Alþýðublaðið - 15.09.1963, Side 16
«t
r»
44. árg. — Sunnudagur 15. september 19B3 — 198. tbl.
r
Áætlunarflug
tll 27. sept.
-Síi. VÐIÐ spurðist fyrir um Fær-
eyjaflugið hjá Flugfélagi íslands í
-*?ær, en ekkert nýtt var að frétta
af málinu. Félagið mtui halda
uppi áætlunarflugi sínu til Fær-
eyja samkvæmt áætlun þeirri, sem
eerð var í vor og gildir til 27. sept
ember n. k. Hvað þá tekur við er
enn óvíst.
Félagið tók skýrt fram, að hér
iiefði í raun og veru verið um til-
faúna- eða reynsluflug að ræða,
«em gæfi m. a. hugmynd um,
4iver.su mikilla flutninga mætti
■.vænta á þessari flugleið. Fram-
hald Færeyjaflugsins fer að veru-
legu leyti eftir því, hvemig flug-
vallarmálum Færeyinga miðar á-
fram. Flugbrautin þar er nú 1100
metra löng, en þarf að vérða 1500
metrar til þess að millilandavélar
F í geti lent þar með góðu móti,
Ef þeim 400 metrum, sem á vant-
ar, verður bætt við, er Flugfélagi
íslands ekkert að vanbúnaði að
halda áfram Færeyjaflugi sínu,
en vitanlega eru þær verklegu
framkvæmdir fyrst og fremst mál
jFæreyinga og dönsku stjómarinn-
ar.
A miðvikudag bauð
menntamálaráðherra danska
ballettflokknum og fteiri
gestum til síðdegisdrykkju
í Ráðherrabústaðnum. Þá
bauð Þjóðleikhúsið hinum
erlendu gestum I ferð til
Þingvalla sl. föstudag á
samt danska sendiherranum
og eiginkonu hans. í Valhöll
snæddu gestirnir hádegis
verð, Þjóðleikhússtjóri á
varpaði þá og farar.sljóri
Dan Louis Pet^rsen þakk
aði. í kvöld verður svo
haldið kveðjuhóf í Þjóðleik-
húskjallaijanum fyrir gest-
ina. Þeir fara utan á morg-
un með leiguflugvél frá
Flugfélagi íslands. Á mynd
inni sést menntamálaráð-
herra og frú ræða við Marg-
rethe, sólódansmær.
er nu
ÍÍTclsvelli, 14. september,-
Á FIMMTUDAGINN var haust
slátrun liafin í sláturhúsi Slátur-
félags Suðuriands i Djúpadal, og
virðast dilkar vera með betra
móti. Eins og á undanfömum ár-
um verða afurðir fluttar á bflum
til Reykjavjkur, en sennilega í síð-
Oprúttnir sölumenn
á ferð um Reykjavík
ÓPRÚTTNIR erlendir sölu-
rnenn eru ná á ferð hér í Reykja
vík, Koma þeir frá blaðasölufyrir
f.aekinu Hi-Fidelity Circulation
Guild og hafa í frammi heldur
íeiðinlegar aðferðir við sölu blað
anna. Hefur mörgum ofboðið frekj
an og dónaskapurinn sem þeir
heíta.
í gærmorgun kom einn þeicra
{. hús hér í bænum. Var hann hinn
elskulegasti, þegar húsmóðirin
■kom' til dyra. Skýrðl hann frá er
Éndi sínu og var honum boðið
inn. Þar lýsti hann ágæti blaða
Aukasýning
ákveðin
Vegna mikiliar aðsóknar
aí> sýningum Konunglega
danska ballcttsins í Þjóðleik
húsinu, hafa dansararnir fall
izt á að hafa aukasýningu í
dag kl. 1S. Verða því sýning
ar listafólkshis sjö, cn fjöldi
manns hefur orðið frá að
hverfa fyrir hverja sýningu.
sinna, sem fjalla um allt milli
himins og jarðar, tónlist, innrétt
ingar og ástir. Hann skýrði kon
unni frá því, að ef hann seldi á
kveðinn fjölda blaða, fengi hann
fría ferð kringum iandið, og
sagði svo: „Þú hjálpar mér nú til
þess að fá þessa ferð.“
Að lokum féllst konan. á að
kaupa tvö blöð. Skrifaði maðurinn
þá kvittun, en hafði ekki áður get
ið um verðið. Konan sá þá, að
þarna var um mikla upphæð að
xæða, sem hún átti að greiða fyrir
fram. Hún liafði ekki næga pen
inga handbæra og sagði mannin
um, að hann yrði að koma seinna,
þegár maður hennar væri kominn
heiih.
