Alþýðublaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 10
Júlíus Helgi Kristjánsson
Hringbraut 58
verður jarðscttur frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. þ. m.
Athöfnin hefst kl. 10.30 f. h.
Fyrir okkar hönd og systkina hins látna
Kristjana Kristjánsdóttir
Sigmundur Júlíusson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýnt hafa okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför
Snorra Áskelssonar
prentara
og heiðrað hafa minningu hans.
Foreldrar, systkin og aðrir vandamenn.
EAÐSÓFIhúsgagnaaridtektSVEINN KJARVAL
lttið & húsbúnaðinn hjá húsbúnaði , , ,
EKKERT HEIMILIÁN HÚSBÚNABAR
SAMBAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENÐA I
Auglýsið i Alþýðublaðinu
BARDAGAR í ALSÍR.
Framh. af 3 .sí'ðu
kalla hann fasista.
Hin tvö stríðandj öfl hafa einu
sinni áður staðið á barmi borgara-
styrjaldar og þau kunna að forðast
hana á nýjan leik. Allir íbuar
Alsír eru uppgefnir eftir ógnir
liinnar löngu styrjaldar. Ólíklegt
er talið, að Ben Bella yrði meira
ágengt en Frökkum að bæla niður
andspyrnu Berba, ef hann reyndi
að beita Kabýlíumenn valdi. Til
þessa hefur hann forðist valdbeit-
ingu, enda kynnu völd hans að
hrynja til grunna ef hann legði
út í slíkt.
★ BOUMEDIENNE
Nú er einnig talin örlítil
von til þess að samkomulag geti
náðst í þessari deilu Berba og Ar-
aba. Þar mun Hoari Boumedi-
enne ofursti, sem kominn er frá
Moskvu þar sem hann gekk frá
mikilli lántöku, gegna mikil-
vægu hlutverki.
í fyrra tryggði stuðningur Boum
ediennes Ben BeUa völdin, og
hann er nú óefað annar valda-
mesti maðurinn í Alsír. Einkenri-
andi er fyrir stjórn Ben Bella
að margir fyrrverandi liðsformgj
ar og stuðningsmenn Boumedi-
ennes gegna embættum í henni.
Houari Boumedienne þykir
mjög dularfullur maður og lítið
er vitað um feril hans, enda varð
hann ekki þekktur fyrr en dró að
lokum styrjaldarinnar gegn Fröklc-
um. Hann er sagður dæmigerður
byl|lingairmaður. Hann heldur
þrumandi ræður og sést oft opin
berlega við hlið Ben Bella.
Boumedienpe úr kunnugur í
Kabýlíu frá gamalli tíð og er gam-
all kunningi Mouhand Ou el-Hadj
ofursta, sem var yfirmaður her-
stjórnarsvæðisins í Kabýlíu og
stjórnar nú uppreisn Berbanna.
Áhrif Boumedienne kunna að hafa
úrslitaáhrif, en ef koma á í veg
fyrir blóðsúthellingar virðist ó-
hjákvæmilegt að Ben Bella. geri
nokkrar tilslakanir.
★ EFNAHAGSÁSTANDIÐ
Við deilur Araba og Berba bæt-
ist mjög bágborið efnahagsástand.
Þjóðnýting franskra eigna gerir
lítið til þess að bæta þar nokkuð
úr.
Þjóðnýting frarÁbía dagblaða
og franskra landeigna þykja benda
til þess að Evian-samningurinn,
sem ákvað sjálfstæði Alsírs, sé
dauður bókstafur.
Ben Bella heldur því fram„ að
síðan Evian-samningurinn var und
irritaður hafí margt bieytzt. Þrír
af hverjum fjóum íbúanna af
evrópskum stofni, sem voru um
ein milljón hafa farið úr landi,
og fulivíst er talið að þessir fólks
flutningar muni halda áfram. Ben
Bella segir, að eitthvað hljóti að
hafa átt að gera við jarðirnar og
blöðin eftir að eigendurnir voru
farnir úr landi. En Ben Bella var
talinn hafa viljað láta Frakka
standa andspænis „óhaggandi
staðreynd", og þeir hafa mótmælt
harðlega einhliða ráðstöfunum
hans í þessu efni.
Ben Bella stendur andspænis
þeim vanda, að láta hinar djörfu
sósíalisma fyrirætlanir sínar
standa í einhverjum tengslum við
hinn harða raunveruleika bágbor-
ins efnahagsástands. Franskir rkatt
greiðendur munu ekki halda áfr-
am að standa undir tveim þriðju
hlutum fjárlaga Alsírs um óá-
kveðna framtíð, en það hafa þeir
gert á þessu ári.
Þrátt fyrir gífurlega aðstoð er
síaukinn halli á fjárlögum. Alsír
skortir mjög tæknifræðinga. kenn
ara og verkfræðinga, en að þessu
leyti hafa Frakkar einnig hlaupið
undir bagga. Góðar tekjur um
300 þúsund Alsírbúa í Frakklandi,
sem þeir senda heim, eru helzti
tekjustofninn í erlendum gjaldeyri
Frakkar hafa tilkynnt, eins og
við hafði verið búizt, að þeir muni
skerða -aðstoð sína við Alsír sam
kvæmt Evian-samningnum, en Ben
Bella hefur þegar tryggt sér 36
milljón punda lán í Sovétríkjun-
um. En þetta lán 'verður aðeins
fjórðungur af því sem Frakkar
hafa veitt Alsir í beina aðstoð á
yfirstandandi fjárhagsári. Lánið
er hins vegar talið munu draga úr
slæmum áhrifum af skertri aðstoð
Frakka.
