Alþýðublaðið - 15.09.1963, Síða 10
Rltstjóri: ÖRN EIÐSSON
Ársþing FRÍ
23.-24. nóv.
ÁESÞING Frjálsíþróttasam-
bands íslands fer fram í Reykja-
vik dagana 23. og 24. nóvember
1963. Tillögur og lagabreytingar,
sem sambandsaðilar œttu að
leggja fram, þurfa að berast stjóm
FRÍ pósthólf 1099 í síðasta lagi 2
vikum fyrir þingið.
Leifur Magnússon seifi
Nýtt íslandsmet
í hæðaraukningu
; Sunnudaginn þann 8. þ.m. kl.
37.50 hóf Leifur Magnússon verk-
fræðingur, flug frá Sandskéiði í
svifflugunni TF-SAM. Var hann
Fræðslufundur um
't DAGANA 20.-21. sept. nk. verð-
rir efnt til fræðslufunda um skóla
iþróttir fyrir íþróttakennara.
:■ Fundirnir fara fram í Haga-
skólanuin en verkleg kennsla í í-
ííróttahúsi Háskóla íslands og í
söngstofn Melaskólans.
% Erindi flytja Árni Guðmunds-
Son, Benedikt Jakobsson og Þor-
steinn Einarsson.
fe Verklega kennslu annast M£n-
£rva Jónsdóttir með aðstoð St.
Edelstein, Stefán Kristjánsson og
Gnðrún Lilja Halldórsdóttir.
■Sýndar verða og skýrðar margs
konar fræðslumyndir um skóla-
íþróttir.
Fyrsti fundur hefst föstudaginn
20. sept. kl. 9 í Ilagaskólánum.
dreginn með vindu í um 985 feta
(300 metra) hæð og sleppti þar
dráttartauginni Eftir það hækkaði
Leifur flugið í bylgjuuppstreym i
allt upp í 5600 metra (18.368 fet)
samkvæmt hæðarmæli flugunnar.
Við endurmælingu sjálfritandi
þrýstingsmælis og samanburð á
loftþyngd og hita í þessari hæð
samkvæmt niðurstöðum hálofts-
stöðvar Veðurstofu íslands, reynd
ist hæð Leifs yfir sjávarmáli hafa
verið mest 18.275 fet (5570 m.) og
hækkunin eftir að dráttartaug var
sleppt því 16.720 fet (5096 m.)
Svtfflugnefnd Flugmálaféiags ís
lands hefur staðfest þetta ieui
nýtt íslandsmet í hæðaraukningu
þar sem uppfyllt voru öll skil-
yrði Ferdération Aero nautique
Internationale. Ennfremur hefur
nefndin staðfest flugið sem hæft
fyrir „Demant“, er það því fyrsta
„Demant“-flug sem staðfest er á
íslandi.
Fyrra íslandsmet í hæðaraukn-
ingu setti Þórhallur Filippusson-
framkvæmdastjóri, hinn 1. ágúst
1961 og nam hæðaraukning hans
15.514 fetum (4730 m.)
íslenzkt hæðarmet (absolut) í
j svifflugi er 5650 m. (18.532 fet)
sett af Helga Filipppussyni for'
stjóra hinn 2. október 1948.
KNATTSPYRNA ERLENDIS
Reykjavíkur-
móti frestab
Reykjavíkurmótinu f frjálsum £■
þróttum, sem hefjast átti á Laug-
ardalsvellinum í gær var frestað
vegna óhagstæðs veðurs. Ekki
hafðí vérið ákveðið í gær, þegár
blaðið fór í prentun, hvort mótið
hæfist í dag, þar sem veðurspá
var óhagstæð, en frá því mun
skýrt í hádegisútvarpi.
| Mikið fjör og spenningur er í
tieildarkeppni hinna ýmsu landa
>ó að íslenzku deildakeppninni sé
okið fyrir nokkru. Við munum nú
ikýra frá því hvernig staðan er í
lokkrum Jöndum.
Síðustu f jórar
r
greinar Ml í
rrjálsum 22.
september
Keppni í þeim greinum Meist-
iramóts íslands í frjálsum í-
iróttum, sem ólokið er, þ. e. 4x-
i00 og 4x400 m. boðhlaupi, 3000
n. hindrunarhlaupi og fimmtar-
>raut fer fram á Melavellinum
mnnudaginn 22. september nk.
ig hefst kl. 14.
16 umferðum er nú lokið í
dönsku I. deildakeppninni og Es-
bjerg hefur forystuna, er með
fjögur stig umfram næsta lið. Es-
bjerg varð meistari í fyrra.
Keppnin í Noregi er mun harð
ari, þar er Lyn í efstá sæti eins
og er með 21 stig, en Brann er
skammt undan með 19 stig.
Toulouse er efst' í Frakklandi,
en síðan koma Nimes, Racing,
Monaco og Sedan. Aðeins tveim
umferðum er lokið í Frakklandi.