Þá reiddist sölumaðurinn ógur
lega. Hann kvaðst ekki vanur að
koma á heimili þegar eiginme;hn
irnij- væru lieima, þá væri ekkbrt
keypt. Hann spurði konuna hvprt
hún gæti bara ekki gefið út áyís
un íyrir upphæðinni, eins og hinar
konUrnar hefðu gert. Hann spurði
hvað liún hefði mikla penipga
heima, og var hinn versti viíjur
eigrjar. Konan margendurtók, !að
íiúni gæti ekki borgað hom^m.
Endaði leikurinn með því, að sölu
maðurinn rauk út, og valdl kon
unni um leið mörg ill orð.
Eins og komið hefur fram í
fréttum, liafa menn þessir verið
kærðir til lögneglustjóra. Þann
ig framkomu er ekkl hægt að líða
og ættu liúsmæður að skella dyr
unum á þessa kumpána þegar þeir
hringja dyrabjöllunum.
Vélin hefur enn
ekkl komizt til
Færeyja
I FYRRAKVOLD voru væntan-
legir hingað til Iands nokkrir fær-
eyskir blaðamenn, sem munu
dveljast hér fáeina daga í boði
Flugfélags íslands. Þeir urðu hins
veðar veðurtepptir og sátu enn
heima, þegar Alþýðublaðið átti
tal við blaðafulltrúa F í fyrir há-
degi í gær.
Vélin, sem átti að flytjfy þá hing
að,. lagði af stað frá Kaupmanna-
höfn samkvæmt áætlun á fimmtu.
dag og flaug til Björgvinjar, óg
þaðan lagði vélin af stað áfram,
en varð að snúa við vegna veðurs:
í gær var enn svo slæmt veður á
flugleiðinni yfir austanvert At-
lantshaf og í Færeyjum, að lítil
líkindi voru talin til þess að þeir
kæmu í gær. En þó að vélin legði
af stað frá Björgvin og færi jafn-
vel til Færeyja og Glasgow, kæmi
hún varla hingað til lands, þar eð
flugumsjónarmenn sögðu í gær-
i morgun, að rok væri á þeirri leið.
asta sinn í jafnríkum mæli og ver-
ið hefxur.
Nú er sem sagt verið að ljúka
byggingu frystihúss hér á Hvols-
velli, sem Sláturfélag Suðurlands
og Kaupfélag Rangæinga reisa f
sameirúngu-Áætlað er, að húsið
geti géymt hátt á þriðja hundrað
tonn og annast geymslu sláturaf-
urða úr Rangárvaila- og Vestur-
Skaftafellssýslu eins og rúm frek-
ast leyfir. í sambandi við þessa
frystihússbyggingu var tekin upp
sú nýbreytni að reisa sérstakt hús,
þar sem inn- verða pökkuð innyfli
til útflutnings, en slíkt hefur ein-
ungis verið gert í Reykjavík fram
að þessu. Þegar; fr3,,stihúslð tekur
tii starfa, sem verða mun í næstu
viku, þarf ekki lengur að flytja
sláturafurðirnar. jafnóðum til
Reykjavíkur, heldur verður það
gert í áföngum eftir því, sem mark
aðurinn krefst.
Kartöfluuppskera er nú miklu
lakari en undanfarin ár hér um
slöðir, en grös féllu víða í sumar.
í Þýkkvabæ féll þó ekki kartöflu-
gras, fyrr en í síðustu viku, en
þá gerði þar 5 stiga frost. Einnig
lítur verr út með kornuppskeru
en í fyrra vegna óhagstæðrar
veðráttu.
TRILLA fannst í gær i f jör-
unni milli gömlu öskuhaug-
anná og Selsvarar. Reyndist
þetta vera trilla sú.sem hvarf
úr höfninni"I Reykjavik aff-
■' ■ ■
faranótt 16. maí síffast liff-
inn, en talið var aff tveir ung
ir menn, Björn Bragi og-Jón
Björnsson hefffu fariff á
henni út úr höfninni. Trilían
var mikiff brotin og vantaffi
í hana negluna.
I