Alþýðublaðið - 09.10.1963, Qupperneq 6
SNEMMA BYGIST
KRÓK URINN.
SNEMMA beygist krógurinn, seg
ir máltækið, en þó þykir okkur
það fulllangt gengið, að tólf ára
telpa geri tilraun til fjárkúgunar.
Danska blaðið Aktuelt segir frá
því, að þessi stúlka, sem er sænsk,
hafi sent slíkt bréf til heimilis
verkfræðings nokkurs og krafizt
10.000 sænskra króna, ella yrði
sjö ára gamalli dóttur hjónanna
misþyrmt hræðilega. í bréfinu
voru gefnar upplýsingar um hvern
ig peningunum skyldi komið til
skila.
Slegin ótta sneru hjónin sér til
glæpalögreglunnar, sem eftir
mikla erfiðleika gat rakið slóðina
til hinnar ungu og ákveðnu konu.
Hugmyndina kvaðst hún hafa
fengið eftir að hafa lesið um eina
barnsránið, sem átt hefur sér stað
í Svíþjóð, en það var framið í i
Gafle fyrir skömmu. Bréfin hefði í
hún skrifað á ritvél og þetta var i
gert í fyllstu alvöru, segir hún. I
Ekki hafði hún tekið ákvörðun um
hvernig hún myndi verja pening
unum.
Barnaverndarnefnd mun væntan
lega sjá um, að þessi efnilegi ungl
ingur valdi ekki skelfingu á fleiri
heimilum fyrst um sinn.
I Scotland Yard gat forðað hneykslinu |
HNEYKSLIÐ mikla, sem þau
I Christine Keeler og John Pro-
j fumo vöktu með hátterni sínu,
I og var rétt búið að fella stjórn
[ Macmillans, hefði aldrei orð-
j ið neitt ef Scotland Yard hefði
j tekið alvarlega upplýsingar,
j sem þangað bárust í upphafi
1 málsins.
j Ef Scotland Yard hefði metið
j þessar upplýsingar réttilega,
j hefði Macmillan getað gripið
j inn í fjórum mánuðum fyrr.
j Hann hefði getað kippt Pro-
: fumo út úr stjórninni áður en
\ sami maður tók að fullvissa
j neðri málstofuna um hið plat-
j ónska samband sitt og ungfrú
j Keeler.
Þcgar árið 1961 gat hin
j virta „sérstaka deild“ hjá Scot
j land Yard aflað sér fullnægj-
j andi upplýsinga um Stephen
I Ward og vinkonu lians Christ-
j ine Keeler. Það var áður en
j Profumo hitti gleðikonuna, og
j tækifærið gafst við hina marg
j umræddu baðveizlu á land-
j setri Astors lávarðar þar sem
j Christine buslaði nakin í laug
j inni. í það skipti var það, sem
...........Illlllimilll..
rússneski hermálafulltrúinn
bað Ward að afla sér upplýs-
inga um hvenær Bandaríkja-
menn hygðust afhenda Vestur-
Þjóðverjum kjarnorkuvopn.
Ward aðvaraði leyniþjónustuna,
sem bað Scotland Yard að hafa
auga með þeim Keeler og
Ward. Þeim tókst ekki fylli-
le<?a að átta sig á Christine og
þessar ófullnægjandi eftir-
g.ennslanir áttu sinn þátt í því
hneyksli, sem samband her-
málaráðherrans og gleðistúlk-
unnar átti eftir að vekja.
Önnur og enn meiri yfirsjón
var, að lögreglan veitti enga
athygli skýrslu, sem Christine
hafði gefið lögregluþjóni ein-
um. Þar segir hún frá þeim
s'arfa Wards, að afla háttsett-
um mönnum kvenna til þess að
gamna sér við, einnig því, að
Ward væri afbrigðilegur kyn-
ferðislega og, að hann geymdi
stúlkur í húsi á landareign
Astors. Hún skýrði frá sam-
bandinu við Profumo og því,
að Ward hefði beðið liana að
útvega kj arnorkuleyndarmálin,
segir í útdrætti fréttastofunn-
ar UPI, úr Denningsskýrslunni.
En skýrsla lögregluþjónsins
fékk að liggja óhreyfð í skrif-
borðinu og því fór, sem fór.
SKAÐSEMI
lanshljómsveit á Akranesi
Í£ry litla er ekki nema fjögurra ára gömul cg yndi hennar í líf
inu er að fara í sirkus eða dýragarð. Ilún hefur til að mynda af-
sanmð þá kenningu rækilega, að asnatetrin séu heimsk og leiðinleg
dýr. Hún hefur tekið miklu ástfóstri við lítinn asna, eins og mynd-
in sýnir og fer einstaklega vel á með þcim.
