Alþýðublaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 1
Dagmerkingar á
hyrnum ómerkar
Eins og ðllum er í fersku minni.
ollj þetta mál miklum deilum og
blaðaskrifum, meðan það var til
meðferðar í borgarstjórn. Þótti
mörgum nokkurs fyrirhyggjuleys-
is gæta í sambandi við afgreiðslu
máisins'. Hafði |il dæmis ekki
verið rætt við Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur, sem óneitanlega
hlýtur að eiga þarna stóran hlut
að máli.
Þá töldu þeir menn, sem kvöld
söluleyfi liafa nú, að þessar reglur
væru sízt til að bæta þjónustuna.
Ætti fremur að leyfa hverjum
sem vildi, að hafa verzlanir sinar
opnar á kvöldin, eða selja gegn-
um söluop. \
Flestir munu ugglaust hal'a talið,
að mál þetta væri fullafgreitt eft
ir að það hafði verið samþykkt í
borgarstjórn. Því er þó ekki þann-
ig varið, eins og Ijóst er af fram-
angreindu. Það er á valdi ráð-
herra hvort lokunartími sá, sem
um getur í reglunum, verði leyfð-
ur. Má búast við ákvðrðu*
hang innan skamms.
Reykjavík 19. okt. — ÁG
Reglur þær um iokunartíma sölu
búða, sem samþykktar voru j
borgarstjórn fyrir skömmu, Uafa
nú verið sendar félagsmáiaráðu-
neytinu, en ráðherrann verður að
samþykkja lokunartímann, ef ragl-
urnar e'ga fram að ganga.
Blaðið ræddi við Emil Jcns&on,
félagsmálaráðherra, vegna þessa
máls. Hann kvað ráðuneytið hafa
réglurnar og hefðu þær verið
sendar nokkrum félögum og fé-
lagasamtökum til umsagnar, t.d.
Neytendasamtökunum, Húsmæðra-
félaginu og Félagi söluturnaeig-
enda. Hefðu svör borizt frá nokkr-
um þessara aðila, en ekki öllum.
Engin ákvörðun yrði tekin, fyrr
en svör væru komin frá öllum að*
ilum.
MIKILL fjöldi vélbáta er nú í Reykjavíkurhöfn, eins og
sjá má á myndinni hér að ofan. Bátarnir eru um þessar
mundir margir albúnir að hefja vetrarsfldveiöar. Myndina
tók Ijósmyndari blaösins J. V. í gær af þaki Fiskiðjuvers Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur við Grandagarð.
AMMtMWMMUMHMtMMHMMMMtMMIMHUtMttHmMMtl
EINBÝLISHÚS
-ELLIHEIMILI
Reykjavík, 19. okt. — KG.
CaSLI SIGURBJÖRNSSON
fcauð í gær nokkrum fréttamönn-
um til Hveragerðis. Aðaltilgang-
urinn var að kynna nýjung sem
nú er á döfinni fyrir gamla fólk-
ið.
Kom mönnum saman um að
fcezta nafnið á henni væri Sam-
TÓK UMSÓKN
SÍNA AFTUR
Séra Ingólfur Guðmundsson
Sem hinn 15. þ. m. fékk veitingu
fyrir Mosfellsprestakalli í Árnes-
prófastsdæmi, hefur tekið aftur
umsókn sína um Bústaðapresta-
kall í Reykjavík. — (Frá skrif-
stofu biskups).
hjálp gamla fólksins. Hún er þann
ig að í einu 5 herbergja húsi er
fjórum einsfcaklingum ætlað að
búa saman, og gætu það til að
mynda verið tvenn hjón eða hjón
og tveir einhleypingar. Þetta fólk
myndi þá að mestu lifa út af fyr-
ir sig og sjá um sína matargerð,
en stofnunin sjá fyrir hráefni, þvo
þvotta þeirra og fylgjast með líð
an þeirra.
Þetta hefur þá megin kosti að
fólk, sem ennþá liefur heilsu til,
getur haldið áfram að halda heim
ili og það sparað starfskrafta þann-
ig, að dvalarkostnaðurinn lækkar
um 50 krónur á dag. En auðvitað
verður það að vera samrýmt fólk,
sem þannig býr.
Nú er húsið fyrir hendi og þeg
ar farið hafa fram nauðsynlegar
breytingar og lagfæringar geta
fyrstu vistmennirnir flutt inn.
Elliheimilið í Hveragerði á nú
Framhald á 13. siðu.
Reykjavík 18. okt. GO.
ORÐRÓMUR hefur verið uppi
um það að undanfömu, að Mjólk
ursamsalan hyggist Ieggja siður
dagmerkingar á mjólkurhyraun-
um. Við hringdum í Stefán BjÖrns
son hjá samsölunni í dag og spurð
um hann hvað hæft væri f þewru.
Hann kvað þennaú orðróm al-
rangan, hins vegar sfæði yfir end
urskoðun og samræming 6 reglu-
gerðum um þetta efni og með því
væri ætlunin að kveða níður alls-
konar vandkvæði, sem hafa verið
á dagmerkingunni.
Flutningaleiðir á mjólk eru hér
Iangar og ógerlegt er að koma
fjólkinni á markaðinn samdægurs
og hún er gerilsneydd. Merking-
arnar hafa ekki verið annað en
blekking hingað til, því að mjólk,
sem merkt er deginum í dag, er
í rauninni frá því í gær. Ef mjólk
in hins vegar væri merkt degin-
um í gær, myndi engin húsmóðir
vilja kaupa hana. Þó er þetta
sama mjólkin.
Ráðuneyti hefur skipað nefnd í
þessu máli og er það nú til at-
hugunar.
11-12 vindstig 1
Vestmannaeyjum
Reykjavík, 19. okt. — ÁG.
Djúp Iægð fór yfir vestanveri
ísland í dag. Var spáð hinr. versta
veðri á Vestfjörðum í kvöld, risrn-
ingu og roki, 10-12 vindstig. Þá
var mjög livasst á Suð-vesturlandl
og fyrir hádegi voru 11-13 vind-
stig í Vestmannaeyjum.
HMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM iwwMMMMMMMMMMMMMMMMMW!4»MM
Sjónvarpsmálin eru víðar
ofarlega á baugi en hér á landi.
Danir hafa nú komizt að þeirri
niðurstöðu, að sjónvarpið sé
friðarstillir á mörgum heimil-
um. Vilja sumir þakka það
sjónvarpinu, að hjónaskilnuð-
um fer nú mjög fækkandi í
Kaupmannahöfn. ' — Danska
blaðið Aktuelt hefur í þessu
samhandi nefnt eftirfarandi töl-
ur: Árin 1958 og 1959 voru
hjónaskilnaöir í Kaupmanna-
höfn um það bil 1965 hvort
árið. Á árinu 1961 urðu skiln-
aðir hins vegar aðeins 1582.
Margir telja, að þetta sé af-
leiðing þess, að undanfarin 3
til 4 ár hefur sjónvarpstækj-
um fjölgað mjög ört í Dan-
mörku. Hjónaskilnuöum fari
því fækkandi, þar sem nú sitji
hjónin oft og einatt í sátt og
samlyndi og horfi á sjónvE rpið
á kvöldin, í stað þess að ríf-
ast og pexa, þegar ekkert var
sérstakt til að hafa fyrir stafni.
1
MM*MMMMMMMMMM*MMMMMMMMMMMMMMMMM%MMMMMM*MMM%MMMMVAMV*
I
M%%%%%%M%%MM»M1MM‘