Alþýðublaðið - 17.11.1963, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.11.1963, Qupperneq 3
r^iiMiiiimiiiiimiifiiimiiiiiiiiiiiiMiiiiiititiMHifiiiiiiitiHiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiMJiiiHfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiitiitiiMiiiiimttniiiviiiitiii imiiiiiMiiiiHiiHtHiitimMiHiiiiiiiiiiiiHiitiiMtiMiiiiitmtiiittMiHiiiiiiiiiiiiiitiitiiiiiiiaimiiiiiiiiiiiiii'iiiiaHHHtiiiiiiiiniiiuitii ikihhmi^ HVERNIG VERÐA SNYRTIVÖRUR TIL? Víð komum inn í lítið her- bergi gefur að líta skipa borð, hillur, þar sem allskyns snyrtivörum var raðað upp, og unga konu, er kemur brosandi á móts við okkur. Hún er yfir- maður fegrunarlj'fa-deildar innar og efnafræðingur að menntun. Eftir að hafa slupzt á nokkrum kurteisis-„írösum“ og rætt svolítið um áhuga is- lenzks kvenfólks á snyrtingu, er mér boðið sæti. Síðan fæ ég heildarfræðslu um hvernig ástandið er í Frakklandi við- víkjandi þessum málum. „Vitið þér, að kvenfóilkið, sem ekki býr í París, veit raun- ar meira um snyrtingu en það í höfuðborginni? Þó fylgjast allir vel með, og við verðum alltaf að hafa einhverjar nýj- ungar á boðstólum. Hvert, ein asta stúlkubarn þarf við átján ára aldur að læra að nota snyrti vörur, aðallega hreinsikrem, til að varðveita æskuljómann sem lengst og til að skera sig úr hinum gráa hversdagsleika. Yð ur grunar e.t.v. ekki, hversu þýðingarmikið það er fyrir hið daglega lif, hið fríska og hreina útlit með fallegum lit- blæ? Franskar konur nota mjög léttan en vandiega gerðan make-up, svo að hann virðist aldrei óeðlilegur." Nú gerir frúin hlé á máli sínu, stendur upp, gengur að einum skápnum og kemur til- baka með faðminn fullan af allskyns snyrtivörum fyrir augu og varir og kinnalit. Franska kurteisin lætur þó aldrei á sér standa. Áður en ég er frædd um sögu þessa varnings, er spurt hvort ekki fari vel um mig, hvort ég'vilji skipta um stól og svo framvegis. Síðan snérust samræðurnar aftur yf- ir í nútímann. , „Um þessar mundir er vara litur og kinnalitur kominn aftur í tízku, en augnamálning hefur minnkað svolítið. Hérna ejáum við nýjasta tízkulit vetrarins. Hann er blóðrauður. Búast má við, að hann verði vinsæll með- al kvenna. Það á alltaf að nota varalit, kinnalit og naglalakk í sama lit. Kinnalitinn skal nota mjög spart, þar sem i vetur á kvenfólkið að vera minna fölt í framan en í fyrra. Annar tízku liturinn er þessi ljósrauði, san- seraði, fyrir ungar stúlkur. Heildarmtmurinn milli tízku- litar vetrar og sumar er að hinn síðamefndi er meira app- elsínurauður." Eftir alla þessa fræðslu var haldið inn í vinnustofuna. Fyrstu viðbrigði mín voru, en hvað allir hafa það rólegt hérna. Þegar betur var að gáðí kom í ljós að þetta var mikil nákvæmnisvinna, sem ekki mátti kasta hendi til. Hráefnin eru öll geymd í stórum etáltunnum, loftþétt- um. Aðalefnin í varalitum og augnaskuggum eru vax, juria- og dýraolía, mulningur litunar efna, hvítt krem og vellyktandi. Mjög mikillar vandvirkni kref- st framleiðslan til að ná allt af sama litblæ og ilmvatns- magni. Vaxið er notað til uppfylling ar og til að gefa litnum rétta festu, en olían til að ná góðum fitublæ. í hverjum varalit eru mörg litarefni blönduð saman, og þarf að vega magn hvers litar á nákvæmustu vogum Til þess að öruggt sé, að engir kekkir séu i honum er hann látinn fara í gegnum mjög þetta síu. Mikið er notað af hvítum litarefnum til að gefa varalitnum frískan blæ. Öll fyrrgreind efni verða að vera til staðar, svo að varaliturinn fái sitt rétta gildi. Ilmvatnið er notað til að drepa niður hin leðinlega keim, sem annars værj af honum. A eftirfarandi myndum sjá- um við helztu stig framleiðsl- unnar. Þegar búið er að vega upp rétt magn af öllum hrá- efnunum er þeim komið fyrir í pottinum, sem við sjáum kon- una standa við. Hún er að at- huga, hvemig verkið gengur. Efnunum er blandað með rafmagnsþeytara og undir iágu jöfnu hitastigi. Fremst á mynd- inni