Alþýðublaðið - 15.09.1963, Blaðsíða 8
mxm::::::::::::::;
ALLUR heimurinn hefur lesið
minningar Sorayu prinsessu! En
heima í Persíu er bannað að gefa
út ævisögu hinnar óhamingju-
sömu keisaraynju. En núverandi
keisaraynja, Farah Diba, hefur
allt um það getað lesið frásögnina
af örlögum hinnar fögru drottn-
ingar, því að Farah les jafnan
frönsk blöð til að halda samband-
inu við Frakkland, sem er henni
sérlega hjartfólgið.
Soraya segir frá hinum erfiðu
árum í Persíu og landflóttanum,
frá stjórnmálaflækjunum, sem
smám saman leiddu til þess, að
hjónaskilnaður varð óumflýjanleg
ur. Um þær mundir, er ævisaga
Sorayu birtist í franska blaðinu
France Soir brauzt út bylting í
Teheran. Það var í júní. Farah
Diba, sem sat heima í höllinni og
las France Soir-blaðið sitt við
morgunverðarborðið var í ná-
kvæmlega sömu aðstöðu og Sor-
aya hafði verið tíu árum fyrr.
Uppreisnir í Austurlöndum eru
oft blóðugar og ofsalegar. Keis-
arahöliin í Teheran er ekkert
heilagt vé. Þúsundir manna, vopn-
aðir löngum hnífum og sveðjum
óðu þennan dag til keisarahallar-
innar og æptu: Drepum keisar-
ann! Uppreisnarmönnum var
helzt í hug að myrða keisarann og
fjölskyldu hans í nafni Allah.
Keisarinn var alvarlegur og á-
hyggjufullur á svip þennan morg-
un. Það var búizt við óeirðum.
Chiitamir, (strangtrúaður sértrú-
arflokkur Múhameðstrúarmanna)
sökuðu stjórnina um að bregða frá
boðum Kóransins, m. a. með því,
að keisarinn hefði veitt konum
kosningarétt. Farah Diba er auk
þess formaður samtaka, sem berj-
ast fyrir auknum kvenréttindum
í landinu. Margar konur í Persíu
eru ambáttir samkvæmt boði Kór-
ansins.
Þegar Farah fer inn í barna-
herbergið til að huga að Reza litla
sj'ni; sínum, heyrir hún fyrsta
skotið ríða af. Hún hringir þegar
til eiginmanns síns, sem reynir
að róa hana og lofar að skýra
þetta alít fyrir henni, þegar hann
komi til hádegisverðar.
Farah gengur út á svalir og sér
reykina frá húsunum, sem upp-
reisnarmennirnir hafa kveikt í. í
gegnum vélbyssudyninn heyrir
hún neyðaróp fólksins.
Fyrstu fréttimar, sem berast til
hallarinnar eru hræðilegar. Tveir
lögreglumenn hafa verið brenndir
lifandi. Margar konur hafa verið
myrtar á götunni vegna þess, að
þær hafa gengið um meðal fólks
án þess að hafa blæju fyrir andlit-
inu. Margir voru særðií.
Þegar keisarinn kemur heim til
hádegisverðar, finnur hann konu
sína í bamaherberginu hjá Reza
prins og hinni þriggja mánaða
gömlu prinsessu Farahnaz. Keis-
araynjan er róleg, og keisarinn
segir, að......
Samt biður hann eiginkonu sína
að yfirgefa höllina ámamt með
börnunum og dveljast á óhultum
stað þar til friður sé kominn á.
En Farah færist undan. Hún vill
ekki flýja frá skyldum sínum. —
Hún veit;>að hún er tákn í huga
þjóðarinnar. Meðan barizt er á
götUnum í Teberan, er það skylda
hennar að vera kyrr.
Uppreisnin stóð í tvo daga, og
allan þann tíma stóð Farah við
hlið keisarans. Hann hefur sagt
vinum sínum, að trúfesta hennar,
ÞAÐ var sár sorg á báða bóga, þegar Pérsfukeisart skildi við
Sorayu, drottningu sína. Keisarinn gitfist síðar, eins og kunnugt er,
Farah Ðiba, -sem þá var ung stúdína £ París, — en helzt lítur út fyr-
ir, að hin unga frú hafi getað gefíð k-eisaranum gleðina aftur. Hún
hefur að minnsta kosti gefið honum son og dóttur og páfuglakrún-
unni er borgið.
Sál Sorayu virðist aftur á móti ekki hafa öðlazt þann frið, sem
hún leitar. Þótt hún flakki land úr landi, finnur hún ekki hamingj-
una, og hugurinn virðist enn heima í Persiu.
gefið keisaranum son — og hún.
hafði enga möguleika á að segja
nei við bónorði keisarans! - - ,
Það var engan veginn auðvelt
hlutverk, sem hinni ungu stúdínu
var falið, — að setjast £ sæti So-
rayu við hlið keisarans. Soraya
var með afbrigðum vinsæl í Pers-
íu og þjóðin vissi gjörla, hve sár-
an keisarinn saknaði hennar. Höll-
in i Teheran hafði verið tóm og
drungaleg, og keisarinn var í
hæsta máta andvígur því að gift-
ast að nýju, þótt hann neyddist
fyrr eða síðar til að taka sér nýja
eiginkonu. Lögum samkvæmt má
hann eiga fjórar konur en hann er
alinn upp samkvæmt vesturlenzk-
um siðum og kann ekki við að
nota sér rýmileika Kóransins, jafn
vei ekiri- fallast á þá þrautaiend-
ingu.
