Alþýðublaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 6
Um jarðarfararkostnað, einlífi og fleira
★ Maðurinn „skreppur saman“
um einn sentímeter á hverjum 20
árum, samkvæmt upplýsingum
brezks læknablaðs.
—O—
★ Piparmey átti 70 ára afmæli.
í veizlunni hafði einn af ættingj-
um hennar orð á því, að það væri
cinkennilegt, að hún skyldi aldrei
hafa gifzt, jafnfögur kona og liún
hefði verið á sínum yngri árum.
Afmælisbarnið stundi:
—. Ég á hund, sem geltir, páfa
gauk, sem rífst og skammast all-
an Liðlangan daginn og kött, sem
steist út á næturnar. Hvað hef ég
að gera við eiginmann?
—O—
★ Á járnbrautarstöð í New
York er hægt að fá lánaðar regn-
hlífar ef mikið rignir meðan menn
bíða eftir lestunum. Allur galdur-
inn er að koma í miðasöluna og
biðja um regnhlíf og menn þurfa
ekki einu sinni að kvitta fyrir.
Ástæðan er sú, að regnhlífarnar,
sem lánaðar eru, hafa allar
gleymzt í lestunum og skipta tug-
um þúsunda.
—O—
★ Við rannsóknir á lífsskilyrð-
um manna í Ameríku hefur sú
staðreynd komið í Ijós, að tiltölu-
lega dýrasti útgjaldaliður Ameríku
mannsins er jarðarfararkostnaður!
—O—
Þær fréttir berast frá Banda-
ríkjunum, að skólastjórinn í Wynd
ham-telpnaskólanum í Kansas
City hafi f ramkvæmt skoðun á
veskjum nemenda sinna, sem lög-
boðin er vikulega en hefur ekki
verið framkvæmd síðastliðin sex
ur, og „mikið magn getnaðar-
varnalyfja”. Stúlkurnar í skólan-
um eru á aldrinum 12-18 ára.
—O—
★ Kaupmaður nokkur í Noregi
rak tízkuverzlun — en spilaði fjár
hættuspil í tómstundum og tap-
aði hverjum eyri, sem hann
græddi á verzluninni. Einhverju
sinni kom viðskiptavinur askvað
andi inn í verzlunina og sagði
grimmilegri röddu:
— Hvurslags verzlun er þetta
eiginlega? Fyrir tveimur mánuð
um keypti ég brún föt hér, en nú
eru þau orðin gatslitin.
Kaupmaðurinn leit upp með
hægð og sagði:
— Hvað er það svosem? Mun-
ið þér eftir 1500 krónunum sem
þér borguðuð mér fyrir fötin. Þær
entust mér ekki nema í tvo
klukkutima.
ár. Samkvæmt skrá, sem skóla-
stjórinn sendi lögreglunni fannst
eftirfarandi í veskjunum: 87 vara-
litir, tveir spilastokkar með
merktum spilum, tvær rúllrn- af
munntóbaki, rúmlega 200 mariu- j
hanasigarettur, næstum 1000 „ró
andi eða „hressandi“ töflur þrjár
^ óþefssprengjur, ein lifandi kanína,
j sjö mýs, níu hlaðnar skammbyss-
i (uiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiii
PRINSINN OG ÉG.
MENNINGARLEYSI UNGVIÐSINS
VART gretur öllu sprækari
og sporléttari mann en mig,
þegar ég legg af stað í sunnu-
dagsreisu meff prinsinn í eftir-
dragi. Við skulum láta liggja
milli hluta hvernig andlegri
heilsu minni er háttað, þegar
iíf'a tekur á daginn, veskiff er
orffiff mjóslegiff og aumingja-
legt eftir rífleg kaup á ís og
poppkorni og ekki hefur mun
aff nema hálfu skrefi, aff viff
stigjum upp í Akureyrarvagn-
inn og brunuðum norður í land
— af því aff prinsinn vildi fara
í „sveitastrætó". ‘
Þaff var í einni slíkri reisu,
sem viff stóðum skyndilega á
Suffurgötunni og höfffum nýlok
ið viff aff gefa öndunum tvö
hell franskbrauff, heUt normal-
brauð og hálft seitt rúgbrauff,
sem viff keyptum jafnóffum í
Björnsbakaríi. Prinsinn bentl
aUt í einu á nýiegt listaverk I
garffi og sagði:
— Hvaff er nú þetta?
Uppfræðslu blaða og útvarps
var það að þakka aff ég liafði
svarið á reiffum höndum:
— Þetta er fugUnn hann
Fönlx.
Prinsinn þurfti aff fá ýmsar
nánarl upplýsingar um fugl
þennan, fór eins nærri honum
©g frekast var kostur og skoff-
aði hann í krók og kring.
