Alþýðublaðið - 15.09.1963, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.09.1963, Blaðsíða 7
HIN' SIÐAN . Danny Kaye Norðurlanda UNGUE norskur listamaður, Per Asplin, hefur að undanförnu verið að skapa sér „nafn“ á hinu kunna Savoy-hóteli í Lundúnum. Þar cr hann á tveggja vikna samningi. Asplin, sem oft er kallaður „Danny Kaye Norðurlanda" kem- ur fram í hinum ólíkustu gervum og hefur í frammi margvísleg at- nði til skemmtunar og aðhláturs. Norðmenn eru mjög hrifnir af Asplin og Englendingar virðast einnig eetla að verða það. Ef til vill fáum við íslendingar einnig tækifæri til að hrifast. PEE ASPLIN HUNDUM ÚTRÝMT MEXÍKANSKA stjórnin hefur haft á prjónunum áætlanir um að útrýma fjórum milljónum hunda í landinu til að vinná bug á hinu skæða hundaæði. Áætlanir þessar hafa hins vegar mætt mikilii and stöðu mexíkanska dýraverndarfé- Iagsins. í tilmælum til forsetans hefur dýraverndai-félagið farið þess á leit, að hundarnir verði ekki drepnír heldur bólusettir gegn hundaæði. „Það ætti ekki að verða dýrt“, segir talsmaður félagsins. „Aðeins þrjú pesos á hund“. Ostát Á Narðurlöndunum er cetiuV' vinsæl og vel látin fæðutegund, en sömu sögu er hreint ekki alls staðar að segja. í Kína, Japan, Indlandi, Pakistan Og Burma er til dæmis mjög lítið rnn ost sem fæðu. Milljónir af íbúum þessara landa, já, velflestir þeirra, hafa aldrei á ævinni smakkað ost. j í Tíbet er snæddur mjög sér i kennilegur ostur, sem nefna ' mætti súrmélost. Hann er bæði einkennilegur að lögun og gerð. j Súrmélosturinn á að vera grjót harður og þurrkast í sólarljósi eða ofni. Oft eru ostar þessir skornir níður í hluta. göt gerð á hlutana og þeir þræddir upp á band. Á þennan hátt er auðvelt að flytja súrmélostinn, til dæmis er algengt að hann sé festur um hálsinn á hestum og öðrum áburð ardýrum, þegar hann hefur ver ið þræddur á band. Áður en súrmélosturinn er borðaður er hann bleyttur upp og rifinn. Þykir mönnum þetta hin mesta kostafæða og éta súr mélsostana af engu minni lyst en við hér heima á íslandi Flóabús ostana okkar. UNGI maðurinn, sem við sjáum á þessari mynd, er 17 ára gamall og varð fyrir skömmu þes» heiðurs aðnjótandi að verða tekinn í hljómsveit jazzleikarans fræga Count Basie. Count Basie, seirs verið hefur í hljómleikaferð í Danmörku, heyrðia unga manninn, Niels Henning Örsted, leika ú kontrabassann sinn á jazzhátíð í Landskrona og varð svo hrifinn af hæfileikum unga mannsins að hannr réði hann til sín sem bassaleikara. Það er hinn mesti heiður að leika með Count B asie, því að hann er einn fremsti jazzleikari, sen* nú er uppi og velur aðeins til sín úrvalsmenn. Örsted hefnr leikið á bassa frá tólf ára aldri og náð • á hann framúrskarandi leikni. Bud Powell, Dexter Gordon, Sahib Shihab, Lucky Thompson, Quincey Jones og margir aðrir jazzmúsikkantar, sem hafa heyrt til Örsted segja, að hann sé tvímælalaust meffa* fremstu bassista, sem fram hafa komið í sögu jazzins hin síðari ár. Þeir umræddustu í síbasta mánuði UMTÖLUÐUSTU menn í heiminum síðastliðinn mán- uð, þ. e. a. s. ágústmánuð 1963, voru eftirtaldir menn. 1. Krústjov, Sovétr. 2. J. F. Kennedy, Bandar. 3. De Gaulle, Frakklandi. 4. Rusk, Bandar. 5. Diem, Suður-Vietnam. 6. Tító, Júgóslavíu. : I } 7. Nethru, Indlandi. 