Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 7

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 7
Ó Ð I N N 7 menn í lokin til að »taka lagið«. Hann var glaðlyndur og hafði hressandi áhrif á menn. Var hann því ávalt talinn aufúsugestur, hvar sem hann kom, og alstaðar vel tekið. Enda var hann mörgum kunnugur orðinn. Munu fáir hafa þekt fleiri menn en hann. Furðaði jeg mig oft á því, hversu hann bar kensl á marga. Var ekki laust við að stundum væri þreytandi að vera honum samferða, ef fjölfarið var um veginn, því að við næstum hvern mann þurfti hann að tala og þeir við hann. Ekki mun sú sveit vera á íslandi, að Sigurður hafi ekki þar komið einhvern tíma á ferðum sínum og færri bæirnir, er hann hefur ekki heimsótt. í nýju Jarðabókinni frá 1861 hefur hann krossað við flesta þá bæi, er hann hefur komið á. Og eru þeir, laus- lega talið, um 34 hundruð, en geta þó fleiri verið. Kunnugur var hann orðinn, mörgum fremur, landi sínu. í mannsaldur hafði hann ferðast um það fram og aftur, og margoft um sumar sýslurnar. Ferðalögin áttu vel við hann. Og hann átti góða og fallega hesta, sem hann fór og prýðilega með. En það sagði hann þó, að hið besta við ferðalagið væri heimkoman, því að aldrei fyndi maður betur, hvað það er að eiga gott heimili, en þegar maður kæmi heim úr langri ferð. En margar ferðaminningar átti Sigurður ráðu- nautur, merkilegar og fróðlegar, og er eftirsjón að því, að honum skyldi ekki auðnast að rita ítarlega ferðasögu, en það hafði hann í hyggju. En önnur verkefni kölluðu altaf að. Sigurður kunni aldrei við að sitja auðum höndum. Oft vann hann fram á nótt við að svara þeim urmul brjefa, er honum bárust sí og æ. Þau snertu kanske ekki öll beinlínis starf hans sem ráðunautar. Það vóru beiðnir um alskonar útrjettingar og smágreiða. Bændur vissu að þeim var óhætt að leita til hans. Hann var hjálpsamur og ljet menn sjaldnast synjandi frá sjer fara. Það eru ótalin öll þau spor, sem hann hefur gengið fyrir bændur þessa lands. Enda vóru þeir líka margir boðnir og búnir til að gjalda honum í sömu mynt. »Það, sem mjer virðist einkenna Sigurð ráðunaut«, segir Theodór Arnbjarnarson í áðurnefndri grein, — en hann skrifar af mestum skilningi og viðurkenningu um hann, þeirra, er eftirmæli rituðu, — »var það, hvað hann var framsýnn, ráðhollur og varfærinn. Hans skoðun var að búnaðurinn yrði að þróast stig af stigi, og honum þótti vænna um bændurna en svo, að hann vildi leggja þeim þau ráð, er orðið gætu að fótakefli, enda naut Sigurður almennara trausts og vinsælda en jeg hef þekt um nokkurn mann«. — Hann kom ekki með loftkastala til bændanna, heldur »praktiska« þekkingu. Sagt hefur mjer og bóndi, að leiðbeiningar hans hafi komið sjer að best- um notum. Sigurður ráðunautur var hamingjusamur maður. Hlutverk hans í lífinu var það, sem hann hafði óskað sjer og hæfileikar hans stóðu til. í banalegunni sagði hann við aðstandendur sína: »Það má vera að þið væruð nú betur stödd, ef jeg hefði valið mjer annað starf; en þetta var það, sem jeg þráði að starfa*. Og forsjóninni verður aldrei fullþakkað, að hann fjekk þá ósk sína uppfylta, að hann var rjettur maður á rjettum stað. — Aldrei varð hann fjáður; barðist meira að segja oftast í bökkum efnalega. En hann var auðugur að áhuga og starfslöngun; hann elskaði starfið og í því var hann mikill. Og þegar litið er yfir æfistarf Sigurðar ráðunautar, verður niðurstaðan sú, eins og einn samstarfsmaður hans (Th. A.) kemst að orði, að hann hafi verið einn af áhrifamestu búnaðar- frömuðum er ísland hefur átt. Sigurður ráðunautur var lengst af heilsuhraustur; þó var hann hin síðari ár vangæfur í maga. Ágerðist það fyrir alvöru haustið 1925. Var hann þá staddur að Rauðalæk í Holtum, nýfarinn að heiman í eina af sínum mörgu ferðum í þágu bændanna. Lagðist hann þar veikur og lá nokkra daga. Komst þó á fætur, en treystist ekki til að halda áfram ferðinni og sneri heim aftur. Lagðist hann, er heim kom, og komst ekki á fætur eftir það. Sjúkdómurinn var krabbamein í maga. Var Sigurður skorinn upp, en það reyndist árangurslaust. Lá hann svo fram í febrúar. Þótt líðan hans væri ekki altaf góð, var hann samt oft vinnandi og altaf hress og glaður, svo sem hans var eðli. Hann andaðist 14. febrúar 1926. Jarðarför hans fór fram 26. s. m., að viðstöddu fjölmenni. Húskveðju flutti sjera Olafur fríkirkjuprestur Ólafsson, en sjera Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur talaði í kirkju. — Bændur báru lík þess manns, er hafði þjónað þeim svo vel og dyggilega, frá kirkju og til hinnar hinstu hvíldar1). * * ¥ Þann 1. maí 1897 kvæntist Sigurður eftirlifandi konu sinni, Björgu Þ. Guðmundsdóttur. Hún er fædd 29. nóv. 1874. Foreldrar hennar eru: Guðmundur Eggertsson, bóndi í Höll í Haukadal í Dýrafirði 1) Þess skal getið, að skömmu fyrir andlátið var Sigurður ráðunautur saemdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Hann var þó ekki gefinn fyrir slíkt tildur. Bar hann aldrei „orðuna“ og var hún heldur ekki lögð á kistu hans, við jarðarförina, svo sem sumum þykir hlýða.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.