Alþýðublaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 20.10.1963, Blaðsíða 2
i JUtstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — Fréttastjóri: | Ami Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald tr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. ÞJÓÐIN VERÐUR AÐ STALDRA VIÐ j í TVEIM RÆÐUM, sem Gylfi Þ. Gíslason við- j skiptamálaráðherra flutti samdægurs, lagði hann , spilin á borðin og skýrði viðhorf ráðamanna Alþýðu flokksins og Sjálfstæðisflokksins til þess vanda. j sem steðjar að efnahagskerfi þjóðarinnar. Gylfi , sagði, að þróun síðustu mánaða í verðlags- og kaup 'gjaldsmálum hefði ekki verið í samræmi við stefnu | ríkisstjórnarinnar eða samkvæmt ósk hennar, held ! ur í algerri andstöðu við það, sem 'hún vildi og ætl- aðist til. Ríkisstjómin hefði hvað eftir annað | Ihvatt til þess, að launahækkanir yrðu ekki meiri j en svaraði til aukningar þjóðartekna. Samkvæmt upplýsingum ráðherrans má nú búast við, að viðbrögð ríkisstjórnarinnar verði í stórum dráttum á þessa leið: 1) Gengislækkun kemur ekki til greina vegna þess, hve gjaldeyrisstaða þjóðarinnar er sterk, framleiðsla vaxandi og verðlag útflutningsaf- urða hagstætt. 1 lO'.V?' O.-r', \ Hin heimsfrægu NORDMENDE fást nú í B mismunandi gerðum. sjónvarpstæki Uppsetning á loftnetum og ábyrgð á endingu. 2) Þjóðin verðurað staldra við — dragaúrAUKN- INGU fjárfestingar og neyzlu. Framkvæmdir j verða að komast í samræmi við skynsamlega hagnýtingu þess vinnuafls, sem til er í land- « inu. 3) Almenn launahækkun má ekki verða. Þetta tel- ur Alþýðuflokkurinn þó óhugsandi, nema hin- um lægst launuðu verði á einhvern hátt bætt kjörin og verðlag verði bundið. 4) Ríkisstjórnin telur, að útflutningsatvinnuveg- irnir geti borið sig með núverandi kaupgjaldi, m. a. vegna útlits um verð útflutningsafurða. EINKARITARI ■ FRAMTÍÐARSTARF Vér viljum ráða vana skrifstoíustúlku, sem gæti tekið að sér einkaritarastarf hjá oss. Málakunnátta er nauðsynleg ásamt góðri æfingu í vél- ritun. Æfing í að vélrita eftir segulbandi er æskileg. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri SÍS, Jón Arn- þórsson, Sambandshúsinu. I Gylfi sagði, að með réttum rökum yrði ekki mælt á móti þeirri staðreynd, að stefna ríkisstjórn arinnar í efnahagsmálum undanfarin ár hefði leitt til hagkvæmari og traustari framleiðsluhátta og heilbrigðari og frjálsari viðskiptahátta en áður áttu sér stað. Skynsamleg stefna í efnahagsmálum, igott árferði og hagstæð 'viðskiptákjör hefðu valdið því, að þjóðarframleiðsla hefði aukizt og lífskjör þjóðarinnar batnað undanfarin ár, jafnframt því sem þjóðin 'hefði eignazt yfir þúsund milljóna gjald eyrissjóð og endurvakið lánstraust sitt erlendis. Hins vegar kvað Gylfi skaðlega ringulreið hafa verið á sviði kaupgjalds- og verðlagsmála og hefði þar farið mjög á annan veg en stjórnin hefði ætl- azt til. Þess vegna yrði nú að staldra við og gera ráðstafanir á því sviði til að varðveita það, sem unn izt hefur. STAR F SMAN N AH ALD ||| Saksóknari kannar málið Reykjavík T8. okt. — ÁG BLAÐIÐ hafði í gær samband við full'trúa saksóknara ríkisins og spuroi han nfrétta af máli Sigur- biiörns Eiríkssonar. Kvaff hanil saksóknara liafa fengiff máliff aff kvöldi 17. þ.m. og væru þeir tæp- ast farnir aff lesa skýrslurnar yfir. Máliff snérist affxllega um meint sv'k Sigurbjörns gagnvart bönk- unum hér, sem væru í því fól'g- in, að selja mjög liáar innstæðu- fausar tékkaávísanir. Hefði Sig- urbjörn viðurkennt þaff brot. Þá hefði rannsóknin einnig beinst að því hvort hlutaðeigandi gjaldkerar Landsbankans hefðu gerzt brotlegir við refsilögin með því að kaupa ávísanir af Sigurbirni Um niðurstöðu rannsóknanna vildi hann ekkert segja en kvað nánari frétta að vænta eftir helg ina. Fræðslufundur Vélstjórafélags Vestmannaeyia VÉLSTJÓRAFÉLAG Vestmanna- eyja efnir til fræðslufundar um verkmenningu og kjaramál í Akogeshúsinu í Vestmannaeyjum n. k. sunnudag kl. 13.30. Vélstjóra félagið leitaði til Iffnaffarmála- stofnunar íslands um aðstoff til aff koma þessum fundi á og varð stofnunin viff þeirri beiffni og munu þeir: Sveinn Björnsson, verkfr. og Þórir Einarsson, viff- skiptafr. flytja fyrirlestra á fund- inum og leiðbeina þátttakendum að öffru leyti. Gert er ráð fyrir, að fundurinn standi yfir frá kl. 13.30 og fram eftir kvöldi með stuttu kaffi- og matarhléi og verða eftirtaldir fyr- irlestrar fluttir: Lífskjör og fram- leiðni. Markmið og tilgangur hag- ræðingar. Ný launagreiðslukerfi, eðli þeirra og uppbygging. Sam- starfsnefndir starfsmanna og stjórnenda í fyrirtækjum og kerfis bundið starfsmat. Eftir hvern fyr- irlestur verða frjálsar umræður og fyrirlesarar munu svara fyrir- spurnum og einnig verða sýndar fræðslukvikmyndir. Öllum er heimill aðgangur, með< an húsrúm leyfir. £ '20. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ l

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.