Samt tókst Farah vel upp í hinu
erfiða hlutverki keisaraynjú Pers-
íu. Kannski hefur. henni tfekizt á
margan .hátt betur upp en Sorayn?
Hin erfiða fjölskylda keisarans,
sem er oft og tíðum afskiptasam*
ari en góðu hófi gegnir, hefur al-
veg fallið fyrir kvenlegum töfrum
Farah,. sem virðist kæn að sigla
milil skers og báru. Diba þýðir
líka silki. Fólkið ann henni kanh-
ski fyrst og fremst vegna þess, að
hún hefur gefið landi sínu krón-
prins en einnig sökum þess, að
hún er ein af því.
Farah vinnur að því eins og
hún frekast má að afnema hið
þjóðfélagslega ranglæti, sem enn
er við lýði í Persíu Hún og keis
arinn hafa sama markmið: að
Persía verði nútíma lýðræðisriki,
þar sem borgararnir búi við rétt-
arfarslegt öryggi og möguleika til
menntunar. Þjóðfélagslegur áhugi
Farah er ekki aðeins orðagjálfur,
og hlutverk hennar sem keisara-
ynju er ekki aðeins að ala börn.
Þegar hörmungar hafa dunið yfir
Persíu, hefur þjóðin kynnzt því,
að hin unga keisarafrú tekur inni-
legan þátt í sorg þeirra og áhyggj-
um. Hún hefur megnað að veita
hinum syrgjandi yl samúðatinnar,
sem getur verið meira virði en
efnahagsaðstoð. ...... i
Út á við hefur hún einkum kom
iðfram sem hin unga keisaraynja,
sem kemur af stað nýrri hártízku.
En jafnvel á því svíði hefur hún
verið til mikils gagns fyrir Persíu.
Eins og Jackie Kennedy hefur hún
gert mikið til að auglýsa land sitt
óg þjóð. Fögur kona getur haft
meiri áhrif á stjórnmálin, en ætla
mætti.
í einkalífi er henni lýst sem gáf-
aðri og Iistrænni konu. Henni er
tign og virðuleiki i blóð þorinn.
Hún er fulltrúi nýrrar kvennakyn-
slóðár í Persíu. Hún er vel fnennt-
uð, — en það er óalgengt meðal
persneskra kvenna. Hún er áhuga-
söm um íþróttir, leikur köríubolta
og tennis, ríður á hestum og lelk-
ur sér á vatnaskíðum o. s. frv.'
Hún hefur áhuga á listum svo
sem tónlist, — bæði sigildri og
jazz. Hún er prýðilegur píanóleik-
ari, og nú hefur hún fengið áhuga
á ljósmyndun. Fyrst og fremst tek-
ur hún auðvitað mynd af bömum
sínum.
Skyldur hennar eru márgvis-
legar og vinnudagurinn langnr.
Farah Diba segir sjálf, að það sé
fyrst nú,
hugrekki og ákveðni hafa vakið
hjá sér aðdáun. Og þjóðin spyr
sjálfa sig, hvemig Soraya hefði
brugðizt við undir sömu kringum-
stæðum. Hefði hún talið keisar-
ann á að flýja til útlanda og hætta
þar með á það, að þeim yrði ekki
afturkvæmt til Persíu?
Líf Farah Diba með keisaran-
um kann að virðast eins konar
Öskubusku-ævintýri, en í raun-
inni er sú saga miklum mun ó-
rómantískari en hin óhamingju-
sáma ástarsaga Sorayu og kéisar-
ans á páfuglshásætinu.
Farah var valin úr hópi margra
kandídata, vegna ættar hennar,
uppeldis og líkinda á að hún gæti
HBkl _
jív v<; <•' j v z
v<
•' •. •
;
; * ■
sém sér hafi skilizt til
fullnustu, að keisaraynjuembætt-
ið sé fyrst og fremst, strit.
Reza prins verður alinn upp
samkvæmt vesturlenzkum siðum.
Keisaraynjan hefur lagt stund á
barnasálfræði, en samt seti áður
fær hún lítið að leggja til mál-
anna varðandi uþpeldi sonar síns,
bg móður og sonur fá sjaldán að
eyða löngum tíma saman. í'j
Þeim mun glaðari várð Farah,
þegar prinsessan fæddist., Hún
fær að hafa hana meira út af fyr-
ir sig óg umráð yfir uppeldi hénn-
■■yy*;;-'.
Keisarhjónin af Períu.
$ .15. sept. 1963 — ALÞÝÐUf&AÐIÐ