Óðinn - 01.03.1907, Qupperneq 7
( ’) Ð I N N .
95
verslun á Húsavík. Næsta haust fór hann til Akur-
eyrar, til Jóns Kr. Stefánssonar timburm., var hjá
honum tvö ár og fjekk þá sveinshrjef. Svo var hann
barnakennari einn vetur á Kvíabekk í Olafsfirði,
hjá síra Magnúsi Skaftasyni, frænda sínum, sem
nú er unítaraprestur í Ameríku, en fór vorið eftir
vestur í Húnavatnssýslu og vann um sumarið að
húsagerð á Blönduósi, en sigldi urn haustið til
Khafnar til þess að fullkomnast í handverkinu,
og var þar tvö ár. Kom svo upp aftur til Skaga-
strandar, 1882, vann liann að smíðum þá um
suinarið við Ytrieyjar-kvennaskólann og síðan víð-
ar þar nyrðra, en fór 1883 suður á Vatnsleysu-
strönd, að Sjónarhóli, og var við smíðar til og frá þar
syðra, í Höfnurn, Kellavík og víðar. Haustið 1884
flutti hann til Hafnarfjarðar og kvæntist þá um
haustið Guðrúnu Gísladóttur I’ormóðssonar versl-
unarmanns í Hafnarlirði, l'rá Hjálmholti. 1 Hafn-
arfirði var hann 16 ár og stundaði smíðar, en
nokkur ár sjávarútgerð og verslun jafnhliða. Ár-
ið 1900 flutti hann liingað lil Rvíkur og stofnaði
lijer 1903 timburverslunina, sem Völundur síð-
an keypti og áður er um getið. Á síðari árum hef-
ur liann oft verið I verslunarförum erlendis og
er nú framkvæmdastjóri timburverslunar Völ-
undarfjelagsins.
Sigvaldi Bjarnason er fæddur 31. desember
1860 á Fremstagili í Langadal í Húnavatnssýslu og
bjuggu foreldrar lians þar. Hann er hróðir Hall-
dórs sál. Bjarnasonar Barðstrendingasýslumanns.
1879 kom Sigvaldi hingað til Reykjavíkur til þess
að læra trjesmíði, og lærði hjá Magnúsi Árnasyni
snikkara. Var hann hjer þá í 6 ár við nám og
smíðar, en fór 1885 vestur í Breiðafjörð og var
þar við smíðar á ýmsum stöðum í 4 ár, þar af
tvö ár hjá þeim síra Friðriki Eggertssyni ogPjetri
syni hans Eggerz. Þaðan fór hann til Bíldudals
og var níu ár við smíðar hjá Pjetri kaupmanni
Thorsteinson. Kom svo hingað til Rvíkur al'tur
1898 og hefur verið hjer síðan. 1893 kvæntist hann
GuðrúnuPjetursdóttur áður kaupm. í Stykkishólmi.
Sveinn Jónsson er fæddur 12. apríl 1864 á
Steinum undir Eyjafjöllum og ólst upp hjá for-
eldrum sínum þar og á næsta bæ, þar til hann
var 12 ára, en síðan hjá móðursystur sinni á
Steinum. 21 árs gamall kom liann hingað lil
Reykjavíkur til j>ess að læra trjesmíði og lærði
hjá Þorkeli heitnum Gíslasyni. Fór til Vestmanna-
evja 1888 og dvaldi þar 11 ár, en flutli að þeim
liðnum aftur lil Reykjavíkur. Sumarið áður en
hann flutti hingað alkominn var liann lijer við
smíðar á barnaskólahúsinu. Tvívegis hefir hann
\ erið við smíðar á Austfjörðum, Eskifirði, og einn-
ig í Vík í Mýi'dal.
Allir hafa þessir menn, hver um sig, smíðað
fjölda húsa hjer í Reykjavík, stærri og smærri.
Hjörtur hefur á hendi umsjón og viðhald skóla-
húsanna, latínuskólans og barnaskólans. Hann
hefur umsjón með byggingu bókasafnshússins nýja,
er Völundarfjelagið smíðar. Magnús Blöndahl hef-
ur meðal annars smíðað verslunarhús Edinborg-
ar hæði, í Austurstræti og Hafnarstræti, Lands-
höfðingjahúsið og hús Chr. Nielsens í Kirkjustræti.
Sigvaldi hefur smíðað Frikirkjuna, Landritarahús-
ið, hús Jóns skjalavarðar o. m. fl., Sveinn hús
Sturlu kaupm. Jónssonar, Halbergs og Halldórs
Jónssonar bankagjaldkera o. m. II. Af húsum
þeirn sem Völundarfjelagið hefur bygt má t. d.
nefna íslandsbanka, Gutenberg, Iðnskólann og
Kleppsspítalann.
Finnur Jónsson á Kjörseyri.
Finnur Jónsson, bóndi á Kjörseyri við Hrúta-
fjörð, er fæddur 18. maí 1842 á Stóruvöllum í Rang-
árvallasýslu. Faðir lians var Jón prestur Torfason
(dáinn 1848) prófasts Jónssonar prests í Hruna
1767—1797, Finssonar biskups og Vilborgar Jóns-
dóttur prests frá Gilsbakka. Móðir Finns var Oddný
Ingvarsdóttir bónda á Skarði í Landssveit.
Átta ára gamall fluttist Finnur að Laugardals-
hólum í Árnessýslu ásamt móður sinni og Ragn-
liildi systur sinni, til Ingvars bróður síns, er þar
bjó. Eftir dauða Ingvars, 1859, fluttist hann íHafnir
suður til Magnúsar bróður síns, er þar bjó og er
enn á lífi. Árið 1864 fluttist Finnur norður í Stranda-
sýslu, að Litlu-Hvalsá í Hrútaflrði, með þeim hjón-
um Sigurði sýslumanni Sverrisson og Ragnhildi
systur sinni; hjá þeirn dvaldi hann þar lil árið 1869,
að hann kvæntist Jóhönnu dóttur Mattíasar óðals-
bónda Sívertsen á Kjörseyri; var Mattías þá nýlega
dáinn, og tók Finnur við jörðinni og heflr búið
þar alla tíð síðan.
Með konu sinni fjekk Finnur talsverð efni, og
reisti stórt bú á Kjörseyri, eignarjörð sinni, og hana
hefir hann ávalt reynt að bæta af fremsta megni,
sljettað mikið í túninu og stækkað það mjög með
útgræðslu og framræslu, grafið vörsluskurði i