Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 17

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 17
O Ð I N N 17 Hallgrímur Jónsson yfirkennari. Hallgrímur Jónsson yfirkennari við Mið- bæjarbarnaskólann í Reykjavík álti sextugs- afmæli 24. júní þ. á. Hann hefur mjög lengi kent við skólann og er áhugasamur og vin- sæll kennari. Við ritstörf hefur hann mikið fengist, ort Ijóð, skrifað sögur og ritað tölu- vert í blöð. Er hann lesendum »Óðins< kunnur af ýmsu, sem birzt hefur eftir hann hjer í blaðinu. Hann hefur verið einn af forvígismönnum kennarastjettarinnar í bar- áttunni fyrir áhugamálum hennar og hefur ferðast erlendis til þess að kynnast þar kenslumálum. — Hann er enn sem ungur væri, bæði í anda og að útliti. — Kennarar hjer í bænum sýndu honum mörg merki samúðar og virðingar á sextugsafmæli hans, og fylgja hjer á eftir nokkur af þeim heilla- óskaskeytnm, sem honum bárust þá: Sextíu ár liðin, af sársauka heit, barátta, efi og óslitin leit. Skorturinn, erfiðið, alt, sem er valt, það eru smámunir. Þroskinn er alt. Hvað, sem þá ógnar oss andstætt og kalt, breytist í lífshnoss, því lífið er alt. Sextíu ár liðin, og sigruð hver þraut. Fram undan eilíf og óslilin braut. Yndisleg útsýn við áfangann hjer. Sextíu ár liðin. Við samfögnum þjer. Ingibjörg Benediktsdóttir. Líkt eins og svanur svifi hann sjöunda tuginn klifi. Hallgrímur Iengi lifi, leiðbeini, yrki, skrifi. Helga Þórgilsdóttir. Sje skapið ungt eru altaf jól; ylji þjer sextugum júní-sól. Snorri, Björn, Friðrik, Guðjón, Bjarni. Þökk fyrir þinn hlut í gróandi Jónsmessunnar. Æskan blessi þig! Aðalsteinn Sigmundsson. Gangi þjer alt til tís og tíma sextugum leitanda. Eiríkur Magnússon. Hugheilar hamingjuóskir á sextugsafmælinu. Anna, Jón Pálsson. Þökk fyrir vinsamlegt samstarf um rúmlega 30 ára skeið. Óska heilla og blessunar í framtíðinni. Sigurður Jónsson. Heill þjer, ungi, sextugi maður. Þakka fyrir ómetanlegt starf. Haltu enn þá um Iangt skeið áfram á sömu braut. Sigurður Thorlacius. Vjer sendum yður bestu árnaðaróskir á sextugsafmæli yðar og þökkum aðdáunarvert brautryðjandastarf í þágu stjettar- samtaka vorra, — með stjettarkveðju. F. h. Sambands íslenskra barnakennara. Arngrímur Kristjánsson. Stjórn Stjettarfjelags barnakennara í Reykjavík sendir yður árnaðaróskir á sextugsafmælinu, með þökk fyrir starfið í þágu íslenskra uppeldismála. Stjórnin. Innilegar hamingjuóskir með næstu sextíu árin. Sigríður Magnúsdóttir. Hallgrímur Jónsson yfirkennari.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.