Óðinn - 01.10.1928, Blaðsíða 22
94
ó Ð I N N
berum störfum að gegna í sveit sinni, enda ávalt
þar meðal þeirra fremstu, er sótt hafa íram til
umbóta á öllum sviðum. Ilann er, eins og kunn-
ugt er um fjölmarga ættmenn bans í báðar ætt-
ir, sönghneigður mjög og hefur haft óvenjulega
fagra og mikla söngrödd.
Rúmsins vegna verður hjer staðar að nema
með frásagnir um þessi góðu og merkilegu
bændahjón, sem nú hafa lifað saman í ástriku
hjónabandi um hálfrar aldar skeið, ótal mörg-
um mönnum til gæfu og gleði, landi og lýð til
ómetanlegs gagns og framfara. J.
Laugarvatnshjónin
Böðvar Magnússon og Ingunn Eyjólfsdóttir.
Böðvar er fæddur í Holtsmúla i Landssveit á
jóladaginn 25. des. 1877. Var faðir hans Magnús
hreppstjóri og
bóndi þar, Magn-
ússon frá Stokka-
læk, Guðmunds-
sonar, Magnússon-
ar frá Núpakoti
undir Eyjafjöllum
(Núpakotsætt); en
kona Guðmundar
var Guðrún Pals-
dóttir á Keldum,
móðir Halldórs á
Reyðarvatni (sbr.
Keldnaþátt Brynj-
úlfs frá Mínna-
núpi). Móðir
Magnúsar í Holts-
múla, föður Böðvars, var Vigdís Guðmundsdóttir
frá Hangum í Stafholtstungum. Voru þau Magnús
og Vigdís ekki fult ár í hjónabandi; hann drukn-
aði í Þorlákshöfn veturinn 1840, og Magnús
yngri þá ekki fæddur.
Kona Magnúsar i Holtsmúla, en móðir Böðvars
á Laugarvatni, var Arnheiður Böðvarsdóttir frá
Reyðarvatni og Guðrúnar ljósmóður Halldórs-
dóttur samastaðar.
Með foreldrum sínum fluttist Böðvar að Ut-
hlíð í Biskupstungum vorið 1880. Þar misti
hann móður sína haustið 1887. En vorið eltir,
1888, flutti Magnús faðir hans að Laugavartni til
ekkjunnar Ragnheiðar Guðmundsdóttur og gift-
ist henni þá um haustið.
Ingunn kona Böðvars á Laugarvatni er fædd
þar 2. ágúst 1873. Var faðir hennar Eyjólfur,
sem lengi bjó á Laugarvatni, Eyjólfsson frá
Snorrastöðum, Guðmundssonar, Þorleifssonar frá
Bermóðsstöðum, þess er fluttist út i Árnessýslu
úr Skaftáreldum. tír það góð og gild bændaætt
bæði i Laugardal og víðar.
En síðari kona Eyjólfs á Laugarvatni og móð-
ir Ingunnar var Ragnheiður Guðmundsdóttir
bónda í Eyvindartungu, ólafssonar frá Þormóðs-
dal; en Ragnheið-
ur varð síðari
kona Magnúsar
föður Böðvars,
eins og fyr er rit-
að. Eru þau því
stjúp- og uppeld-
íssystkini, Ingunn
og Böðvar.
Vorið lOOOfluttu «,
þau Böðvar og
Ingunn frá Laug-
arvatni og reistu
bú í Útey. Var
Böðvar þá að eins
22 ára og efnin til
búskapar ekki
önnur en það, sem hann hafði eignast og dregið
saman frá því hann var 17 ára, en þá átti hann
eina á. Á þeim árum var kaupgjaldið lágt: V*
af vetrarvertíðarhlut, 25 krónur í peningum og
það, sem hann gat komið sjer upp af sauðum,
en þeir voru ljettir á fóðri. Þau fríðindi reyndi
hann líka að nota sem best síðustu 5 árin, sem
hann var á Laugarvatni.
í Úley bjuggu þau Böðvar og Ingibjörg I 7
ár og var ekki annað hægt að segja, en að þeim
búnaðist ágætlega þrátt fyrir ómegð, sem á þau
hlóðst, því þar eru 6 af börnum þeirra fædd.
Sá Böðvar þó lítt í kostnað um að húsa jörð- «-
ina og bæta. Bygði hann á þessum árum upp
allan bæinn og öll fjenaðarhús sama sem trá
stofni. Þegar hann kom þangað var svo talið,
að hús væru þar yfir 50 kindur, en þegar hann
flutti þaðan hatði hann aukið húsin svo, að
Ingunn Eyjólfsdóttir og Böðvar Magnússon.
J