Alþýðublaðið - 29.10.1963, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 29.10.1963, Blaðsíða 10
KARL BEN skorar. Fram „burstaöi" Ármann 18:9: Leikur kaftar ms að musmni Hér brýzt ungur Þróttari, Jón Sigurðsson í gegnum vörn Víkings og' skorar. Þróttur sigraði Víking með 8:7: Þróttur átti sigur- inn fyllilega skilinn ÞAÐ ÓVÆNTA skeði á sunnudag, að óæft og lélegt lið Þróttar bar sigurorð af Víking, sem flestir á- litu að myndi veita Fram harða báráttu um Reykjavíkurmeistara- titilinn. Var hrein hörmung að sjá til Víkinga á köflum, þeir voru staðir og seinir og virtist vanta allan baráttuvilja. Leikurinn var jafn frá upphafi, Víkingar skora fyrst, en Þróttur jafnar. Víkingur nær aftur for- ystu, Axel jafnar fyrir Þrótt, og þá tekur Þróttur forystu með víta- kasti, sem Þórður tekur. Þá koma þrjú mörk Víkinga og flestir á- horfendur álíta að nú muni Vík- ingar taka leikinn algjörlega í sínar hendur, en það fór nú öðru- vísi. Axel minnkar bilið í eitt mark fyrir hlé 5 gegn 4. Haukur jafnar fyrir Þrótt strax eftir hlé og enn nær Víkingur tveggja marka forskoti. Þróttarar leika hægt og taka enga áhættu, þetta fer dálítið í taugarnar á Vík- ingum, en þeir geta ekki náð bolt- anum og allt í einu tekst Þróttur- um að opna vömina og ungur og efnilegur Þróttari, Jón Sigurðs- son skorar ágætt mark af línu. síð- ar jafnar fyrirliði Þróttar, Þórður OLYMPÍULEIKARNIR KOSTA 125.000.000.000,00 KR. • Tokio, 28. okt. (NTB-AFP) 1R. OLYMPÍSKU Sumarleikarnir, sem fram fara í Tokio eftir tæpt ód, munu kosta japanska ríkið sem svarar til ca. 125 milljarða ísl. kr. Það er þekktur japánskur fjármála sérfræðingur, Shigeharu Oki, sem stóýrir frá þessu í síðasta tölublaði jápanskra „Fjármálatíðinda”. Þes&i upphæð samsvarar hvorki meira né minna en þriðjung jap- önsku fjárlaganna. Innifalið í þess ari upphæð er ýmislegt, sem koma mun að notum að Olympíu- leikunum loknum t. d. vegir og margt í sambandi við umferðina í Tokio. Einnig eru meðtaldar ýms- ar endurbætur útvarps og sjón- varps. Sérfræðingar ýmsir óttast, að þessi mikla upphæð, sem varið er til Olympíuleikanna muni geta valdið verðbólgu. Ásgeirsson með glæsilegu skoti, 7:7. Síðustu mínúturnar voru geysi- lega spennandi og rétt fyrir lok leiksins fá Þróttarar vítakast og Þórður skorar örugglega og þann- ig lauk leiknum með óvæntum sigri Þróttar, 8:7. Ekki er hægt að hrósa liðunum fyrir leikinn, en Þrótti þó frekar, þeir héldu liraðanum niðri og nýttu sín tækifæri betur. Víking- ar voru óvenju daufir og kæru- lausir og verða að herða sig, ef þeir ætla að halda öðru sæti á íslandsmótinu. Stefán Gunnarsson dæmdi leik- inn allvel. FRAM gjörsigraði Armann í meist araflokki karla á sunnudagskvöld, Framarar skoruöu 18 mörk gegn 9 mörkum Ármenninga, staðan í hléi var 7:3 fyrir Fram. Ármann hóf leikinn með miklum hraða og tvívegis lá boltin í marki íslandsmeistaranna, án þess að þeir svöruðu fyrir sig. En þá vökn- uðu. Framarar til lífsins og sjö sinnum skoruðu þeir það sem eftir var af hálfleiknum og Ármann að- eins einu sinni. Það er einkennilegt með þetta létta og skemmtilega lið Ármanns, að það skuii ekki ná lengra, en raun ber vitni Þeir léika oft af miklum hraða og glæsibrag, en þegar kemur að því að skora er eins og allt renni út í sandinn, með sama áframhaldi verða Ármenn- ingar efnilegir að eilífu. ★ MARKAREGN Mörkunum rigndi yfir Ármenn- inga í síðari hálfleik og aðeins eitt og eitt mark á stangli hafnaði í marki Fram og þessu mikla markaregni lauk með 18 gegn 9 eins og fyrr segir, fyllilega verð- skuldaður sigur Fram. Lið Fram er í stöðugri fram- för og greinilegt er, að ekkert Reykjavíkurliðanna getur komið í veg fyrir, að Reykjavíkurmeistara titillinn verði Framara einu sinní enn. Framarar leika hratt og á- rangursríkt, línuspil er mjög gott, þeir geta beitt hröðum upphlaup- um með góðum árangri og vörnin er þétt og örugg. Enginn skarar fram úr, liðið er jafnt og skemmti- legt. Ekki er hægt að hrósa Ármenn- ingum fyrir leikinn. það er eins og þá vanti hið afgerandi afl, spil og vörn er hikandi og skipulagslaust, þetta á að vera hægt að lagfæra, en geri. Ármenningar það ekkl, er eins víst að þeir hrapi niður í II. deild eftir áramót. Daniel Benjamínsson dæmdi leikinn og slapp sæmilega frá því, en ekki virðist okkur það rétt, að leikmaður, sem brotið er á, fái að skjóta, markvörður ver, en síðan fái liðið annan möguleika í víta- kasti. Fram vann Þrótt auðvendlega 18-9 FRAMARAR áttu fremur léttan. dag í viðureign sinni við Þrótt í meistaraflokkskeppni karla á Reykjavíkurmótinu í handknatt- leik sl. laugardagskvöld. Að vísu var fyrri hálfleikur fremur jafn, a. m. k. að því er mörkin snerti, en þrátt fyrir það var- augljóst hvert stefndi. Fram sigraði með yfirburðum 18:9 og voru þeir í alla staði vel að sigrinum komnir. í hálfleik var staðan 8:6 fyrir Fram og mó því segja að Framarar hafi ,,malað” Þrótt í seinni hálfleik, enda var þá lítið um varnartil- burði af hálfu hinna ungu og efni- legu Þróttara. Lið Þróttar var nú svipað og í leik þeirra gegn Val Helgina áður þó örlar nú á ör- lítið meiri hraða og baráttugleði en þá. Á hinu er enginn vafi, að þetta þróttarlið getur gert mun betur og vantar þar „aðeins" vilj ann til að standa sig betur. Von- andi verður svo á næstunni. Fram- araf voru sem áður „taktískir” vel en mikið skortir þó enn á, aö æf- ingin sé sem skyldi. Hjá Þrótti voru Þórður, Axel og Guðmund- ur einna beztir, en hjá Fram Ágúst, Þorgeir og Ingólfur. Dóm- ari var Björn Kristjánsson og tókst honum sæmilega leikstjórn- in. Mörk Fram: Ingólfur 7 (2 víti), Sig. E. 3, Karl 3, Ágúst 2, Jón 2 og Hilmar 1. Mörk Þróttar: Þórð- ur 3, Haukur 3, Axel 1, Gísli 1, Jón Grétar 1. V. Prins keppir á Olympíuleikunum Vín, 25. okt. - NTB - AFP PRINS Aga Khan mun keppa fyr- ir íran á Vetrarleikunum í Inns- bruck í vetur. í fyrravetur keppti nrinsinn fyrir England í f jallagrein um. Það er blað i Vín, sem skýrir frá þessu og blaðið segir einnig, að prinsinn sé að athuga mögu- léika á að fá leigða villu í ná- grenni Innsbruck. .eikir yngri lokkanna um íðustu helgi RSLIT í yngri flokkunum á eykjavíkurmótinu um helgina: . Laugardagur: | flpkkur: ÍR-KR 7:6. innudagur kl. 13.30: 2. fl. kvenna: íkingur—Fram 2:5 ! alur — Ármann 4:6. 3. fl. karla: íkingur — ÍR 6:5. 2. fi. karla: R — Fram 4:8, rmann — ÍR 5:11, alur — Víkingur 9:7, 1. fiokkur: ram ÍR 12:6. íkingur(a) -— Víkingur(b) 8:6. Sunnudagur kl. 20:15: R — Þróttur 7:9. ! J 10 29- okt- 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.