Óðinn - 01.03.1907, Blaðsíða 6
í)4
ÓÐINN.
Úr vjelasal Völundar
verkfærin o. s. frv. Á loftinu næst fyrir ofan er
handsmíðasalur, álíka stór og vjelasalurinn niðri.
Þar eru smíðisgripirnir settir saman. En á efra
loftinu, undir þakinu, er geymslurúm. Auk þessa
eru í húsinu skrifstofur fjelagsins og fundasalur.
Ait húsið er hitað npp með gufu og lýst með
rafljósum, en framleiðslukraftinn leggur gufuvjelin
til. Slökkvitólaútbiinaður er þar ágætur; dælir
gufuvjelin vatnið upp og getur, ef á þarf að halda,
s[»ýtt upp úr brunninum 200 pottum á mínútu.
Verksmiðjan hefur alls kostað um 100 þús. kr.
Fleiri hús hefur nú fjelagið reist þarna í
grendinni, svo sem tvílyft timburgeymsluhús, 68 X
18 álnir, með steinlímdum kjallara, Bátasmíðahús-
ið, 24x12 álnir, sem er vinnustöð Bjarna Þor-
kelssonar skipasmiðs, og enn er þar nýtt geymslu-
hús í smíðum, 30x18 álnir. Bryggju liefur fje-
lagið einnig gert, út frá
norðurenda verksmiðjunn-
ar, 6 feta breiða og mjög
langa.
Mannamyndirnar, sem
hjer fylgja, eru af fyrstu
stjórnarmönnum fjelagsins,
og' svo verkstjóra þess, Bost-
gaard. En hann fór frá
fjelaginu í vetur, og verð-
ur forstöðumaður gullbor-
anatilraunanna. Hann er
miðaldra maður.duglegur og
verkhygginn. Magnús
Blöndahl gekk úr stjórn-
inni i fyrra og tók að sjer
Hjörtur Hjartarson er
fæddur 18. nóvember 1857
á Gufunesi í Mosfellssveil
og bjó faðir hans þar lengi.
Þaðan fór Hjörtur 1870 út
í Viðey, cn liingað til
Reykjavíkur kom hann
1875 og lærði þá trjesmíði hjá Helga Helgasyni
snikkara og tónskáldi, sem nú er í Ameríku. Síð-
an hefur Hjörtur átt lijer heimili og altaf dvalið
hjer, nema livað hann var einu sinni árstíma \ ið
smíðar á Vestfjörðum. 1887 kvæntist hann Sig-
riði Guðfinnu Halliðadóttur frá Gufunesi.
Magnús Th. S. Blöndahl er fæddur 10. sept.
1861 á Tjörn á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu og
var faðir hans þá prestur þar, síra Sigfvis Jónsson
frá Reykjahlíð, en kona síra Sigfúsar og móðir
Magnúsar var. Sigríður Björnsdóttir Blöndals sýslu-
manns. 14 ára gamall misti Magnús föður sinn,
er þá var orðinn prestur á Undirfelli, og fór þá
árið eftir að Ljósavatni í Þingeyjarsýslu, til sira
Stefáns Jónssonar, frænda síns, og lærði hjá hon-
um næsta vetur undir skóla, en hætti þó við það
nám strax vorið eftir og var um sumarið við
Úr vjelasat Vöhmdar.
forstöðu timhurverslunar-
innar, en í hans stað kom
inn í stjórnina Sveinn Jóns-
son, sem hjer erlíkamynd
af. En nú fyrir skömmu
gekk liann aftur stjórninni
og kom í hans stað Jó-
hannes Lárusson trjesmið-
ur.