Alþýðublaðið - 14.11.1963, Side 9
ku líka vera um hjónabönd
danskra manna og grænlenzkra
kvenna.
Ég sný ekki aftur með það, að
þessi veizla, eða þetta „partý“ ef
menn vilja heldur nota það orð,
er með því furðulegasta sem ég
hef orðið vitni að. Enginn maður
varð ósáttur við annan, jafnvel
ekki eftir að allir voru orðnir kóf-
drukknir. Hefur hávaðinn líklega
átt sinn þátt í því. Eina tjáningar-
formið sem menn gátu notað í
þessum ósköpum var að standa upp
og fetta sig eftir hljómfallinu. Lík-
lega er það einkum tvennt, sem
veldur saupsætti: skortur á
drykkjarföngum og leiðindi.
Drykkjarföng þraut aldrei og Lou-
is gamli Armstrong, og Ella Fitz-
gerald og fleira gott fólk sá um
skemmtunina. Kvenfólkið gaf eng-
um sérstaklega færi á sér og þar
með var afbrýðisemidraugurinn á
brott kveðinn.
Ég skal taka það fram strax, að
mér þótti gaman, en hitt vil ég
engu síður taka fram, að ég mæli
ekki með svona veizlum í f jölbýlis-
húsum í Reykjavík.
Við héldum út lengst íslending-
anna tveir saman. -Nokkuð mun
hafa verið liðið nætur, þegar við
gáfumst upp, en þá var veizlan
áreiðanlega ekki nema svo sem
vel hálfnuð.
HEIMFERÐIN
Næsta morgun var veður vott
og Narssarssuaqstaður allur svell
aður. Að loknum morgunverði
átti að leggja af stað til íslands,
en veðurútlit var ótryggt, lág-
skýjað og slæmt skyggni. Þá var
flugbrautin svo hál af. svelli, að
ekki varð komizt hjá að sandbera
hana og tók það nokkra stund.
Flugið heim var tíðindalaust,
nema hvað allir voru kátir og þó
einkum Danir á heimleið. Einn
tók meira að segja upp gítar og
söng tvíræðar vísur við mikinn
fögnuð farþeganna.
Er nú að mestu lokið frásögn af
þessari Grænlandsreisu minni og
er raunar ekki annað eftir en að
þakka Svölu Guðmundsdóttir flug
freyju fyrir góðan viðurgerning,
Sigurði Haukdal flugstjóra fyrir
frábæra lendingu á Reykjavíkur-
flugvelli og öllum hinum fyrir
skemmtunina.
Þorsteinn Jónsson flugstjóri (með skeggið) og Hannes O. Johnson
forstjóri á heimleið með Straumfaxa.
Blaðarnaður Alþýðublaðsms fór með Stratrmfaxa
til Narssarssuaq á dögunum til að skoða verksum-
merkin eftir brunann mikla, þar sem Sólfaxi varð
allur. Hér kemur seinni frásögn hans, en fyrri hlut-
inn birtist hér á opnunni á þriðjudaginn var.
Flugmennirnir af Sólfaxa lesa nýtt Alþýðublað.
KJÓLAVERZLUNIN ELSA
Tilkynnir
Vegna 10 ára afmælis gefum við 10% afslátt
af öllum vörum verzlunarinnar, fimmtudag og
föstudag.
Kjclaverzlunln Elsa
LAUGAVEGI 53.
KULDASKÓR
úr leðri
Fyrir karlmenn, stærðir 39 — 45
Fyrir drengi, stærðir 34 — 40
Fyrir börn. stærðir 26 — 33.
Skóbúð Austurbæjar Skóval
Laugavegi 100. . Eymundssonar-
kjailara.
B ifreiðaeigend ur
Nýkomið mikið úrval af hljóðkútum, púströr-
um og f jöðrum. Setjum einnig pústkerfi undir
bíla.
Bílavörubúðin Fjöðrin
Laugavegi 168. — Sími 24180.
ÍSLANDSMÓT í
HANDK NATTLEIK 1964
hefst 14. des. n.k. Þátttökutilkynningum þarf
að skila í skrifstofu ÍBR, Garðastræti 6 fyrir
18. nóvember n.k. —
Þátttökugjald kr. 35,00 pr. flokk.
HKRR.
Orðsending
Allir þeir sem eiga rafgeyma í hleðslu hjá okk
ur eru ivinsamlega beðnir um að sækja þá
STRAX, þar sem hleðslan verður f lutt í
Þverholt 15 eftir nokkra daga.
ALÞYÐUBLAÐIÐ — 14. nóv. 1963 9