Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 36

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 36
36 Ó Ð I N N — allalgeng á Breiðafirði, eða öllu heldur á fjörðun- um, sem skerast inn úr honum, sem sje Kerlingar- firði, Skálmarfirði og Kollafirði. Vöðuselurinn kom í stórum hópum á haustin og fyrri hluta vetrar og var veiddur í net og skutlaður, til mikilla hlunninda fyrir hjeraðið. — Víða með fram þessum fjörðum má sjá jarðsígin naust og byrgi, sem notuð hafa verið við þennan veiðiskap. Nú er þessi selategund löngu hætt að sjást hjer um slóðir, og mun því valda hið gengdarlausa dráp hennar í norðurhöfum. Landselurinn er nú útbreiddastur og til mestra nytja á Breiðafirði. Hann er enginn »farfugl*. Hann er til og frá um fjörðinn alt árið, aðeins að ísinn ekki hamli honum frá að haldast þar við. Að vísu er hann dreifður og laus við yfir vetrarmánuðina. En þegar vorar þyrpist hann saman á þær slóðir, sem hann kæpir á og elur upp kópana. Og svo er hann árviss og elskur að átthögunum, að menn hafa það fyrir satt, að urturnar kæpi á sömu skerjunum ár eftir ár og ali kópana upp í sömu vogunum áratug eftir ára- tug — því selurinn verður all gamall. Netaveiði. Landselurinn fer að kæpa um miðjan maí. Kópurinn er eingöngu veiddur í net. Veiðin byrjar frá 7.—10. júní. Netin eru 8 — 12 faðmar á lengd, en faðmur á dýpt og mðskvastærð 12 — 15 centrimetrar. Netin eru steinuð niður svo þau berist ekki um of til, og fest við skerin sem þau eru lögð frá, með stórum steini — landtog. Trje eða korkflár eru hafðar til að halda þeim á floti. Netin eru lögð um fjöru og látin liggja yfir flæðarnar og svo venju- lega vitjað um næstu fjöru á eftir. Veiði þessi stend- ur yfir 3-4 vikur. Veiðin er mjög misjöfn í hinum einstöku eyjum. Frá 8 — 12 kópum í ey og alt upp í 120-130. Kópaveiðin hefur verið all-arðsöm fram á síðustu ár. Spikið (Iýsið) og skinnin eru verslunarvara, en kjötið er haft til átu, nýft, saltað og réykt. írekstraveiði. Fullorðinn landselur veiðist ekki í net, sje hann sjálfráður ferða sinna og gerða, svo er hann skynsamur og aðgætinn. En þá er bara tekið til annara ráða: Hann er rekin í netin eða öllu heldur, netin eru dregin utan að honum, þar sem svo hagar til, að því verður við komið. Og — því miður — hagar víða svo til á Breiðafirði, að það verður gert með »góðum< árangri. I hinum miklu skerjaflákum hingað og þangað um Breiðafjörð myndast all víða um fjörur grunnir og þröngir vogar. I þessa hljesælu voga sækir selurinn á vissum árstímum, sjerstaklega ef vindur er og sólskin, og legst upp á skerin með fram þeim. Einna kunnastar eru nú írekstrarlagnir við Odd- bjarnarsker, er liggja undir Hergilsey. — Guðmundur bóndi Einarsson í Hergilsey hefur gefið mjer upp- lýsingar um það, sem hjer fer á eftir. ]eg ber þó alla ábyrgð á framsetningu og orðfæri. Norðanvert við Oddbjarnarsker myndast um fjöru all-stór vogur, um 1000 metra langur, 200 m. breiður í kjafti, en aðeins 2-3 metra djúpur. Vogmynnið snýr til vesturs. I þessum vog liggur oft mikiö af sel, því gott skjól er í vognum og umferð er þar afar-lítil. Þegar fara skal í írekstralögn úr Hergilsey er lagt af stað um hálf-fallinn sjó af útfalli. Þegar nálgast Iögnina er farið afar-hljóðlega. Tusku eða snæri er brugðið um »tollana«, svo ekki heyrist áraglamm. Enginn má snýta sjer eða hósta, og vart draga and- ann nema með mestu varúð. Farið er út með skeri sunnanvert við lögnina. Venjulega er lent við skerið og einum manni slept upp. Gægist hann yfir skerið til að vita hvort selur sje í vognum. Verði hann þess vís að selur liggi, taka þeir, sem eftir eru í bátnum, til áranna, og róa sem mest þeir geta út með sker- inu, beygja fyrir endan á því í skjótri svipan, og leggja netin í hasti fyrir vogskjaftinn. Meðan því fer fram, hefur maðurinn, sem skilinn var eftir á skerinu, læðst hljóðlega austur eftir því, og komist í lægð eða sund, sem er austur úr vognum og ekki þornar nema um stærstu fjörur. Hann velur sjer stöðu í miðju sundinu og hefur langan kepp eða krókstjaka að vopni meðan sundið er að þorna. Til þess er venju- lega valin hinn röskvasti maður.því er ekki heiglum hent að mæta selnum í sundinu, slá hann, ef færi gefst, en annars að verja honum útgöngu meðan nokkur sjór er í sundinu. Takist nú þetta — sem oftast verður — að leggja netin fyrir vogskjaftinn, og manninum á skerinu að komast austur í sundið, áður en selnum tekst að átta sig og sleppa út, þá er hann innibyrgður og veiðin er þá nokkurnvegin vís. Þá er dokað við. Sje nú mikið af sel í vognum, gerir hann strax tilraun til að komast út, en rekur sig þá á netin í vogskjaftinum. Nokkrir festast þá strax í netunum og eru drepnir samstundis með þungum eikarkeppum, en hinir snúa inn í voginn aftur. Þá er byrjað að draga netin utan að þeim, og ekki Ijett ádrættinum fyr en inni í vogsbotni. Þar er selurinn flæktur í

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.