Alþýðublaðið - 24.10.1963, Side 11

Alþýðublaðið - 24.10.1963, Side 11
LIÐIÐ' VERÐSKULDAÐ 2:1 Ánægjuleg afmælisgjbf til enska knattspyrnusambandsins LONDON, 23. okt. NTB-R. Rútnlega 100 þúsund áhorfend- ur sáu enska landsliðið sigra „heimsliðið” á W'embley í dag: með 2 mörkum gegn 1. Öll mörki\ voru skoruð í síðari hálfleik og sigurinn var fyllilega verðskuldað- ur. Þetta var mjög ánægjulegur sigur og enska knattspyrnusam- bandið gat vart fengið betri afmæl- isgjöf í tilefni 100 ára afmælis- ins. Öll mörkin voru skoruð ,,inn- an fjölskyldunnar” eins og segir í fréttaskeytum, þ. e. Skotinn Den- is Law gcrði þetta eina mark „heimsliðsins.” Paine og Greaves skoruðu fyrir England. Greaves skoraði annað mark, en það var dæmt ógilt. Veðurskilyrði voru hin be-ztu, heit haustsól og nærri logn. Sigur Englendinga hefði getað orðið mun stærri eftir gangi leiks ins, tvö til þrjú mörk yfir í fyrri hálfleik hefði verið sanngjarnt. Það var ekki fyrr en á 56. mín., sem fyrsta markið kom. ★ Marktækifæri á 1. mínútu. Þegar á 1. mínútu leiksins virt- ist ekkert geta komið í veg fyrir mark, Bobby Chalton sendi ágæt- an bolta til Jimmy Greaves, sem skaut beint í fangið á rússneska markverðinum Yasjin úr erfiðri aðstöðu. Er 15 mínútur voru af leik er Yasjin láréttur í loftinu til að bjarga hörkuskoti frá Greaves, þeir Bobby Smith og George Sast- ham áttu einnig hörkuskot á mark ið, en hinum frábæra Yasjin tókst að halda markinu hreinu. Það var grein'legt, að „heimsliðið" lék með hálfum hraða í fyrri hálfleik og liðið virtist fremur ósamstillt. Ekki er því samt að neita, að ýmis legt fallegt sást til einstakra leik- manna. ★ Bjargaff á línu. Síðari hálfleikur hófst með á- gætu ensku marktækifæri, en Euc aguirre frá Chile, sem lék bak- vörð í stað Djalma Santos, bjargaði á línu. Á 8. mínútu síðari hálfleiks hafnaði boltinn í marki „heimsliðs ins“, en þar sem Greaves fékk á JIMMY GREAVES skoraði tvö mörk, en annaff var dæmt ógilt. ★ Sigurmarkiff 3. mín. fyrir I'eikslok. Markið efldi Englendinga mjög og þrem mínútum fyrir leikslok skoraði Greaves sigurmarkið, en hann var jafnframt bezti maður leiksins, þessa „leiks aldarinnar“ eins og sumir kalla hann. Skömmu áður áttu Charlton og Greaves skot í þverslá í opnum tækifær- um. ★ Markmennirnir beztir. Beztir í „heimsliðinu" voru Yasj in frá Sovétrikjunum og Soskic frá Júgóslavíu, sem báðir sýndu hrein kraftaverk milli márkstanganna. Beztur í framvarðlinunni var Pop- ulhar frá Tékkóslóvakíu en í fram- línunni voru þeir beztir, Denis Law og Gento úr Real Madrid. Það var greinilegt, að liðið var ekki samhæft. Úti á vellinum sáust falleg tilvik, en allt var eyðilagt upp við enska markið. ★ Greaves bezti maffur leiksins. England sýndi aftur á móti, hvernig lið á að vinna saman, lið- ið var jafnt, aðeins Jimmy Greaves ' * 7 ‘ _ skar sig úr, en hann var eins og j \ 1 CTÍ ITTÍ / ' M Áf I fyrr er sagt, bezti leikmaður leiks- * 'I ‘ð|;y H' ,W'' ; Denis Law skoraffi eina mark „heimsliffsins' sig fríspark rétt í því að skotið var á mark, var það dæmt ógilt. ★ „Heimsliffsmenn" höfðu Ieik- iff 663 Iandsleiki. ★ England skorar. Loks á 21. mínútu kom fyrsta markið, hægri útherji Englands Terry Paine skoraði. Paine átti fremur laust skot á markið eftir sendingu frá Jimmy Greaves. ★ „Heimsliffiff“ jafnar. Þegar eftk markið sótti „heims- liðið" mjög fast og Seeler, Vestur Þýzkalandi, Puskas og di Stefano áttu allir góð marktækifæri en tókst ekki að skora. Á 37. mínútu leiksins tókst Skotanum Denis Law að jafna, en Puskas og Seeler áttu einnig sinn stóra þátt í markinu. Leikmenn ,,heimsliðsins“ höfðu alls leikið 663 landsleiki, en flesta hafði Ferenc Puskas leikið eða 89. Ensku leikmennirnir höfðu alls leikið 198 landsleiki, flesta hafði Bobby Charlton, Manchester Utd. eða 46. Reiknað er með, að 250 milljónir manna hafi fylgzt með leiknum í útvarpi og sjónvarpi. KR-ingar sigursælir Meistaraflokkur KR í handknatt leik hefur veriff á keppnisferff í Vestur-Þýzkalandi undanfariff. Viff höfum frétt af þrem leikjum liffs- ins, tveiin lauk meff sigri og ein- um meff tapi. í fyrsta leiknum mættu KR-ing- ar BTC-Ilamborg og KR vann meff yfirburffum, 17-8. Þcss skal getiff, aff 11 léku í hvoru, en því eru KR-ingar algjörlega óvanir. Næsti leikurinn var gegn Blue Weise 1894 og enn sigruffu KR-ingar eg nú meff 17-15. Loks mætti KR- liffinu Rodalbur, en þaff liff er Pfalz-nieistari. Þjóffverjarnir sigr- uffu meff 27-15. di Stefano fyrirliði „heimsliffsins. London, 22. okt. NTB-Reuter. ★ Tíu þúsund áhorfendur — og þ.á.m. leikmenn „hemisliffsins” og enska landsliffiff sáu Kaupmanna- hafnar úrval sigra Arsenal í siff- ari leik affilanna í svokallaffrl „mcssbycup” hér í kvöld meff 3 mörkum gegn 2. Staðan í hálf- lcik var 1-1. Arsenal sigraffi í fyrri leiknum meff 7-1 og hehlur því áfram keppni. Álaborg, 22. okt. (NTB-RB). ★ Á Álaborgal'-stadion í kvöldl sigraði AB finnsku bikarmeistar- ana Valkeakoskan HAKA meff 6 mörkum gegn 1. í hálfleik var staffan 3-0. Oslo. 22. okt. NTB. -*■ Norska landsliffiff sigraði Val- erengen í kvöld meff 4 mörkum, gegn 3, en leikurinn fór fram á Bislet. vuwtMwmwHMHtnimt Evrópumet í 100 metra bringusundi Bukarest, TT-AFP. Rússneski sundmaðurinn Georgij Prokopenko setti nýtt Evrópmnet í 100 m. bringusundi á alþjóðlegu sundmóti hér, synti á 1.09,2 mín. Gamla metiff, 1.09,6 mín., átti Rússinn Michael Farafonov. MMWMWIWWWWIWWMWM ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. okt. 1963

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.