Alþýðublaðið - 20.10.1963, Side 8

Alþýðublaðið - 20.10.1963, Side 8
IndriS G — Aldrei ætlað' að s Indriöi G. Þorsteinsson ræöir viÖ Alþýöublaðið um nýju skáldsöguna sína. ÞEIR íslenzku höfundar munu teljandi á fingrum annarrar hand- ar, sem fólk bíður bókar frá með meiri eftirvæntingu en Indriða G. Þorsteinssyni. Eflaust ber margt til, en ein af mörgum á- stæðum grunar mig, að sé sú, að fólk þekkir hann ekki að öðru en því að skrifa um samtíðina eða síðustu áratugi og þar með sjálfa kviku lífsins á þeim dögum, sem við lifum í stað þess að flýja aftur í aldir eða gerast ómerki- legur. Það er nokkuð síðan kvis- ast tók, að hann væri með nýja skáldsögu í smíðum, og nú er vit- að, að hún kemur út hjá Iðunni sem næst miðjum nóvember. Þó mun það hending, að bókin lend- ir í jólaflóðinu, því að höfundur- inn er ekkert ginnkeyptur fyrir því, enda kom 79 af stöðinni út í apríl og Þeir sem guðirnir elska meðan nótt var björtust. Það var eins og hver önnur heppni, að leiðir tveggja blaðamanna- skyldu liggja saman í Ingólfsstræti um kaffileyti á fimmtudaginn, enda hafði það háskalegar afleiðingar fyrir þessa síðu í blaðinu. Eg spurði, hvort Indriði væri buinn að skíra bókina. —- Já, hún á að heita Rand og synir, — og það er verið að lesa próförk. af henni nú. Aðalstuðn- ingsmaður minn í því máli er Bjarni Vilhjálmsson, magister, en hann hefur lesið yfir mín handrit síðan 79 af stöðinni — að henni meðtaldri. Þetta hefur verið mér mikilsvert og Bjarni betri en enginn í sambandi við rit- störfin, ekki sízt af því að hann er einkanlega frjálslyndur mál- fræðingur. — Og Valdimar gefur út? — Já, hann er í Egyptalandi um þessar mundir, og kannski kemur hann ekki heim, fyrr en allt er. farið á höfuðið út af þessari út- gáfu. — Ertu mjög hræddur um, að það fari á höfuðið. — Ætli sé ekki bezt að láta Valdimar svara því. Þið getið pröfað að hringja í hann. — Hvenær fórstu að hugsa til að semja þessa nýju skáldsögu og efna til hennar? — Það var sumarið 1958. Síð- an eru eiginlega komnar þrjár mismunandi sögur út úr þessu, sem allar eru ónýtar. Það má segja, að þetta sé fjórða útgáf- an. Annars byrjaði þessi saga eiginlega uppi á Eyvindarstaða- heiði. Þegar ég var búinn með 79 af stöðinni, fór eins og ævin- lega vill verða í þessum sökum, að maður var tómur og fannst allt vera búið og ekkert meira að segja upp á lífstíð. Þá vildi svo til, að ég fór með frænda mínum og syni hans uppi á heið- ina. Við vorum þar viku og höfð- umst við í Bugakofa, sem er torf- hús á þeim slóðum. Þessa daga voru kallarnir einmitt að reka upp hrossin sín. Það rigndi mik- ið, og þeir voru blautir, svo að stóð af þeim gufan. Þá datt mér allt í eipu í hug að skrifa sög- una, sem þeir færðu mér upp í hendurnar í ákveðnum skilningi Stundum komu þeir í sólskini á morgnana og höfðu rekið hross- in alla nóttina, stundum komu þeir blautir og hrakttr í rigningu undir kvöld. Eg man eftir einum þeirra. Hann hafði ekkert nesti þarna á fjöllunum nema einn skreiðarfisk, sem hann bar í jakkavasanum, eins og veski. Við fylgdum honum inn að Haugakvísl, sem er nær miðri heiði. Eg var að hugsa um þetta á leiðinni og fannst tilvalið að skrifa um þessa kalla, sem voru alltaf með annan fótinn á heiðinni en hinn í byggð. Svo róluðum við yfir Litlasand og niður í írafell, og ég var enn að velta þessu fyrir mér á leið- inni. — Hvenær er bókin tímasett? — Hún er staðsett í fortíðinni — fyrir stríð. Við getum dregið hreinar línur milli tveggja tíma- bila með árinu 1939. Eftir stríðið og hernámið hafa verið allt aðrir tímar og önnur sjónai’mið í gildi en á þeim árum, sem mörkuðust af kreppunni og fólki hennar. 79 af stöðinni fjallar um seinna tímabilið, en í báðum bókunum, henni og Landi og sonum, — er ég að skrifa um minn tíma og samtíð okkar, þó að ég hafi byrj- að á seinna tímabilinu og bæk- urnar séu því ekki skrifaðar í réttri, „krónólógískri” röð. Hins vegar verða þær ekki slitnar sundur frekar en þróunin sjálf, þó að þær fjalli nákvæm- lega um sama fólk og sama tíma. Það hafa sumir haldið, að end- irinn á 79 af stöðinni væri ein- hvers konar tilviljun eða bók- menntaleg slembilukka, en það er ekki rétt. Mér er fyllilega ljóst, hvað ég hef verið að skrifa. — Land og synir er m. a. samin til að undirstrika það. í henni er fjall- að um manninn, sem fer brott og af hverju hann fer. Hún er um , aðfarann að brottför manna að heiman sem síðan eiga ekkj aft- urkvæmt, — manna eins og Ragn- ars í 79 af stöðinni. Sú bók var aftur á móti um þann, sem er far- inn brott, ætlar heim, en kemst það ekki vegna þess, að það hef- ur aldrei verið nein forsenda fyr- ir því, að menn snéru aftur til þess tíma, sem var. — Á hve löngum tíma gerizt bókin, sem nú er að koma út? — Eg mundi segja, að það gæti verið nærri því einn mánuður eða frá því að göngur hefjast og fram í fyrstu snjóa. Það er tölu- vert af köllum þarna, og eins og nafnið bendir til, þá eru þeir engar aukapersónur í bókinni því að þeir eru allir runnir upp af þessum bletlum sínum og þar af

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.