Óðinn - 01.01.1935, Side 25

Óðinn - 01.01.1935, Side 25
Ó Ð I N N 25 Jóhannes Kjarval listmálari. Jóhannes Kjarval listmálari. 1. september þ. á. höfðu nokkrir af vinum Hjarvals listmálara útbúið sýn- ingu á málverkum hans í Mentaskól- anum. Tilefnið var það, að Kjarval verður fimtugur á þessu hausti, 15. október, en heppilegra þótti, að hafa sýninguna á þessum tíma. Þeir, sem gengust fyrir sýningunni, vóru: Guð- brandur Magnússon framkvæmdastjóri, Magnús Kjaran kaupmaður og ]ón Kaldal ljósmyndari. Var opnun sýning- arinnar hátíðleg, forhlið skólans og brautin upp að honum flöggum skreytt, en Lúðrasveit Reykjavíkur ljek nokkur lög framan við skólann meðan sýn- ingargestirnir gengu inn. Varð þar brátt fjölmenni og söfnuðust menn saman í hátíðasal skólans. — Forsætisráðherra Hermann Jónasson opnaði sýninguna með ræðu, síðan talaði Guðmundur Finnbogason landsbókavörður, og ritstj. »Óðins« las upp kvæði til Kjarvals; en Kjarval þakkaði öllum, sem að sýning- unni höfðu unnið. Að því búnu söng Karlakór Reykjavíkur, undir stjórn Sig- urðar Þórðarsonar, nokkur lög. — Var öllu þessu útvarpað. Síðan fóru menn að skoða málverka- sýninguna. Hún þakti alla veggi í and- dyri skólans, í ganginum eftir endilöngu húsinu, í skólastofunum niðri og í há- tíðasalnum uppi. Myndirnar vóru ljeðar á sýninguna af eigendum þeirra hjer í bænum og grendinni, af ríkinu og af Kjarval sjálfum. Höfðu margir orð á því, er þeir höfðu litið yfir sýninguna, hver afkastamaður Kjarval væri og hve mikil fjöl- breytni væri í verkum hans. Þó var ekki þarna saman komið nærri því alt, sem til er eftir hann af málverkum hjer í bænum, því rúmið var þrotið í sýningarstofunum aður en það næðist alt saman. Þar að auki er margt af málverkum Kjarvals til og frá úti um land og margt erlendis. Um 700 manns sóttu sýninguna fyrsta daginn, en ákveðið var, að hún skyldi opin til 10. september. Forsætisráðherra tók það fram í ræðu sinni, að tilgangur sýningarinnar væri, að veita nokkurt yfirlit yfir verk listamannsins, en þótt margt vantaði af verkum hans, þá mundi þó mega telja, að sýningin gæfi harla fullkomið yfirlit yfir fjölhæfni og mynd- auðgi þessa listamanns. Og þá væri takmarkinu náð. En alt fram að þessari sýningu hefði slíkt yfirlit ekki verið til. Þótt við ættum bókmenta-arf frá forfeðrun- um, sem ekki yrði metinn til fjár, þá nægði það okkur ekki, sem nú lifðum á íslandi, til þess að verða taldir til menningarþjóða, ef ekki brytist hinn áskap- aði arfur þjóðstofnsins fram í fleiri greinum frum- legra gáfna og menningarstarfs. Með þessari sýningu væri fram komin enn ein sönnun fyrir því, að ís- lenska þjóðin ætti skilið stjórnarfarslegt frelsi, og mundi verða þess megnug, að taka á móti því.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.