í Júgóslavíu hafa verið leiknar
4 umferðir og þar er Rauða stjarn
an efst með 7 stig, síðan Vojvodina
með 6 stig og þá Dynamo, OFK
Belgrad og Partizan, sem er núver
andi meistari með 5 stig.
Ungverjar hafa leikið sex um
ferðir og Dozsa er efst með 9
stig. en Komlo er einnig með 0
stig.
í rússnesku keppninni er Dyn
amo Tyflis éfst með 34 stig, en
síðan koma Spartak Moskvu og
Dynamo Moskvu með 33 stig.
Síðasfi
dagurinn
er / dag
SÍÐASTI dagur norrænu sund-
keppninnar er í dag. Þátttaka ís-
lendinga í keppninni að þessu
sinni hefur verið sæmileg, en þó
ekki eins mikil og forráðamenn
keppninnar bjuggust við fyrir-
fram.
I dag eru allir sundstaðir opnir
og mjög góð þátttaka í dag getur
haft úrslitaþýðingu. Við. skulum
vona, að sem flestir íslendingar
geri skyldu sína og syndi 200
metrária. Þetta er ekki erfitt, það
er ekkert atriði að synda hratt,
aðalatriðið er að ljúka sundinu.
Sunddeild KR skorar á alla KR-
inga og aðra Reykvíkinga að
synda nú þegar 200 metrana í nor
rænu sundkcppninnl.
Það er ekki eftir neinu að bíða
þvi að keppninni lýkur í kvöld.
Frá Gagnfræðaskólum
Nemendur mæti í skólunum mánudaginn 16. þ. m., kl. 4—7
síðdegis, til skráningar (1. og 2. bekkur) og til staðfestingar
umsóknum sínum (3. og 4. bekkur).
l. BEKKUR.
Skólahverfin verða hin sömu og gilda fyrir barnaskólana.
Fyrsti bekkur gagnfræðastigs verður nú í Austurbæjar-
skóla, Hliðaskóla og Laugalækjarskóla. Allir nemendur 1.
bekkjar, búsettir í Melaskólahverfi, sækja Hagaskólann.
II. BEKKUR:
Nemendur mæti hver í sínum skóla.
III. bekknr LANDSPRÓFSDEILDIR:
Þeir sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Hagaskóla, Vogaskóla,
og Réttarholtsskóla, mæti hver í sínum skóla. Nemendur
frá Lindargötuskóla komi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
en nemendur frá Langholtsskóla í Vogaskóla, Aðrlr er sótt
hafa um landsprófsdeild, komi í Gagnfræðaskólann við Von
arstræti.
m. bekkxir ALMENNAR ÐEILDIR:
Nemendur mæti hver í sínum skóla, með eftirtöldum und-
antekningum: Nemendur frá Laugarnesskóla komi í Gagn-
fræðaskólann við Lindargötu. Nemendur frá Miðbæjarskóla
í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og nemendur frá Langholts
skóla komi í Vogaskóla.
III. bekkur VERZLUNARDETLDIR:
Nemendur frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Miðbæjarskóla
og Laugarnesskóla komi í Gagnfræðaskólann við Lindar-
götu. Nemendur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla. Aðrir
umsækjendur um verzlunardeild mæti þar, sem þeir luku
unglingaprófi.
III. bekkur FRAMHALDSDETLBTR:
í Gagnfræðaskólann við Lindargötu, komi nemendúr frá
þeim skóla og einnig frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
Laugamesskóla og Réttarholtsskóla. í Hagaskóla, nemend-
ur frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og Miðbæjarskóla, og
í Vogaskóla nemendur frá Langholtsskóla.
III. bekkur VERKNÁMSDEII DIR:
Hússtjórnardeild: Umsækjendur komi í Gagnfræðaskólann
við Lindargötu.
Sanma- og vefnaðardcild: í Gagnfræðaskólann við Lindar-
götu komi umsækjéndur, er unglingaorófi luku, frá þeim
skóla og frá Miðbæjarskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
og Hagaskóla. Aðrir umsækjendur, un sauma- og vefnað
ardeild komi í Gagnfræðaskóla verkn''ms Brautarholti 18.
TrésmíSadeild: í Gagnfræðaskóla verknáms komi umsækj-
endur, er luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, Laugarnesskóla, Gagnfræðaskólanum við Lindar-
götu, Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Aðrir umsækjendur
um trésmíðadeild komi í ■ Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
Hringbraut 121.
JárnsmiSa- og vélvirkjadeild: Umsækjendur mæti í Gagn-
fræðaskóla verknáms.
Sjóvinnudeild: Umsækjendur koml í Gagnfræðaskólann við
Lindargötu.
Umsækjendur 3. bekkjar hafi með sér prófskírteini.
IV. BEKKUR:
Unlsækjendur mæti þar, sem þeir hafa sótt um skólavist.
Nauðsynlegt er, að nemendur mæti eða einhver fyrir þeirra
hönd, annars eiga þeir á hættu að missa af skólavist.
Kennarafundur verður í skólunum sama dag kl. 2 e. li.
Fræðslustjórinh í Reykjavík.
X0 15. sept. 19§3 — ALÞÝÐUBWÐIÐ