Óðinn - 01.10.1928, Side 2
74
ó Ð I N N
Leiksýningar Haraldar Björnssonar
veiurinn 1927—1928.
Haraldur Björnsson byrjaði starf sitt á sviði
leiklistar fyrir mörgum árum. Það var í Leik-
fjelagi Akureyrar. Þar slarfaði hann í 7 ár, fram
Har. Björnsson leikari
til ársins 1925; þá flutti hann búferlum til Kaup-
mannahafnar, fast ráðinn í þvi að gefa sig eingöngu
við leiklist. Munu þau Anna Borg vera fyrstu Is-
lendingar, sem gert hafa þá list að lífsstarfi sínu.
Haraldur lauk námi við Kgl. leikhúsið í
Kaupmannahöfn vorið 1927 með ágætiseinkunn.
Var frumraun hans Kári í Fjalla-Eyvindi, IV.
þætti, og Ijek ungfrú Anna Borg þá Höllu.
Auk sjálfs leiknámsins lagði Haraldur mikla
stund á að kynna sjer búning leiksviðs og for-
sögn leiksýninga (instruktion) og mun hann
hafa gert það sjerstaklega i þeim tilgangi að
verða sem best vaxinn því að vinna í þágu leik-
listarinnar hjer heima.
Síðastliðinn vetur ferðaðist Haraldur milli leik-
fjelaganna hjer heima (Reykjavíkur, ísafjarðar
óg Akureyrar) og stóð fyrir leiksýningum með
þeim allan veturinn. Verður það að teljast tals-
verður viðburður á sviði íslenskrar leiklistar, er
fyrsti sjermentaður íslendingur í leiklist ferðast
hjer um og hefur leiksýningar í heilan vetur.
Haraldur hóf þetta starf sitt strax í fyrra haust.
Sýndi hann fyrst með Leikfjelagi Akureyrar
Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson, og ljek
þar sjálfur aðalhlutverkið (Loft). Þar næst sýndi
hann með sama fjelagi leikinn Dauði Natans
Ketilssonar, eftir frú E. Hoffmann. Aðalhlutverk-
ið (Natan) ljek þá Ágúst Kvaran.
Með leikfjelagi Isafjarðar sýndi Haraldur í febr.
Ljenharð fógeta, og Ijek þar Ljenharð. Siðan æfði
hann með fjelaginu Gjaldþrotið eftir Björnson.
I mars og apríl var Haraldur í Reykjavík og
stóð þar fyrir leiksýningu á 100 ára minningar-
hátíð H. Ibsen með Leikjelagi Reykjavikur. Var
það »Vildanden« eftir Ibsen, sem sýnd var, og
ljek Haraldur sjálfur Gregers.
1 maí var Haraldur aftur á ísafirði, og sýndi
þá, með leikljelaginu þar, Galdra-Loft, og ljek
sjálfur Loft. Var þetta síðasta sýuing hans á
vetrinum, en síðasta leikkvöldið var 31. maí.
Á 6'/2 mánuði hafði Haraldur alls 43 sýningar
(leikkvöld) og 6 upplestrarkvöld. Auk þess stóð
hann fyrir Jóhanns Sigurjónssonar hátíð á Akur-
eyri til tekna fyrir ekkju skáldsins.
Sá, sem þetta skrifar, sá að eins þá leiki, er
sýndir voru á ísafirði. Fóru þær sýningar prýði-
lega vel og voru ólíkar því, sem þar hafði áður
sjest á leiksviði. Var og aðsókn að leiksýningun-
H. Bj.: »Ljenharður fógeti«. 3. þ.