Alþýðublaðið - 04.09.1963, Side 5
*
raun höfundarins og er það tví
mselalaust eitt vinsælasta gam-
anleikritið, sem flýgur nú um
hinn vcstræna lieim. Það fjali-
ar um vandamál gyðingafjöl-
skyldu í Bandaríkjunum.
Leikstjórinn, Helgi Skúla-1
son, er einn leikendanna. —
Þeir eru alls 6. Erlingur
Gíslason, Brynja Benedikts-
dóttir, Pétur Einarsson,
Helga Bachmann og Guðrún
Stephcnsen.
Byrjað var á að sýna lcik-
ritið á Blönduósi 2. ágúst. —
Síðan var farið með það aust-
ur með Norffurlandi og á
Vestfjarðakjálkann. Leikrit-
inu var alls staðar mjög vel
tekið. Á Suffureyri komu t. d.
tveir þriðju hlutar jallra í-
búanna til að sjá leikinn.
Myndin er frá einu atriða
leiksins. Við sjáum Brynju
Ben. og Erling Gíslason í hlut
verkum sínum.
HARÐAR BLAÐADEILURISKOTLANDI:
ÍSLEMZK
TVEIR Ísíendingar, sem dvelj-
ast í Skotlandi, eru ekki sammála
um ágæti íslenzkra efnahags-
mála og menningar, að því er blað-
ið „Scotsman" leiðir í Ijós. Magn- |
ús Magnússon, sonur Sigursteins
Magnússonar forstjóra er búsett-
ur í Skotlandi og er orðinn einn
af þekktustu blaðamönnum þar i
landi. Hann skrifar mjöf lofsam-
lega um hið frjál'sa efnaliagslíf
okkar og ágæti íslenzkrar menning
ar nú á dögum. Jón Baldvin Hanni
balsson er námsmaður í Skotlandi
og mótmælir liarðlega, telur fjár-
festingastefnu okkar fáránlega og
íslenzka nútímamenningu aðal-
lega hræsni.
Ekki er gpít að segja, hvað \
skozkir blaðalesendur telja satt og
rétt, en þeir hafa sannarlega
heyrt báffar hliðar málsins. Magn-
ús birti hina lofsamlegu grein
sína í sl. mánuði og nokkrum dög-
um síðar birti „Scotsman“ langt
bréf frá Jóni Baldvin, þar sem
hann rífur grein Magnúsar niður.
Jón telur það fjarstæðu, sem
Magnús skrifaði, að frjátst fram-
tak sé mjög mikið á íslandi og
bendir á, að hór séu ríkisafskipti
meiri en víðast annars staðar í
Evrópu. Telur Jón þetta stafa m.
a. af blessunarlegri fáfræði ís-
lenzkra íhaldsmanna á stefnu
Syndið 200 metrana. Keppninni
lýkur 15. september.
sinni og grundvallarreglum henn-
ar, en telur að núverandi „íhalds-
stjórn" sé sem óðast að læra í-
haldsstefnuna.
Jón cr grimmari í ummælum
sínum um ástand íslenzkrar menn-
ingar. Hann minnir á, að sagt hafi
verið um Kínverja, að ekki megi
blanda saman fögru yfirskini og
staðreyndum í þeirra málum.
Telur hann þetta ekki síður eiga
við íslendinga, hvað sem vinsam-
legum ferðamanni kunni að virð-
ast.
Sem dæmi nefnir Jón hinar
miklu kirkjubyggingar hér heima.
Eftir þeim mætti ætla, að íslend-
ingar væri trúuð þjóð, en Jón
Baldvin segir, að rúarbrögð séu
raunverulega útdauð á íslandi,
nema við helztu stjórnarhátíðir.
Þessar nýju og frekar óglæsilegu
byggingar (kirkjurnar) standa
tómar árið um kring sem risavax-
ið minnismerki um hina nýríku
hræsni þjóðarinnar og það sem
verra er, hina óskynsamlegu en á-
börandi fjáyVestingarstjefnu.
Jón tekur dæmi úr grein Magn-
úsar og nefnir Þjóðleikhúsið.
Hann spyr, til hvers sé það að eiga
myndarlega byggingu, ef leiksýn-
ingar eru á svipuðu stigi og „þjóð
arcirkus" að því að reksturinn
verði að bera sig. Notar hann
tækifærið og gefur Skotum holl
ráð um Edinbörgarhátíðina, sem
hann telur einnig að muni vera
dauðadæmd, ef hún eigi að bera
sig.