SÓKNARPRESTURINN OG SYSTURNAR
N?! tóknarpresturinn mætti
dag nckkurn Jóni, einu af sókn-
arbö num sínum og þeir tóku tal
saman.’- . ..
Prcstur snurði Jón hvort hann
væri kvæntur. Svarið var nei-
kvætt og þeir fóru að tala um
hjónabónd almennt. Prestur hélt
mjög fram kostum hjónabands-
ins \ið Jón.
— Þér vitið, að ekki er gott að
maðurinn sé einn, segir prestur.
— Já, en ég hef nú tvær syst-
ur til að sjá um mig, segir Jón.
— Já, já, en; það hlj^tið .þéj
inú að sjá sjálfur, að systur, þó þær
séu tvær, geta ekki komið í stað-
|inn fyrir konu.
— Já, en . . . þær eru ekki syst-
mínar!
REYKINGA
| ER ÞAÐ hugsanlegt, að lítill
' pappírssívalningur, sem hefur að
geyma fáein tóbakskorn, sé einn
mesti dauðsfallsvaldur vorra tíma?
Þannig spyr tímaritið World Hea-
Ith. Svarið hljóðar þannig: Ef
nokkrir mikilhæfustu læknar nú-
tímans hafa rétt fyrir sér, er það
staðreynd að sígaretturnar með
stigvaxandi skaðsemi sinni fela í
sér geigvænlega hættu. Þó að ekki
sé með fullri vissu unnt að segja
að sígarettur valdi lungnabrabba,
eru læknisfróðir menn sammála
um það, að þar sé sambancl á
milli.
í skýrslu, sem konunglega
brezka læknafélagið hefur nýlega
birt, er sýrit fram á, að dauðsföll
af völdum lungnakrabba aukast
stöðugt samhliða aukinni sígarettu
notkun, og að hættan fyrir þá,
sem hætt hafa reykingum er miklu
minni en fyrir hina.
Dr. R. Doll, sem starfar við
Lundúnaháskóla, segir í sérstakri
greinargerð, að hann efist ekki
um að sígarettureykingar séu ein
af meginorsökum lungakrabba.
Hann segir, að rannsóknir í Eng-
landi, Kanada og Bandaríkjunum
hafi allar gefið sömu niðurstöðu,
bá, að dauðsföll af völdum lungna
krabba eru tífalt algengari með
al þeirra, sem reykja en hinna,
sem aldrei hafa reykt, einnig, að
dánartalan hækki í hlutfalli við
hve mikið menn reykja, og, að
þe:t,t,a sgmband sé einnig þegar
um er að ræða minnsta magn,. som
rannsakað var, og loks, að hlut-
fallið aukist hraðar meðal þeirra,
sem reykja sígarettur, en hinna,
sem reykja pípu eða vindla.
FYRIR tveim árum hófu nokkrir strákar úr Gagnfræðaskóla
Akraness að æfa hljóðfæraleik með það fyrir augum, að skemmta
á skólaböllum. Hljóðmsveitin náði þegar miklum vinsældum hjá ungl
ingunum. Á s. 1. vori voru gerðar miklar breytingar á hljómsveit-
inni, var fjölgað mönnum og ráðinn söngvari. Þá var henni og gefið
nafn og látin heita „Dumbó“ eftir liinum fræga fíl Walts Disneys. í
sumar hafði Dumbo og Steini, en svo heitir söngvarinn, leikið á
dansleikjum í Borgarfirðinum, á Snæfellsnesinu og víðar, við mikl
ar og vaxandi vinsældir. í hljómsveitinni eru sex hljóðfæraleikarar
og svo auðvitað söngvari og eru þeir allir Akurnesingar á aldrinum
16 — 20 ára. DUMBÓ og Steini munu í vetur leika og syngja á Hótel
Akraness. Myndin hér að ofan er af hliómsveitinni, en.nöín þeirra
eru, talið frá vinstri: Sigursteinn Hálconarson, söngvari, Trausti
Finnsson, bassaleikari, Trausti Hervarsson, tenor-saxofón, Finnbogi
Gunnlaugsson, gítar, Sunnar Sigurðsson, trommuleikari og hljóm-
sveitarstjóri, Sigurður Guðmundsson, alto-saxófón, Ásgeir R. Guð-
mundsson, píanóleikari.
John Fulton, sem um þessar
mundir dvelst á Spáni og málar
þar myndir af nautaati, hefur
fundið upp á því að blanda liti
hornum nautanna,
— Það gerir myndirnar meira
ekta, segir hann.
£ 9. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