Óðinn - 01.10.1928, Síða 12

Óðinn - 01.10.1928, Síða 12
84 Ó Ð I N N Eggert er góður heim að sækja, enda, sem vita má af framkomu hans, prýðisvel skynsam- ur maður. Berst talið oftast ósjálfrátt einna helst að því, sem er honum heitast áhugamál, og fylgist hann með áhuga með öllu því, sem er að gerast. Eggert er prýði sinnar sljettar og í hvívetna vill hann koma fram til góðs. Jeg veit ekki, hvort hann mundi kallast fríð- ur sýnum, en höfðinglegur er hann á velli og má sjá, að þar sem hann fer, er höfðingi í lund. Kona Iians er Elin Gísladóttir, prests frá Reyni- völlum. Er hún góðrar ættar í báðar ættir. Móð- ir hennar, Guðlaug Eiríksdóttir, kona síra Gisla, var móðursystir síra Eiríks Briem prófessors í Viðey og þeirra merku systkina. Síra Gísli Jó- hannesson, faðir Elínar, og Ingíbjörg, móðir Vilhjálms Slefánssonar, hins fræga norðurfara og vísindamanns, voru systkin. Elín Gísladóttir mundi eigi kallast svo mjög fríð sýnum, en í fasi hennar og framkomu allri er ein.skonar ótvíræður aðalsbragur, sem vekur virðingu fyrir henni. Hún er ágæt kona, stjórn- söm húsmóðir, ágæt eiginkona og móðir. Hefur sambúð þeirra hjóna jafnan verið til sannrar fyrirmyndar. Mun ekki ofsagt, að heimilisfólk hennar ber ást og virðing i brjósti til þessarar góðu konu, eins og allir, sveitungar og nágrann- ar. Þeir sem þekkja hana best, unna henni mest. Hún er skynsöm kona, slilt og trygglunduð, góðviljuð og best þeim, sem helst þurfa hennar við. Hún hefur hvað eftir annað orðið fyrir á- falli, meiðslum, og er raunar óþarft að geta þess, að það hefur hún borið með rósemd og stillingu. Meðalfellsheimilið hefur jafnan haft ágætt orð á sjer. Háttprýði, reglusemi og gestrisni hefur einkent það jafnan, og eiga bæði þessi sæmdar- hjón sinn þátt í allri híbýlaprýði. Þau hjón giltust árið 1887. Einn son hafa þau átt barna. Heitir hann Jóhannes Ellert. Hann er nú giftur maður og er hann heima hjá foreldrum sínum til að sljórna búinu með þeim. Hann hefur numið búfræði á Hvanneyri. Áður var hann tvo vetur á gagn- fræðaskólanum í Flensborg í Hafnarfirði. Þau Eggert og Elín hafa átt því láni að fagna, að þessi sonur er hvers manns hugljúfi og allir, sem með hónum eru, elska hann og virða í senn. Jeg tel það mikið lán fyrir sveitarfjelagið, að hafa svo lengi fengið að njóta þessara ágætu sæmdarhjóna. En heill og heiður litils sveitarlje- lags er heill og heiður alls þjóðfjelagsins um leið. Jeg hygg að jeg megi tala fyrir munn fjöl- margra vina, er jeg leyfi mjer að þakka þeim fyrir alla framkomu hingað til og hið blessunar- ríka starf, er þau hafa unnið, þó mestmegnis í kyrþei, og óska þeim enn langra hldaga og gleði og blessunar á þeim tíma, sem enn er eftir ó- farinn af merkum æfileiðum. Jeg vona fastlega, að vinur minn Eggeit Finns- son megi gleðjast af því, að »seinna koma sum- ir dagar og koma þó«, að hann fái betur og betur að sjá, að hugsjónir hans eru að rætast og rætast því meir, sem lengra líður. Jeg veit að blessun guðs fylgir hverjum þeim, sem gerir vel, og þá þessum sæmdarhjónum, heimili þeirra og elliárum. í þeirri trú verður að lifa um hvern góðan mann og konu. Reynivöllum, 16. júlí 1928. Hallclór Jónsson. st Jóhann Kr. Briem f. 17/a 1874, d. Vs 1892. í síðasta hefti óð- ins minnist síra Friðrik Friðriksson vinar okkar Jó- hanns sál. Briem frá Stóra-Núpi. Jeg átti því láni að fagna, að þekkja þennan gátaða og skemtilega æsku- mann. Þegar við fyrstu samfundi tókst hin besta vin- átta með okkur og verð jeg að segja, að fáa vini hef jeg átt mjer jaln geð- þekka og trygga. Jóhann sal. var einstaklega aolaðandi, — hinar fjölhæfu gáfur hans stráðu yl og birtu til þeirra, sem kunningsskapar Jóliann Kr. Briem.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.