Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 39

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 39
Ó Ð I N N 39 Sumir af þeim trúföstu í K. F. U. M. voru ákaflega svartsýnir og vonarlitlir um framtíð vors fjelagsskapar. Jeg reyndi að tala kjark í þá og sýna þeim fram á, að vjer þyrftum ekki að óttast, því hin kristilega stefnuskrá mótfjelaga vorra væri ekki nægilega á- kveðin, því ekki væri það tilgangur og markmið ung- mennafjelaganna, að starfa að því, að leiða menn til lifandi ákveðinnar trúar á ]esúm Krist. Þetta höfum vjer og erum því sterkari til lengdar. — Þar að auki vinna ungmennafjelögin þarft og gott verk og halda mörgum ungling frá spillandi solli, og seinna meir verð- ur oss til gagns alt það góða, sem þau geta gert. — Sumir eggjuðu mig á, að gangast fyrir því, að K. F. U. M. tæki upp ýmsar starfsgreinar í íþróttum og menningarmálum til þess að verða samkepnisfært, en jeg sagði, að K. F. U. M. þyrfti ekki að fara í neina samkepni, heldur hjeldi sínu upprunalega striki, tæki aðeins ný verksvæði fyrir, þegar þörfin fyrir þau kæmi að innan frá fjelagsmönnum sjálfum. — Jeg sýndi og fram á, að nú fyrst væri K. F. U. M. orðið svo sterkt, að því væri engin hætta búin, því að nú væri sá kjarni myndaður sem þyrfti með, því að nú ætti fjelagið fastan flokk, og í honum væru í raun og veru lærisveinar Krists, og þyrðu að halda fjelaginu áfram hvernig sem *með eða móti bljesi; það væri orðið sterkara fyrir burtveru mína og ungmennafjelags- skapinn. — Þetta var sannfæring mín. Eitt kvöld var jeg á gangi með einum af mínum bestu vinum í K. F. U. M. Við gengum inn fyrir Skólavörðuna og töluðum um ýms áhugamál okkar. Það blasti við okkur stór hópur ungra manna, sem með fjöri og áhuga voru að vinna sjálfboða að hinni fyrirhuguðu Skíðabraut í Öskjuhlíðinni. Alt í einu nam jeg staðar og tók í handlegg vinar míns og sagði: »Sjerðu Skíðabrautina þarna? Þessa braut getum vjer fengið eftir 15 ár, ef vjer þá viljumc. — Hann horfði undrandi á mig. Eftir miðjan september tók fjelagið til starfa í fund- arhöldum sínum. Þá byrjuðu fundir aðaldeildarinnar. Þeir voru haldnir í »litla saU í fjelagshúsinu og voru fremur illa sóttir, nema af hinum trúfasta, fámenna hóp; fjelagið hjelt líka uppi almennum samkomum á sunnudagskvöldum, með aðgöngu fyrir konur og karla, og voru þær samkomur fremur vel sóttar. — Barnasamkomur, sem skömmu síðar breyttust í reglu- legan sunnudagaskóla, voru haldnar á hverjum sunnu- dagsmorgni undir forystu verkfræðings Knúts Zimsen og voru þær vel sóttar, svo að oft var húsfyllir. — í október var skotið á »auka-aðalfundi«, og urðu þá stjórnarskifti í fjelaginu. Gamla stjórnin ljet af starfi sínu og ný stjórn tók við. Voru í nýju stjórninni ein- göngu ungir fjelagar, sem svo að segja höfðu alist upp í fjelaginu frá fyrsiu byrjun; aðeins einn úr eldri stjórninni var í hinni nýkosnu stjórn; það var Knútur Zimsen. Þessi »stjórnarbylting« fór fram í mesta bróðerni og vinsemd, en fyrir mig hafði þetta mikla þýðingu, því að hin nýja stjórn varð mjer samgrón- ari en hin gamla hafði verið. En þetta heyrir meira til fjelagssögunni, en minni eigin, og skal því ekki nánar út í það farið. Nú vík jeg þá aftur til heimkomu minnar, til þess að segja frá því, sem heyrir til einkamálum mínum. Jeg gat um það í fyrra bindi »Starfsárannac, að Jóhann- es föðurbróðir minn kom í heimsókn til mín sumarið 1907 — og dvaldi hann fyrir norðan veturinn, sem jeg var í Danmörk, og var hann nýkominn að norð- an, er jeg kom heim. Daginn eftir heimkomuna sagði hann mjer, að hann hefði verið lasinn um veturinn og skorið hefði verið í einhverskonar æxli, og með því að hann hefði grun um, að það væri eitthvað illkynja, sem að sjer gengi, væri hann nú að flýta sjer heim og færi eftir vikutíma af stað til Englands; samt væri hann ákveðinn í að tala við Guðmund Magn- ússon, lækni, og fara í sjúkrahús, ef hann hjeldi, að hann gæti læknað hann. Við fórum svo þegar dag- inn eftir á fund hins ágæta læknis, og var jeg við meðan læknirinn skoðaði hann. Leitst mjer ekki á blikuna, er jeg sá, að hálsinn að aftan og öxlin var eins og eitt flatsæri mjög ljótt útlits. Jeg sá, að lækn- irinn varð mjög alvarlegur. Jóhannes spurði læknir- inn, hvort til nokkurs væri að skera í það, og bað hann að segja sjer alt af ljetta. Læknirinn sagði, að vera kynni að takast mætti að stöðva meinið um tveggja, þriggja ára skeið, ef herðarblaðið og hand- leggurinn væri tekinn af. Jóhannes kvaðst ekki hirða um að lengja lífið með því móti, en spurði, hvort hann mundi geta náð vestur heim til sín til Ameríku, og bjóst læknirinn við því. Jóhannes tók þessu með mestu karlmensku, og fór þegar sama dag og keypti sjer far alla leið vestur hjá Sigfúsi Eymundssyni, sem var agent þeirrar »línuc, sem Jóhannes ætlaði með. Hann ætlaði með »Ceres«, er fara átti eftir nokkra daga. En daginn áður en skipið átti að fara, fjekk Jóhannes svo miklar kvalir, að hann gat ekki hljóða- laust af sjer borið. Jeg náði í Guðmund Hannesson og gaf hann honum sefandi lyf, og næsta dag var hann fluttur á Landakotsspítala og var honum hjúkr- að þar með mestu umhyggju, og kvalirnar sefaðar eftir megni. Jóhannesi varð nú ljóst, að hann kæmist aldrei heim til sín, en hann sagði oft í legunni, að

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.