8. Ben Bellað Alsír. 9. F. Youlou, Kongó-Iýð- veldinu. 10. Lord Home, Bretlandi. 11. Wennerström, Svíþjóð. 12. Adenauer, Vestur- Þýzkalandi. 13. U Thant, Burma. 14. Macmillan, Bretl. 15. G, Schröder, V-Þýzkal. 16. Gromyko, Sovétr. 17. Ngo Dinj Nhu, Suður- Vietnam. 18. C. Lodge, Bandar. 19. Kennan, Banda. 20. Abrahams, S.-Ameríku rikjasambandinu. Api rænir ungbarni Taminn api f úthverfi Kalkútta hélt fyrir nokkru tugum manna í orðlausri angist, er hann kleif upp í trjágrein í tuttugu metra hæð frá jörðu með ungbam í fanginu. Barninu hafði hann rænt frá foreldrum þess, er þau voru í svefni. Apinn er heitir Buri og er mjög vinsæll af fólkinu í nágrenninu, smeygði sér inn í svefnherbergi árla morguns, tók ungbarnið úr vöggu sinni og klifraði upp i upp áhaldstréð sitt. Brátt safnaðist múgur manns undir trénu og reyndi að lokka Buri niður en allt kom fyrir ekki. Maki Buris kom nú á vettvang og tók þátt í gamninu, en þegar Buri tók undir sig stökk og fór að hlaupa á milli trjátoppanna, fór fyrst fyrir alvöru að setja hroll að áhorfendunum á jörðu niðri. Buri lenti þó um síðir á jörðu, lagði frá sér bamið ofur varlega án þess að því hefði orð ið nokkuð meint, og hvarf að því búnu upp í tréð til maka síns. Þótti mörgum sem apinn glotti við eftir aðfafijrnar og raddir voru um, að þetta væri ábending til foreldra að gæta betur barna sinna. En áreiðanlega gerði apinn þetta af engum illum hvötum þvi að hann hefur aidrei áreitt böm í nágrenninu. Sunnudagur 15. septcmber 8,30 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir. 9.10 Morguntónleikar. — (10.10 Veðurfregnir). 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur: Séra Óskar J. Þorláksson. Organgleikari: Dr. Páll ísólfsson). , 12.15 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdegistónleikar. 15.30 Sunnudagslögin. — 16.30 Veðurfregnir). 17.30 Barnatími (Helga og Hulda Valtýsdætur): a) Leikrit: „Túlútta og Matrónella í hjóireiðaferð1 ‘eftir Bablb is Friis Bostad. — Leikstj.: Baldvin Halldórsson. b) Saga: „Runki og Ribbi“ eftir Beverly Cleary. — Ólöf Jóns- dóttir þýðir og les. ■; 18.30 Dísa mín, góða Dísa mín“: GÖmlu lögin sungin og leikin. 18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Létt hijómsveitarverk eftir Tjaikovsky. Offenbaeli og Smfr» tana (Hans Carste stjórnar hljómsveitunum, sem leika). 20.15 Albert Luthuii; fyrra erindi (Óiafur Ólafsson krinstniboðí). 20.40 Frá tónlistarhátiðinni í Schumann, Brahms og Richard Straúss. Við píanóið: Giinthér Weissenborn. 21.10 í borginni, — þáttur í umsjá Ásmundar Einarssonar blaða- manns. 22.00 Fréttir og veðurfr. — 22.10 Danslög. — 23.30 Dagskrárlok. Kvölddagskrá mánudagsins 16. september 20.15 Um daginn og veginn (Axel Thorsteinsson rithöfundur). 20.30 íslenzk tónlist: „Isiandia" eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. (Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur. Stjórnandi: Bohdan 11 a Wodiczko). 20.40 Erindi: Kennið þeim (Séra Helgi Tryggvason á Miklábæ). 21.15 Píanótónleikar: Dinu Lipatti leikur verk eftir Bach. 21.30 Útvarpssagan: „Herfjötur" eftir Dagmar Edquist; XIII. , (Guðjón Guðjónsson). !'l ' — 15. sept. 1963,,, 7,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.