Óðinn - 01.01.1935, Page 37

Óðinn - 01.01.1935, Page 37
Ó Ð I N N 37 netunum og strádrepinn með viðeigandi blóti og for- mælingum. — Jafnskjótt og drápið hefst, byrja óhljóð, óp og gauragangur í bátnum. Mennirnir öskra og grenja hver í kapp við annan, kasta grjóti, skorðum og öðru lauslegu út úr bátnum og gera hið mesta hark til að fæla selinn. Leir, þang og þari rótast upp og sjór- inn verður þykkur sem leðja. Blóð og brækja vellur um allan voginn, svo selurinn syndir og berst um í sínu eigin blóði. Við þefta alt ærist hann og verður viti sínu fjær af heift og hræðslu, Hann ræðst á hvað sem fyrir er, jafnvel mennina í bátunum. Hann gerir hverja árásina af annari, æðisgengna og heiftúðuga, til að reyna að sleppa, en tekst það mjög sjaldan. Það er að eins ef einstaka sel tekst að stökkva yfir netin eða rífa sig niður í botninn undir þau, að hon- um lánast að sleppa. Allur fjöldinn er að velli lagður eftir hamramma vörn og angistarfult sálarstríð. Veiðiaðferð þessi er í frekasta lagi hrottaleg og villimannleg og er ekki sæmandi siðuðum mönnum. Alþingi hefur slett sjer fram í margt sem síður skyldi en að banna slíka veiðiaðferð. En sem betur fer ger- ist þess nú ekki þörf lengur. Veiðiskapur þessi er alveg lagstur niður og mun ekki verða upp afíur tekinn. Netin, sem notuð voru við þessa veiði, voru af annari gerð og stærri en venjuleg kópanet. Möskva- stærð var 16 — 18 cm. Dýpt um 150 cm. og lengd um 15 — 18 metrar. Annars fór netagerð þessi nokk- uð eftir því, hvernig lagnirnar voru sem veitt var í. Uppidráp. »Sofa urtubörn á útskerjum*. Utselurinn er gjörólíkur landselnum að háttum Hann er langtum stærri, spakur og hægfara við fyrstu kynning, en ákaflega fyrtinn og langrækinn, þyki hon- um sjer misboðið. Utselurinn kæpir á haustin. Kæpingin byrjar um mánaðamótin sepíember— október. Hann kýs helzt að vera við eyjar og úísker, þar sem umferð er lítil og afskekt. Telji hann bæli sitt svo örugt, að hann geti að fullu haft eðli sitt, fæðir urtan kópinn uppi á grasi, eða svo hátt á skerjunum, að ekki fellur undir hann um flæðar. Þegar kópurinn fæðist er hann þak- inn ullhvítu,mjúku hári. En eftir ca. 2 vikur fara þau að falla af honum, og að 3 lil 4 vikum liðnum eru þau að fullu horfin, en steingrá eða svört hár komin í staðinn, og fer þá kópurinn í sjóinn sem fuilveðja selur. Allan barnsaldurinn hefur kópurinn legið í bælinu, og oftast sofið, nema meðan hann hefir sogið móður sína. Hvítu hárin, sem smámsaman hafa fallið af honum, liggja eins og flos í kringum hann, og hann liggur í mjúkri dýnu. Hann dafnar ákaflega vel í ból- inu. Á 2—3 vikum safnar hann 30-40 kg. af spiki. Og flækist hann í sjóinn á þessu tímabili, er hann rjett ósjálfbjarga. Sundið er honum ákaflega ótamt og loðna hárið dregur úr ferðinni. Hann rekur því mest fyrir straumi og vindi og skríður venjulega upp á næsta sker sem hann kemur að. — Kraftarnir og þrekið er í engu samræmi við likamsþungann á þessu tímabili. — Selir, sem flækjast í sjóinn áður en þeir hafa felt hvíta hárið — gengið úr snoði — og alast þannig upp á flækingi, eru nefndir sjóþvættingar. Það kemur oft fyrir, er þeir finnast, að þeir hafa skriðið sundur húðina og spikið á höndum og hreifum, svo að skín jafnvel í bert beinið. Sjóþvættingar eru altaf horaðir og stundum bitnir, og alt útlit þeirra ber vott um skort og vonda líðan. Urtan skríður upp í bælið til kópsins og gefur honum »brjóstið« a. m. k. tvisvar á sólarhring. Það kemur þá stundum fyrir að hún sofnar eða fellur í mók við að fullnægja kópnum og svala frumstæðustu móðurtilfinningum sinum. En slíkt andvaraleysi er ekki hent þeim, er sökótt eiga við mennina. Veiði- manninn getur borið að á hverri stundu og hann á það til, að þyrma hvorugu, en láta þungan eikar- kepp ríða ótt og títt að kollum hinnar seinfæru fjöl- skyldu. — Venjulegast er þó að gefa urtunni líf, þó hún gefi færi á sjer í selafari. I selafar er aldrei farið nema um fjöru. Hylst er til að fara um það leyti sem kópurinn er að fella hvítu hárin, þá er hann feitastur og stærstur Kóp- urinn er drepinn með þungum keppum, það tekur fljótt af og er hin arðsamasta vinna. Þegar kæpingartímanum er lokið, vetur færist að og útselurinn hefur lokið við að ala upp kópana — eða þeir hafa verið drepnir — dregur hann sig út af firðinum aftur. Nokkuð af honum fer eflaust til hafs, en nokkuð safnast þó saman við útsker og heldur sig þar allan veturinn. Hann liggur ákaflega mikið á skerjunum og svo hátt, að sjór nær honum ekki um stærstu flæður. Hann liggur vikum eða mánuðum saman án þess að fara í sjóinn, verði hann ekki fyrir stygð. Þó norðangarðar sjeu og frosthörkur og sker- in ísi, liggur hann engu að síður. Hann lætur þá frjósa alt í kring um slg og liggur í klakagröf eða holu. Það er víst ekki fjarri þvf, að útselurinn liggi í eins konar dvala eða móki á þessu tímabili. Hann verður ákallega magur í þessum legum á skerjunum

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.