Talið er, að Ben Bella muni
halda áfram þeirri stefnu sinni
að þjóðnýta allar jarðeignir, en
jafnframt virða „brýna hagsmuni!‘
Frakka, það er gas- og oliuhags-
muni í Sahara og leigu Frakka
á flotahöfn í Alsír. Hann er ekki
talinn munu reyna að stofna hin-
um góðu samskiptum við Frakka
í hættu.
★ ÞOLGÓÐUR
Ben Bella er talinn hafa vax-
ið mjög af viðfangsefnum sinum
síðan hann hélt inn í Tlemcen
í Vestur-Alsir frá Marokkó fyrir
fjórtán mánuðum. Hann hefur þétt
sýna mikinn þroska og þolgæði,
þó að unglegt útlit hans berj ekki
HELLÐÍ \fjANE,IiW CEKmN ~t=
HELLO .1 YOUMKTBB PLEASEP
70 LSAIZN THAT NOT A
OH-IT'sN V/ORO HASCOME IN
you, I TO THS FOUCB AB0UT
JiL, M? DEI.AWP /
V i.
y..
— Fannstu Delane, Karl? — Ekki enn-
, þá. Þetta er sennilega bara auglýsingabrella.
— En ef þetta skyldi nú vera aivara. Já,
ef til vill er þetta mannrán.
1 — Vesalings Delane hefur nú verið sakn
að lengi. Ríkislögreglan er sennilega farin
að leita að honum núna.
— Heyrðu Kata, vcizt þú eitthvað um
Iiann?
— Nei, nei, ég veit ekkert.
— Halló, halló, ert þetta þú Angie?
Þú hlýtur að vera ánægð Jane, lögregl
an hefur ekkert heyrt frá Clipper Dclane.
— Já, það er gott.
vott um það (hann er aðeins 47
ára). Hann er sá eini af hinum
fyrrveýandi leiðtogum Alsírbúa,
sem er enn við völd.
Þrátt fyrir mikla erfiðleika er
sagt, að stjórnin í Alsír liafi á-
stæðu til þess að vera ánægð
eftir eins árs valdaskeið. Búizt
hafði verið við því, að flótti fiestra
frönsku landnemanna, scm gegndu
nær öllum mikilvægum embajtt-
um í landinu og störfum, sem
kröfðust kunnáttu, mundi leiða
tii algers hruns í efnahagsmálum.
Ekki var gert ráð fyrir þessum
fólksflutningum fyrirfram, en hrun
ið sem gert var ráð fyrir, hefur
ekki gerzt.
Mikilvægri þjónustu við almenn
ing í Algeirsborg hefur verið hald
ið gangandi. Ný stjórn hefur ver
ið byggð upp frá grunni þrá:tt
fyrir algerlega óreynt starfslið og
nær engin gögn. Byrjað er á því
að hrinda geysivíðtækri stefnu-
skrá í landbúnaðarmálum í fram-
kvæmd með því aö láta fram-
kvæmdanefndir, uem verkamenn
kjósa, taka við stjórn jarðeigna,
sem eigendur hafa yfirgefiö.
★ DEILA VIÐ MAROKKÓ
Þriðja vandamálið, sem Ben
Bella á við að stríða. er deilan
við Marokkómenn, sem ekkj hafa
verið seinir að færa sér ástandið
í nyt. Hér er um landamæradeilu
að ræða, en það sem undir býr
er ágirnd Marokkómanna á olíu-
auðæfunum í Sahara, sem eru mik
ilvæg fyrir efnahag Alsírs.
Marokkómenn hafa lagt áherzlu
á landakröfur sínar og vonast til
þesg að geta fengið sinn skerf af
olíunni í Sahara. Alsírbúar hafa
sakað Marokkómenn um að hafa
ekkí virt landamærin og um tíma
leit út fyrir, að Marokkómenn
mundu hertakg eða endurhertaka
nokkur umdeild landssvæði á hin
um illa merktum landssvæðum.
Alla vega er talið, að Marokkó-
menn munu hagnast á ástandinu.
Við þessa landamæraþrætu iiafa
bætzt alvarlegar ásakanir Ben
Bella á hendur Marokkómönnum
þess efnis, að þeir styðji andstæð
inga alsírsku stjórnarinnar í
Kabýlíu.
En siðustu daga hefur vaknað
von um að þessi milliríkjadeila
leysist. Utanríkisráðherrar Alsírs
og Marokkó héldu fund með sér
um helgina á landamærum ríkj-
anna, og að honum loknum gáfu
þeir út yfirlýsingu þar sem látin
var í Ijós von um, að endi yiði
bundinn á spennuna í sambúð ríkj
anna. Samkomulag náðist- um það
að Hassan Marokkókonungur og
Ben Bella héldu fund með sér síð
ar til þess að reyna að leysa ágrein
ingsmálin.
Hassan Marokkókonungur á við
innanlandsvandamál að stríða eins
og Ben Bella og vill að lausn náist
í Saharadeilunni. Ef Ben Bella vill
ná samkomulagi er sagt, að hann
verði að sýna sveigjanleika og
þennan eiginleika er Ben Bella
einnig talinn þurfa í deilunni við
Kabýlíumenn.
Bílasalan BÍLLINN
Sölumaður Matthías
Höfðatúni 2
Sími 24540.
ihefur bílinn. i
10 20. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