Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 40

Óðinn - 01.01.1935, Blaðsíða 40
40 Ó Ð I N N sjer væri kærast að fá að hvíla í mold fósturjarðar sinnar, enda þótt hann auðvitað hefði gjarna viljað deyja hjá ástvinum sínum. Hann talaði oft um það í legunni, að sig Iangaði til að jeg færi vestur til Ame- ríku og heimsækti ættfólkið þar. Hann hafði keypt tvo hesta fyrir norðan til þess að hafa þá fyrir plógi, er hann kom með frá Ameríku í því skyni, að kenna skagfirskum bændum að nota þau verkfæri við bú- skapinn. Hann kvaðst hafa falið manni fyrir norðan að selja bæði hestana og verkfærin, og sagði, að jeg ætti að hafa þá peninga upp í farareyri. Hann talaði oftlega um þetta, en jeg sagði honum, að ekkert út- lit væri á því, að jeg gæti tekið mjer slíka ferð á hendur, jafnvel þótt peningar yrðu fyrir hendi, því svo væri háttað starfi mínu, að jeg gæti ekki horfið frá því fyrst um sinn. Einn dag Ijet hann mig skrifa upp, hvernig jeg ætti að fara með það, sem hann ljeti eftir sig hjer heima. Hann fjekk mjer gullúr mikið, sem börn hans höfðu gefið honum sextugum, og sagði, að það ætti Óskar dóttursonur sinn að fá- »En þú verður að fá honum það sjálfur og mátt hvorki senda það með pósti eða nokkrum manni, heldur geyma það þangað til þú finnur Óskar*. — ]eg sagði: »]á, en það getur nú orðið langt þangað tiU. — »Þótt það verði fimm ár, þá verður þetta að vera svo«, sagði hann. ]eg hugsaði að verið gæti að það dræg- ist lengur. En jeg varð að lofa þessu; hann sótti það svo fast. — Hann andaðist seint í október, þá 63 ára að aldri. Hann var sannur trúmaður og bænheitur mjög. ]eg þjónustaði hann daginn áður en hann dó. — ]eg jarðaði hann við hliðina á Krisfni sál. bróður mínum. Meðan á þessum atburðum stóð, hafði jeg einnig í ýms horn að líta. Samkvæmt ósk fjelagsmanna átti jeg að flytja í fjelagshúsið og búa þar. ]eg var ekki sjerlega fús til þess, því mig langaði til að vera að einhverju leyti út af fyrir mig, og mjer fanst að jeg mundi taka of mikið af húsrými frá fjelaginu, en menn sögSu að húsið vaeri of stórt en fjelagið litið. ]eg flutti svo inn í nýja bústaðinn 12. september. ]eg tók nú brátt að kunna vel við mig, en saknaði þó alt af Melsteðs-hússins. í fjelagsstarfinu saknaði jeg mest yngri deildarinnar, en hún var gersamlega horfin og engar horfur á að endurreisa hana í því horfi sem verið hafði, en það duldist mjer ekki, að það væri lífsskilyrði fyrir framfíð starfsins, að unt væri að ná í drengi og unglinga. ]eg hugsaði mjer, að best væri að hafa tvær deildir fyrir aldurinn upp til 17 ára. Jeg auglýsti nú eftir drengjum 10 — 14 ára og eftir nokkurn undirbúning stofnaði jeg »yngstu deildina* (Y—D) 30. september þá um haustið. Hún byrjaði með 16 meðlimum og tók sú deild brátt að vaxa. Þefta var mjer mikil fróun, en samt fanst mjer mikið vanta á meðan aldurinn 14—17 ára pilta vant- aði, en sá aldur var ekki auðfenginn, því að nú voru komin svo mörg öfl, sem toguðu í pilta á þeim aldri, bæði góð og ill. Þar að auki var farið að bóla á því, að heimurinn var farinn að sjá að reikna mætti með þeim aldri, einnig í tilliti til stjórnmálanna. Sterkar pólitiskar öldur risu það haust hátt og gripu hugina föstum tökum, jafnvel þeirra, sem stóðu langt fyrir neðan kjósenda aldur. Kosningar fóru fram um haust- ið og var talsvert mikill æsingur í bænum. Jeg hafði tekið mjer þá aðstöðu, að standa fyrir utan öll stjórn- mál, og greiða ekki einu sinni atkvæði. Margir komu til mín að »agifera«, og það margir af góðum og gömlum vinum mínum, en jeg kaus heldur að missa af vináttu þeirra, en að komast inn á þá braut, sem jeg taldi mjög skaðvæna fyrir starf mitt, sem framkvæmdastjóra kristilegs fjelags, því að sannur framkvæmdarstjóri í kristilegu fjelagi á að vera and- legur leiðtogi ungra manna í hvaða flokki sem eru, en það getur hann naumast verið, ef hann er ákveð- inn í einhverjum flokki; er þá hætt við að píltar og ungir menn úr öðrum flokkum fælist að leita til hans í vandkvæðum sálar sinnar, hve óhlutdrægur sem hann kynni að vilja vera. — ]eg hjelt því fast við minn keip og Ijet þau orð falla við þá, sem áfjáð- aslir voru að fá mig til kosninga, að jeg mundi, ef þeir ljetu mig ekki í friði, fara í reiði minni og kjósa á móti þeim. ]eg hjelt því líka fram, að jeg væri enn of óþroskaður til þess, að taka þátt í sljórnmál- um, þar sem jeg aðeins væri 40 ára, og hvernig ætti jeg, sem hvorki hefði lagt stund á stjórnvísindi eða lög, að sjá, hverjum rjett væri að fylgja, þar sem vitrustu og bestu menn þjóðarinnar, er jeg liti upp til fyrir aldurs og visku sakir, gæfu ekki orðið á eitt sáttir um þjóðmálin, og væri jeg þó viss um, að allir vildu landirtu og þióöinni hið besta, enda þótt sitt sýndist hverjum. Yið þetta sat og á komandi árum, og fóru flokkarnir að láta mig í friði. í nóvember fór jeg að vinna að því að stofna ung- lingadeild í fjelaginu. ]eg boðaði til samkomu fyrir pilta 14—17 ára og átti hún að vera miðvikudaginn 4. nóv. — Um kvöldið bjó jeg Iitla salinn út með bekkjum og ræðupúlli, fágaði vel lampana og skreytti með kertum. Kl. 81/2 átti samkoman að byrja. ]eg var búinn að kveikja og allt var tilbúið; jeg hafði samið ræðu mína. Enginn kom. ]eg stóð við ræðupúltið í klukkutíma, slökti svo ljósin. Næsta miðvikudag fór

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.