Alþýðublaðið - 29.10.1963, Blaðsíða 4
CHUNG HEE PARK
FORSETISUÐUR-KÓREU
CHUNG HEE PARK hershöfðingi,
Jieiðtogi herforingjastjómarinnar,
sem komst til valda í Suður-Kóreu
eftir byltingu árið 1961, var ný-
tega kjörinn forseti landsins til
næstu f jögurra ára.
Bandaríkjamenn hafa lagt liart
að herforingjastjórninni að efna
4;il almennra þingkosninga, sem
lleiða mundu til þess, að borgara-
leg stjórn tæki við af herforingja-
ístjórninni. Þeir hafa ekki verið á-
inægðir með einræðiskennda
stjórn Parks hershöfðingja, enda
vonuðu þeir að lýðræði tæki við
eftir margra ára einræðisstjórn
Syngman Rhees. í S-Kóreu eru 50
þúsund bandarískir hermenn og
llandið hefur fengið rúmlega 5
milljarða dollara í hernaðarlega
og efnahagslega aðstoð.
Chung Hee Park
— strangur þjóðhöfðingi.
26. nóvember n. k. fara fram
kosningar til þjóðþingsins, þar
í>em 175 þingfulltrúar eiga sæti. En
öll völd eru í höndum forsetans
samkvæmt nýrri stjórnarskrá, sem
samþykkt var í desember s. 1.
■k BREYTING
Chung Hee Park var svo lrtt
jþekktur þegar í ljós kom, að liann
stóð að baki byltingu hersins 16.
imaí 1961, að enginn var viss um,
•tivort ættarnafn hans væri Chung
«ða Park. Hann var þá hershöfð-
íngi (með tvær stjörnur) í her
Suður-Kóreu, en hafði aldrei bar-
ízt í orrustu. Sá blettur var á ferli
hans, að herdómstóll hafði dæmt
laann, gefið honum að sök að hafa
verið viðriðinn kommúnisma. Þetta
varð til þess, að fyrst í stað var
fiionum sýnd talsverð tortryggni.
Hann ók um í jeppa með öku-
imanninn einan fyrir lífvörð,
telæddur búningi ori-ustuhermanna
«neð byssu í slíðrum. Hann var svo
-ilvarlegur og lítt broshýr, að
imargir Bandaríkjamenn kölluðu
íhann „Smiley”.
Mikil breyting hefur orðið á
vmdanfarin tvö ár. Nú er öflugur
vörður um Park liershöfðingja og
fciann ekur um í Cadillae-bifreið
Hann er ávallt klæddur viðhafriar-
búnmgi hermanna með fjórum
stjörnum, en í þá tign hefur hann
hækkað sig sjálfur. Hann brosir
jafnvel stundum.
★ KOSNINGAR
Helzti andslæðingur Parks í kosn-
ingunum á dögunum var Posun
Yun, fyrrverandi forseti, sem er
67 ára að aldri og harður andstæð-
ingur hersliöfðingjans.
í kosningabaráttunni hélt Yun
því fram, að Park væri fyrrver-
andi kommúnistr, sem nú reyndi
að útrýma lýðræði í Suður-Kóreu.
Flokkur Parks, Lýðræðislegi lýð-
veldisflokkurinn, háði harða bar-
áttu og var ekki vandur að meðul-
um. Pólitískum andstæðingurrr var
varpað í fangelsi, og sagt var, að
strangar hömlur hefðu verið sett-
ar á stjórnmálastarfsemi. Helzta
málið í kosningunum var sú krafa
borgaralegra stjórnmálamanna,
sem eru andstæðingar Parks hers-
höfðingja, að aftur yrði horfið til
„fri álsrar lýðræð isstj órnar“.
t kosningunum fékk Park hers-
höfðingi 4.702.640 atkvæði og Yun
4.546.614 atkvæði. Þrír frambjóð-
endur smáflokka fengu samtals
831.944 atkvæði (954.977 atkvæði
voru ógild). Hér var því siður en
svo um • persónulegan sigur fyrir
Park hershöfðingja að ræða, þar
sem hann fékk tæplega 45% at-
kvæða.
