Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 8

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 8
8 Ó Ð I N N (f. 1848, d. 1923) og kona hans Elinborg Jónsdóttir (f. 1846) frá Sveinseyri, Hákonarsonar (1774—1817), prófasts á Eyri í Skutulsfirði, Jónssonar; átti Helgu Árnadóttur í Meirihlíð, Árnasonar, Magnússonar. — Bjuggu þau hjón, Sigurður og Björg, altaf í Reykjavík, og var heimili þeirra myndar- og gestrisnis-heimili. Synir þeirra eru: Geir Haukdal, verslunarmaður í Rvík, og Sigurður Haukdal, prófastur í Flatey. 1. september 1934. 5. © Hrynhenda flult sjera Hallgrími Thorlacius í Qlaumbæ á 40 ára prestskaparafmæli hans 10. júní árið 1934. Birta seint yfir sveit oss virtist. Sumarið beið að hefja skeiðið. Haldur stormur fór um foldu. Fölnuðu blóm, en þögðu hljómar. Sigraði þó með sínum vigri sumardísin frost og ísa. Sindrar nú yfir sjó og landi sól og ylur norður að póli. Vaka ljóð, þegar vængir blaka. Vorið gefur oss aftur þorið. Hljóma látum hróðraróminn. Hefjum skál yfir gleðimálum. Hyllum dátt í dýrum háttum dreng, er við höfum oft og lengi sótt að ráðum og sífelt þótti sómi vorum kennidómi. Áratugi fulla fjóra framdir þú merkur kirkjuverkin. Tendrað barst í traustri hendi trúarblysið gegn um þysinn hátt svo lýsti í allar áttir, enginn þurfti að villast lengur. Vaktir æ og horskur hraktir heimskra gróm og villudóma. Löngum hefur þú æsku unga örfað og brýnt við fremdarstörfin, kveikt svo engin kredda slökti kærleiksbálið í þeirra sálum. Vinum þínum þú varst í raunum vernd og skjöldur á bak við tjöldin, öldruðum jafnt sem hugarhreldum huggun, er þyngdi að raunaskugginn. Ungur vanst þú okkar tungu ástarheit, og því mun leitun vera á þeim, sem þar er fremri þjer, jeg greini af fullri einurð. Þrunginnar mætti og málsins kyngi minnist jeg tíðum ræðu þinnar, er þú skýrðir vel fyrir virðum Völuspá og Hávamálin. Kennist löngum mikilmennið, málin hvar eru sótt og varin; er við ræður rumskast þjóðin, rökum er teflt á móti sökum. Gekk þá einatt glögt um bekki gustur, og fólkið tók að hlusta, allir ljetu ysinn falla, er þú brýndir rödd á þingum. Andstæðingum oft í vanda ýttir þú, á rökin hnittinn. Var því ei á allra færi, að elja við þig, gamla hetjan. Aldrei sástu á undanhaldi, Agli líkur í slyrjarflíkum varðir stundum bæði borðin, bilaði hvorki skap nje orka. Heill þjer, vinur! í hárri elli hneigjum vjer þjer á slíkum degi. Þökkum störf í þágu okkar þráfalt unnin á kærleiksgrunni. Hjer er gott að gleðjast með þjer góðum drengjum. Svo mun lengi, meðan áttu hress í háttum hugans gamm og aflið ramma. Stefán Vagnsson. © Trúlofunarkort. — Slæling — Vinur minn, nú ber jeg sorgir sára og söknuö okkar beggja kveðjutára. Villu nú ekki fyrirgefa og gleyma og geyma þelta Iiðna enn um stund? Eitt vinarorö! Lát blíða brosið streyma og blessa mig með kossi! Sólin skín —I Mitt hjarfa tilrar, eins og opin und. Ó, að þú skulir gráta vegna mín! Sigurður frá Arnarholti.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.