnir og eiga
þar setu æfilangt. f hinni deild-
inni sitja fuiltrúar kosnir almenn-
um meirihluta kosningum karla
og kvenna í sjerstökum kjördæm-
um í hverju fylki. Hvert fylki
hefur einnig sjerstakt þing og
ráðuneyti og talsverða sjá!f-
stjórn. Kanada hefur nokkra sjer-
staka sendiherra erlendis, auk
sendiherra alríkisins og sjerstak-
an utanríkisráðherra. Ráðherr-
arnir bera ábyrgð gagnvart þing-
inu. Þeir hafa 10 þúsund dollara
árslaun. Það er sjerstakt kana-
diskt skipulag, að leiðtogi stjórn-
arandstæðinga í neðri deildinni
hefur úr ríkissjóði sömu laun og
ráðherrar.
íi'ska þingið.
Þingskipulag írska fríríkisins
(Saorstat Eireann) er eftirtekt-
arvert vegna ýmsra sjerkenna
sem á því eru og vegna stöðu
ríkisins í bretska sambandinu..
Fyrir fslendinga er það einnig
fróðlegt að fylgjast með írskum
málum, vegna þess að frá fornu
fari hafa verið nokkuð náin við-
skifti milli landanna. Samkvæmt
stjórnarskránni frá 16. júní 1922
er í írlandi þingbundin konungs-
stjórn. Konungurinn er Bretakon-
ungur, sem hefur ríkisstjóra i
landinu, en löggjafarþingið (á
keltnesku: Oireacktas), er í