í heild telur Jón Baldvin, að
íslenzk menning hafi aldrei stað-
ið á lægra stigi en nú og- stafi
þetta af þeirri einföldu ástæðu,
að fólk verði að vinna svo lang-
an vinnudag, að ekki sé líklegt
að það hafi nokkurn áhuga á
menningu. Ekki telur Jón þetta
sagt til að gera lítið úr efnahags-
legum framförum á íslandi, sem
þrátt fyrir allt hafi orðið vegna
mikillar vinnu. Til að skapa lif-
andi menningaranda telur Jón
Baldvin þörf á mun meiri jákvæð
um ríkisafskiptum. Segir hann
að lokum, að sama eigi við um
Bretland.
Hlauptu
þér hornin
LEIKFLOKKUR Helga Skúla-
sonar er nú kominn í
bæinn með leikritið, Illauptu
af þér hornin. Fyrsta sýningr
sunnanlands verffur í Kefla-
vík miðvikudaginn 4. septem-
ber. Það er 32 sýningin á land
inu. í Reykjavík hefjast sýn-
ingar á föstudaginn og búast
má viff, að þær standi í þrjár
vikur. Leikritið verður einnig
sýnt í nágrenni bæjarins á
næstunni.
Höfundur Icikritsins cr Neil
Simon, sem er amerískur gyð-
ingur. Þetta verk má kalla friun
ÚTSALA ÚTSALA
Herraskyrtur — Kvenblússur
Herrabolir, lítil númer — Telpuúlpur
Drengja og telpnanáttföt
Barnapeysur o. m. fl.
AH4 á SiálfvsrSL
VÖRUHÚSIÐ
Sætúni 8 — Sími 24-000.
Framh. af 1 síðu
isfirði komnar yfir 20 þúsund j
tunnur. Hafaldan hefur saltað um '
23 þúsund tunnur og Ströndin um
22 þúsund íunnur.
Bátarnir hafa verið að koma
með síld í morgun og í dag og
hefur bræðslan ekki undan að
bræða. Nú er verið að landa hér
í norskt flutningaskip, sem fer
með síldina í bræðslu til Siglu-
fjarðar.
AIls mun vera búið að salta hér
í rúmlega 105 þúsund tunnur.
Gunnþór.
Eskifirði 3. september.
Sjö skip komu með samtals
3700 mál síldar í morgun. Fór það
allt í bræðslu, þar sem söltun hér
er lokið.
Síldarbræðslan hefur nú tekið
á móti rúmum 55 þúsund málum
og eru síldargeymar hér að fyll-
ast. Afköst bræðslunnar á sólar
hring eru um 2500 mál. — Arnþór
Reyðarfirði 3. september.
Hér er bullandi síld og allar
þrær orðnar fullar. í morgun
komu fjórir bátar með um 1500
mál síldar. Frá því kl. 11 á sunnu
daginn hafa borizt hingað um 8000
mál. Síldarbræðslan hér getur
brætt 14-1600 mál á sólarhring.
Hún hefur nú brætt í sumar um
50 þúsund mál. Hér er gott veður,
en þoka á miðunum. — Guðlaugur
Neskaupstað 3. september.
Þrír síldarbátar komu hingað
í morgun með samtals 2500 mál
og nú eru aðrir þríi bátar á leið
inni hingað. Það eru Stefán Ben
með 900 mál, Gullfaxi með 1300
mál og Þráinn með 1100 mál.
Allar þrær voru fullar, en ein
tæmist í kvöld og getur hún tek-
ið tæplega 3000 mál. Bræðslan
hér getur brætt um 4500 mál á
GÓlarhring.
í dag er saltað í sérverkun hjá
Sæsilfri, en hin plönin eru hætt
söltun. Síldin, sem hingað bersi;
er mjög sæmileg. Hin kunna Ausk
fjarðaþoka liggur nú hér yfir.
Garffar ,
Framhald af 1. síffu.
á.m. Austfjarðahafna, ef nægui’
flutningur er fyrir hendi og eftk’
því sem aðstæður leyfa.
Eimskipafélagið væntir góðra
undirtekta landsmanna við þessu
tillagi til bættrar þjónustu yið
ströndina.
Sandra Dee, Hollywood-leik*
stjarnan kunna, sem nú er 21 ára
að aldri kveðst nú vera orðin léicV'
á þeim dúkku-hlutverkum, sem
hún hefur hingað til haft á hendi.
— Héðan í frá, segir Sandra
Dee — má fólk búast við því aðf
sjá mig með sígarettu i munnin-
um og glas í liendi á kvikmynda»
tjaldinu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 4. sept. 1963 5