Talið er, að kosningamar hafi
farið heiðarlega fram. Hins vegar
bíða Bandaríkjamenn og sjá hvað
setur varðandi það, hvort Park
muni stiga jákvæð skref í þá átt,
að skapa stjórninni breiðari grund
völl og gera hana lýðræðislegri.
Talið er að stjórnin í Washing-
ton haldi áfram að leggja hart að
Park hershöfðingja í þessu skyni
og íhugi nú endurskoðun á aðstoð-
inni við stjórn hans.
★ í JAPANSHER
Þrátt fyrir ásakanir Yuns og
dóm herdómsins er nú litið svo á,
að samneyti Parks við kommúnista
hafi verið „villa”, sem liann hafi
læknazt af. Kóreubúar lögðu aug-
svnilega ekki mikinn trúnað á á-
sakanir Yuns í kosningabarátt-
unni.
Herdómstóllinn dæmdi hann til
dauða, en fyrir tilstilli vina Parks
var liann í þess stað rekinn úr
hernum með smán, þegar Kóreu-
stríðið skall á var liann aftur kvadd
ur í herinn með tign majórs, og
bótt hann væri ekki sendur í orr-
ustur gegn Norður-Kóreubúum og
kínverskum kommúnistum gegndi
hann störfum sínum með prýði.
Park hershöfðingi fæddist 1916
nálægt Taegu í Suður-Kóreu.
Hann var af ætt efnaðra jarðeig-
enda. Á þessum árum var Kórea á
valdi Japana.
Hann var úfskrifaður frá mennta
skóla í Taegu 1937 og var hæstur
í sínum bekk. Um þriggja ára skeið
kennai hann í barnaskóla skammt
KLÆÐNAÐUR VIÐTÖL HREINLÆTl PERSONULEIKI ANDLITSSNYRTING EIGIN IBUÐ
HEFÐARHÆTTIR OG HEGÐUN HÁTTVlSI HVAR SKAL BYRJA ? RÖDDIN OG HLÁTURINN
TÍ2KUBÓKIN ...... Bókin, sem íslenzkar konur hafa beSií eftir,er komin út BÓKAÚTGÁFAN VALUR
frá þeím stað þar sem hann fædd-
ist. Árið 1940 lét hann af kennslu
og gekk í japanska herskólann í
Cliangchun í Mansjúríu, og var
þar einnig hæstur í sínum bekk.
Hann var skipaður lautinant í
japanska hernum. Hann var í Jap-
an þegar styrjöldinni lauk, en
sneri aftur til Kóreu þegar her-
námssveitir Bandaríkjamanna
héldu til landsins.
Hann gekk í kóreanskan her-
skóla sem Bandaríkjamenn stofn-
uðu. Þegar liann hafði verið út-
skrifaður var hann skipaður höf-
uðsmaður í Kóreuher. Ári síðar
voru ásakanirnar um kommúnist-
ígk launráð bornar gegn honum og
síðan dæmdi herdómstóllinn hann
og loks var hann rekinn úr hem-
um.
★ KEÐJUREYKIR
Park hershöfðingi hækkaði
smám saman í tign í Kóreuher á
friðartímanum eftir styrjöldina.
Hann hefur tvisvar farið í heim-
sókn til Bandaríkjanna í síðara
skiptið sem þjóðhöfðingi 1961,
nokkrum mánuðum eftir bylting-
una.
Park hershöfðingi keðjureykir,
en reykingarnar er það eina í fari
hans, sem ber vott um taugaó-
styrk. Ilann ber venjulega dökk
gleraugu, jafnvel innanhúss.
Hann er þríkvæntur og á tvær
dætur og fimm ára gamlan son
með þriðju konu sinni, sem hann
gekk að eiga fyrir 13 ámm. Hún
talar virðulega og ástúðlega um
mann sinn.
Hún sagði eitt sinn, að maður
hennar segði ekki mikið. En ef
hann segðist ætla að gera eitthvað
gerði hann það og gerði það rétt.
SMURSTÖÐIN
Saefúni 4 - Sími 16-2-27
Bíllinn er smorðnr fljótt og veL
Bdjnm allar tegnndir a£ smnrolin.
4 29. okt. 1963 — ALÞÝÐUBIAÐIB