Heldur fór aff syrta í álinn,
þegar hann vildi fá aff klifra í
fuglinum — eins og klifurgrind
inni á leikvellinum — og kunni
ég ekki annaff ráff vænna við
þeirri málaleitan, að Fönix
ætti þaff tU aff bíta stráka í sitj
andann.
Þetta hreif.
En þegar viff vorum í þann
veginn aff yfirgefa þennan sér
kennilcga fugl, bendir prins-
inn á húsiff viff hliðina og seg-
ir:
— Og þarna situr litill fugl
uppi á þakinu!
Þaff tók mig dágóffa stund aff
átta mig á samhenginu í heila-
búl þessa hoids af mínu hohli
eu loks rennur upp fyrir mér
ljós:
Uppi á þakinu því arna gnæf-
ir viff hfmin reisulegt tveggja
hæffa ajónvarpsloftnet!
Ég hef alitaf boríff djúpa
virffingu fvrir nútímalist og
þorffi því ekki aff brosa aff svo
bontlausu menningarleysi ung-
viffisins, — ekki nema meff
sjálfum mér . . . Rex.
IIUIIIIUIIUIUIIIIIIIllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllll>v
Kúluhattar aftur í tízku
Nú eru kúluhattarnir aftur komnir í tízku og slátrarar í Kaup-
mannahöfn hafa ákveffiff aff endurvekja ævagamla erfffavenju og
bera slíka hatta. Þaff voru slátrarar hjá Börge Mortensen sem fyrst-
ir riffu á vaffiff og myndin er einmitt af þeim.
Málarinn Rex Clausen hefur
gert málverk af Kennedy Banda-
ríkjaforseta, þar sem hann lætur
hann sitja nakinn í ruggustól sín-
um. Aðsókn að sýningu verksins
er gífurleg og er það til sölu á
sem svarar 90 þúsund krónum ísl.
Lögreglan hefur ekki enn þá skipt
; sér af málinu. Listamaðurinn
kveðst líta á nekt forsetans á
mvndinni sem tákn andlegs.hrein-
leika, svo að vissulega má líta
á málverkið sem hina mestu sæmd
fyrir forsetann.
Rússneskt blað sagði frá því
fyrir nokkru að úsbekiskur læknir
í Pamírfjöllum hefði fundið mörg
kíló af múmíusmyrslum, sem hin
frv-na læknisfræði Austurlanda
taldi mjög gott læknislyf. Þegar
í ritum Aristótelesar er talað um,
að rífin lifur í geithafri hafi gró-
ið við hjálp þeirra.
| Kennari einn, Usman Dsjalikoff
' að nafni, hefur nú uppgötvað 45
kíló af þessu efni í fjöllum Tad-
; siikistan. Það er dökkbrúnt og
hefur nú vísindaakademíunni í
Tadsiikistan verið sent það. Þetta
er mjög merkilegur fundur frá
vísindalegu sjónarmiði. Um lækn-
andi eiginleika smyrslanna segir
G. Makhamoff, forseti læknis-
j r—vðirannsóknastöðvarinnar í
i Tasjkent:
Gerðar hafa verið tilraunir með
j smyrslin á kanínum og það sýndi
I sig að á sumum sviðiun tekur það
öðrum lyfjum fram, til dæmis við
beinbrot. Smyrslin hraða endur-
byggingu fruma og vefja.
Lögreglan í Beirut truflaði ný-
lega hveitibrauðsdaga hjóna nokk-
urra í fjöllum Libanons. Ástæð-
an var sú, að brúðurin, hin dökk-
eyga Gazleh Omran, var þarna að
halda óttundu hveitibrauðsdaga
sína á þessu óri, — án nokkurra
skilnaða jafnframt.
★ Og svo var það lífsreynda
stúlkan, sem sagði, að kynþokki
væri það að gera karlmenn for-
vitna um það, sem þeir raunar
vissu ósköp vel!
Málverk af skírn Jesú, sem
keypt var á Spáni fyrir mörgum
árum, og fært að gjöf gagnfræða-
skóla í Austin í Texas, hefur nú
reynzt vera eftir E1 Greco.
Einn af kennurum skólans, sem
er kunnugur verkum EI Grecos
fann fangamark meistarans efst í
horni málverksins, sem er um það
bil hálfur annar metri á hæð.
Kennari þessi, sem heitir Mc-
gee, telur myndina vera frá fyrstu
málaraárum E1 Grecos. sem uppi
var á sextándu öld. Málverkið er
mjög ólíkt seinni tíma verkum
hans, segir hann, bæði að því er
snertir myndbyggingu og tækni.
6 20. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐiÐ