Alþýðublaðið - 29.10.1963, Síða 6

Alþýðublaðið - 29.10.1963, Síða 6
Sá hlær bezt.... £ 29. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ hafi gert þetta í hefndarskyni gegn henni. Húsið var vátryggt fyrir góðan skilding. Og bóndatetrið dró nú úr vasa sínum samanbögglað plagg, þar sem konan hans hafði ginnt hann til þess að afsaia sér eignarréttinum á húsinu. — Hún hellti m:g íullan sagði bóndinn og snökti — og var góð við mig. Síðan lét hún mig- undir- skrifa skjalið en við höfðum allt- af talað um að skipta til helm- inga. Eg las ekki skjalið fyrr en ég hafði skrifað undir það. Og nú hefur hún fengið alla trygg- inguna, meðan ég sit í fangelsi. Lögreglumennirnir urðu djúpt snortnir af sorgarsögu þessa vesa- lings manns og réttu honum vasa- klút. Þá var eins og bráði af hon- um. Hann sótti í sig veðrið og hóf að segja frá undarlegu atviki: — Konan hans hafði sent hann í ferð til næstu borgar og erindið var sáralítið. Hún hafði einnig harðbannað honum að fara með lest eða bifreið. Hann yrði að fara á mótorhjóli og það um miðja nótt. Bóndinn sagðist nefni- lega vera mesti klaufi að stýra mótorhjóli sínu. Svo fór að lokum, að hann lét semja ákæru á hendur konu sinni fyrir að hafa reynt að stytta hon- um aldur. En hann tók aftur á- kæruna, þegar hann frétti, að kerla hefði aldrei fengið trygg- ingarféð. Gleymzt hafði að greiða iðgjöldin og sitthvað fleira var í ólagi með trygginguna. — Eg tek kæruna aftur, sagði bóndinn og hló innilega. — Eg hef hlegið síðan ég frétti þetta með trygginguna — og það er mér nóg. Hártízkan í París og Reykjavlk Fyrir nokkru birtum við myndasyrpu af nýjustu hárgreiðslunni hér í Reykjavík og voru myndirn- ar teknar á tízkusýningu sem haldin var á Hótel Sögu. Sama daginn barst okkur í myndasendingu mynd frá París og var hún einmitt af nýjustu hágreiðslu tízkunni þar. Við birtum báðar þessar myndir hér og nú væri gaman að lesendur spreyttu sig á því að gizka á, hvor myndin er frá Farís og hvor frá Reykja vík. Sendið svörin til Alþýðublaðsins og merkið umslagið: GLUGGINN. ★ í kvennaklúbbi í Colchester í Bandaríkjunum sagði frú Sarah Ðuinn meðal annars: Ungir menn hafa tilverurétt, en aðeins að einu leyti: Þeir eru hráefni í eigin- menn. Guðdómleg tækni ÞEGAR RAÐIZT ER INN I BANKA Bankasamband Bandaríkja- manna hefur samið ráðlegg- ingar fyrir starfsfólk sitt og fjallar einn kafli þeirra um það, hvernig bregðast skuli við, ef ræningjar ráðast skyndi- lega inn í banka. Starfsfólkinu er ráðlagt að sýna sem mesta stillingu og eru nefnd dæmi hversu slíkt hefur oft gert for herta ræningja að viðundri. — Hér eru nokkur dæmi: Ræningi réðist inn í banka og hótaði gjaldkeranum, sem var kvenmaður, að taka upp byssu og skjóta hana, ef hún léti sig ekki hafa álitlegan bunka af peningaseðlum. Stúlk an var hin rólegasta og sagði: Komdu fyrst með byssuna. — Engin byssa — engir peningar. Peningateljari í banka nokkr- um lenti í sömu aðstöðu. Hann leit rétt sem snöggvast upp, en liélt síðan áfram starfi sínu og sagði ósköp rólega: — Eg er bara teljari, talaðu við gjaldkerann. Bankaræningi birtist skyndi- lega fyrir framan skrifstofu- stúlku, sem var að bóka ávís- anir. Stúlkan snéri sér við og kallaði til gjaldkerans: Heyrðu, Eg 'bóka bara ávísanir sem á að borga, en hér er maður, sem heimtar peninga en hefur enga ávísun hvað á ég að gera? Og að lokum geðilli gjald- kerinn, sem svaraði hótun ræn- ingjans með þessum orðum: — Æ, góði, komdu þér út. Annars læt ég fleygja þér út. Það er ekki ofsögum sagt af | j því, að Ameríka er land allsnægt- 1 anna. Eftirfarandi saga sannar 5 það áþreifanlega. Prestur nokkur H í Oklahoma þurfti að taka á móti | starfsbróður sínum frá Kína. — H Hann ók út á flugvöllinn í sínum I eigin gljáandi Cadillac. Hinum { kínverska starfsbróður kom kyn- i lega fyrir sjónir að sjá þjón guðs i hér á jörðu aka í svo skrautlegu | farartæki og hafði óspart orð á I því. Ekki tók betra við, þegar i komið var að prestssetrinu. Þar | stóð á hlaðinu skínandi Buick og l spurði sá kinverski hvort prestar I í Ameríku rækju bílaverksmiðj- i ur. Sá ameríski leiðrétti þennan i fáránlega misskilning og sagði, i að konan sín ætti þennan. | — Fyrst ég á Cadillac, sagði i hann, þá má ekki minna vera en I mín ástkæra eiginkona eigi Buick. I Sá kínverski hristi höfuðið, en I í sama mund hrökk hann við. 1 Prestssonurinn ók á ofsahraða í | hlaðið á spánnýjum sportbíl. | Þá féll gestinum allur ketill i | eld og gat hann ekki um annað = talað en þessa veraldlegu og ó- I guðlegu vélmenningu. | Gestgjafanum fór að leiðast og i; þófið og tókst að binda cndi á Í j umræðuefnið með eftirfarandi I setningu: | —- Þetta er rán, maður. Ég er með byssu héma einhvers staðar. t — Kæri kollega, þér hljótið að viðurkenna, að við erum mjög lítillát og alþýðleg. Við eigum ekki nema eina flugvél. ★ Hjón nokkur í Mexíco áttu von á bami. Eins og ungum hjón- um, sem þannig er ástatt fyrir, er titt, sátu þau tíðum saman heima í litlu stofunni sinni á síð- kvöldum og ræddu um það, hvað barnið ætti að heita. Þrátt fyrir hjónabandssæluna gátu þau aldr- ei orðið á eitt sátt um þetta. Bæði vildu þau láta bamið heita í höfuðið á foreldrum sínum, en þar sem foreldxar beggja voru á lífi, var málið engan veginn auð- velt viðfangs. Niðurstaða þeirra varð loks sú, að ef bamið yrði drengur, yrði hann að heita éft- ir báðum öfunum og ef það yrði stúlka eftir báðum ömmunum. En forsjónin lcysti vandann: Þau cignuðust fjórtura, tvo drengi og tvær stúlkur! Ringlaður bóndi í Austurríki kom dag nokkurn til lögreglunn- ar og kvaðst hafa kveikt í hús- inu sínu. Hann var mjög dmkk- inn og svaf fast og lengi í litlu herbergi sem honum var feng- ið á lögreglustöðinni. Þegar hann vaknaði nokkrum stundum síðar fór eitthvað að skýrast í hugskoti han. Húsið hafði verið eign konunnar hans og það var hún, sem hafði neytt hann til þess að kveikja í því. Síðan ætlaði hún að gefa sig fram opinberlega og segja að hann ÍOG jaAR| ★ Frakkinn Michel Perringand hefur sett einstakt heimsmet. — Hann spilaði á munnhörpu stanz- laust í sjö tima. Það er kannski út af fyrir sig ekki svo stórbrotið afrek, en allan tímann meðan hann lék, sat hann á stól, sem vóg salt á þremur vínflöskum hverri upp af annarri! ★ Brezk hjón áttu þrjá syni og langaði ákaft til þess að eignast dóttur. Þau settu svohljóðandi auglýsingu í dagblað: ,Við eigum þrjá syni. Getur nokkur gefið okk- ur ráð til þess að eignast dótt- ur? Þeim barst fjöldinn allur af bréfum. Brezk kona skrifaði: — Gefizt ekki upp. — Amerísk stúlka skrifaði: Leitið á náðir læknanna. — Og ungur Frakki spurði: — Get ég nokkuð hjálp- að?

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.