Óðinn - 01.10.1928, Page 3

Óðinn - 01.10.1928, Page 3
ó Ð I N N 75 H. Bj.: »Galdra-Loftur«. 1. þáttur. . . . Fengi jeg aldrei að opna bók framar, fyndist mjer jeg vera blindur . . . um afarmikil, miðað við fólksfjölda í bæ og nágrenni. Hinar sýningarnar átti jeg ekki kost á að sjá, en eftir blaðadómum og umsögn manna, er sáu, hafa sýningar þessar einnig farið sjerlega vel frá hendi og borið annan og fullkomnari svip, en áður hefur tíðkast hjer á landi. Ér það og eðli- legt þegar það er athugað, að þeim stjórnaði maður með meiri listmentun á þessu sviði en áður hefur verið völ á á Islandi. Blöð og einstakir menn hafa farið eindregið loflegum orðum um starfsemi Haraldar þennan vetur, bæði leiksýningar hans í heild og leið- beiningastarf, persónulegan leik hans og upp- lestur. Aðsókn var og mjög mikil að leiksýn- ingunum. Áður en Haraldur Björnsson tók sjer far til Kaupmannahafnar í vor, átti jeg tal við hann, og spurði meðal annars, í hverjum tilgangi hann hefði farið þessa hringferð hjer í vetur og hvern árangur hún hefði borið. Taldi hann að slik leikumferð hefði mikla þýðingu fyrir íslenska leiklist í framtíðinni. Hefði hann kynst þeim leíkkröftum, sem nú væri að finna og öðrum skilyrðum fyrir leiklistarstarfsemi hjer á landi. Er það vitanlega nauðsynlegt fyrir þann, sem gera ætlar leiklist að æfistarfi sínu hjer. Spurði jeg hanU þá, hverja nýja leikkrafta hann hefði fundið, er honum voru ekki áður kunnir. Nefndi hann, utan Rej'kjavikur, frú Ingi- björgu Steinsdóttur á ísafirði, er gat sjer orðstír fyrir Agnesi í Dauði Natans og Steinunni í Galdra-Lofti. Ungfrú Sigrún Magnúsdóttir á ísa- firði, er Ijek Guðnýu í Ljenharði fógeta og Dísu í Galdra-Lolti. Ungfrú Sigríði Slefánsdóttur á Akureyri, er Ijek þar Disu í Galdra-Lofti. Og Johann Kroyer á Akureyri, er Ijek þar ráðsmann- inn i Galdra-Lofti og Friðrik í Dauði Natans. Sagði hann að þau hefðu öll mikla hæfileika til leiks og i framtíðinni mætti mikils af þeim vænta á sviði leiklistarinnar. Það starf, sem Haraldur Björnsson leysti af hendi hjer á landi s. 1. vetur, er ekkert meðal- manns verk, þvi leikkraftar þeir, er hann hafði við að styðjast, voru að sjálfsögðu mjög ósam- stæðir og margir lítt ætðir. S. Kr. sc Dálítið brot úr hjeraðssögu Ðorgarfjarðar. Eftir Krislleif Þorsteinsson bónda á Stóra-Kroppi. — — — Þenna sama vetur (1881) teptust ferðamenn líka á sama bæ dögum saman. Urðu stundum þungar búsifjar að búa undir sliku. Hjer er að eins eitt dæmi: Þá bjó í Höfn í Melasveit frú Steinunn Sivert- sen. Þessi góða og glæsilega kona, er allir muna er einusinni sáu hana, varð flestum Borg- firðingum minnistæð af margra ára kynningu, og á einn veg öllum. Hafði hún þá mist mann sinn, Pjetur Sívertsen, fyrir hálfu öðru ári. Bygði hún þetta ár hálfa jörðina Höfn Sigurði Odds- syni, mági sínum. Nú var það í fyrstu viku Góu, að margir Borgfirðingar taka sig upp í Akurnesferð. Er þá uppstytta nokkur. Ætluðu sumir þeirra til sjó-

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.