sjáum við ctáltunnu, sem öll efnin eru geymd í. í þessari er vaxið. Því næst er blandan látin fara i gegnum vél, sem saman- stendur af tveimur stálhjól- um er pressa hana þétt sam- an. Á næstu mynd sjáum við konu hella blöndunni á vélina og hvernig hún er til búin. Fyrir aftan konuna á þnðju myndinni er hitatæki til að halda blöndunni í fljótandi á- standi. Við sjáum hér, hvevnig Parísar- bréf frá Svövu Sigurtjóns- dóttur blöndunni er helt í bronztæld, sem myndar 24 varaliti livert. Sama stúlkan hefur hér fjór földu starfi að gegna. Hún fylÞ ir eitt tækið og á meðan bland- an er að storkna i öðru, 6etur hún hylki um varalitina í þriðja athugar, að þeir séu allir vel gerðir og hreinir og raðar vara litunum á stóra bakka. Utan um einn varalit úr hverju tæki, setur hún öðruvísi hulst ur, því að hann á að vera varð- veittur í verksmiðjunni til stað festingar á því, að gæði allra varalitanna sé sú sama. Nú tekur önnur kona við bökkunum, kannar, að allt sé í lagi með varalitina og skipt- ir um hulstur á þeim um leið til staðfestingar á því, að hán hafi ekki svikizt um. Hlið við hlið sitja hér nokkrar konur, er vnna eftirfarandi störf, merkja litina, raða þeim 1 kassa og pakka þeim inn. Þannig gengur starfið fyrir koll af kolli, þannig myndast varalitirnir og augnalitirnir og augnaskuggamir, sem sendir eru um allan heim og við sjá um urmul af á leið okkar nið- ur Laugaveginn. S. S. ''U IMMMIIIIIIMIM 11111111111111111111^11 MIIIIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIMIIIIIIIIIIIIMMIIIMIIIMMIMIMrillllllMIIIIIIIIIMMMIIIIIHIIIIIIIIIIMMII............................................................................................................... IIIMIIMIIMMMMIIIMMMII I|W\ VERKAFÓLK Á AKRANESI VILL-. Betra verðlagseftirlit og baráttu gegn skatt svikum Verkalýðsfélag Akraness hélt fund 10. þessa mánaðar til að af- lýsa banni á næturvinnu, sem fé- lagið hafði ákveðið til mótmæla á frumvarpinu um launamál og fleira. Á þessum fundi gerðu Ak- urnesingar athyglisverða ályktun um kjaramálin, og fer liún hér á eftir: „Fundur í Verkalýðsfélagi Akra- ness, haldinn sunnudaginn 10. nóvember 1963, leggur ríka áherzlu á, að f væntanlegum samningum um kaup og kjör verkafólks verði af fremsta megni reynt að koma í veg fyrir verð- og víxlhækkan- ir, sem eyðileggja kaupmátt laun- anna og stofna atvinnulífi lands- manna í hættu. í því sambandi tel- ur fundurinn fulla þörf á að end- urskoða þau lög, er hafa að geyma ákvæði, sem tryggja heilum at- vinnustéttum hækkað verð á fram leiðsluvörum sínum í livert skipti sem láglaunafólk fær kjarabætur. Ennfremur telur fundurinn ekkert réttlæti í því, að um leið og verka- menn og verkakonur leggja á sig óhæfilega nætur- og helgidaga- vinnu til að bjarga verðmætum sjávarútvegsins frá eyðileggingu, skuli slík vinna vera lögð til grund- vallar á hækkun á kaupi annarrar stéttar. Þá telur fundurinn brýna nauð- syn á að auka og efla verðlags- eftirlitið og láta það ná til fleiri vöruflokka en nú á sér stað. Um leið vill fundurinn benda á, hvort ekki muni hagkvæmt að veita nokkrum verkalýðsfélögum í stærstu kaupstöðum og kauptúnum aðstöðu til að sannprófa hvort verð lag á vörum og þjónustu sé í sam- ræmi við gildandi verðlagsákvæði á hverjum tíma. Karlmannaföt Drengjaföt v««i. SPARTA Laugavegi 87. Þá telur fundurinn það mikil- vægt, ef hægt væri að lækka út- svör og skatta, til dæmis á nætur- eða helgidagavinnu verkafólks, á meðan sú vinna er leyfð, og at- vinnuvegunum brýn nauðsyn að láta vinna svo langan vinnudag sem tíðkazt hefur að undanförnu. Skoi’ar fundurinn á ríkisstjórn og Alþingi að vinna ötullega að því að koma í veg fyrir hin tíðu skattsvik, sem almennt er talið að eigi sér stað hér á landi.” ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. nóv. 1963 3 Tökum að okkur allskonar prentun Hagppent? Bergþórugötu 3 — Sími 38270

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.