Alþýðublaðið - 17.11.1963, Page 7

Alþýðublaðið - 17.11.1963, Page 7
Tvær stórar ekáldsögur eru nafnkunnastar eftir júgóslav- neska nóbelshöfundinn Ivo Andr- ic, Brúin á Drinu, sem nú er komin í íslenzkri þýðingu, og Bæðis- mennirnir. Báðar sögurnar gerast á æskuslóðum hans í Bosníu, Ræð ismennirnir í Travnik þar eem hann fæddist (árið 1892) og Brú- in á Drinu í Visjegrad, en þar ólst hann upp. Segja kunnugir að staðháttalýsing hans í verk- unum sé svo nákvæm, að enn í dag megi t.d. rata um allar triss- úr í Visjegrad eftir lýsingu Andr- ics í Brúnni á Drinu. Höfundur kallar hvoruga bókina reyndar skáldsögu: þær eru krpnikur, ann- álar, byggðar á sögulegum atvik- um, munnmælum og sjálfssýn höf undar. Ivo Andric er sagnfræðingur að mennt, doktorsritgerð hans fjall- aði um sögu Bosníu, en gekk snemma í utanríkisþjónustu lands síns og starfaði þar milli styrj- aldanna; hann lauk ferli sínum sem ambassador í Berlín. Á þsss- um tíma var Andric tómstunda- höfundur; það er ekki fyrr en á stríðsárunum og eftir stríð þegar hann er setztur um kyrrt í Bel- grad að hann ritar hinar stóru sögur sínar sem hafa skapað hon- um heimsfrægð. Vera má að þessi verk skyggi nokkuð ómaklega á fyrri bækur hans, en athygli hef- ur þó beinzt að þeim vegna nóbels frægðar höfundarins. í fyrstu rit- aði Andric prósaljóð og síðan smá- sögur: hann þykir mikill meistari hinnar stuttu eögu. Andric ritar á serbó-króatísku sem mun vera næsta framandi mál velflestum vestrænum lesendum, en þýðend- ur hans á erlend mál láta mikið af stílsnilld hans. Af þýðingum að dæma virðist stíll hans þurrlegur, nákvæmur, næstum smásmyglis- lega raunsýnn og rökvíslegur, — byggður á nákvæmri skoð- un ytri veruleika. Þessi stílshátt-. ur hæfir vel sagnfræðingnum og hinum sögulega efnivið Andrics; en undir hlutlægnisyfirbragði frá- sagnarinnar leynir sér angistar blandin kennd af fallvaltleik lífs- ins, böli og kvöl og dauða. Grimmd og ógæfa laða að sér athygli Andr- ics, mannlegur vanmáttur og neyð; hann er sneyddur allri ó- þarfri tilfinningasemi, frásögn hans fullkomlega hlutbundin, raun sæ, og rúmar þess vegna engan biturleika. Dæmi þessa í „Brúnni á Drinu“, er frásögnin af aftöku Radisavs, fullkomlega hlífðarlaus við lesandann; eða þátturinn af brúðkaupi hinnar fögru Fatimu; og sagan af Milan Glasintjanin sem spilaði um sál sína við kölska sjálfan. Fyrstnefnda frásögnin mun vera „sannsöguleg", byggð á raunverulegum atburði; í hinum síðarnefndu eru þjóðsagnaminnin tjáð jafnáþreifanlega, bundin veru leik verksins.Andstæð þessu hverf- ula dularblandna mannlífi sem er svo áþreifanlega tjáð í verkinu stendur ímynd brúarinnar á Drinu þar sem hún gnæfir á ellefu hvít- um steinbogum, óumbreytanleg frá kynslóð til kynslóðar. Sagan gerist í spennunni milli tveggja skauta: mannsins sem engist í kvöl sinni á staurnum, stegldur lifandi, og hinnar óforgengilegu ilk H ' f KSfti 5. WM ’.-4- Æ jf.' Sögur af brúnni brúar; þar í milli rúmast heims- mynd verksins: „Og þannig lærði hver kynslóð- in af annarri það á kapíjunni, þar sem himinninn, fjöllin og fljótið mætast, að maður á ekki að syrgja um of það sem hinn dökki straum- ur hrífur burt með sér. Hér síað- ist ósjálfrátt inn í hugann heim- speki þessarar borgar, að lífið er undrið mikla, hafið yfir mannleg- an skilning, því enda þótt það eyðist sífellt og hverfi, er það samt eilíft og óforgengilegt eins og brúin á Drinu.” Bygging verksins er samkvæm þessari lífsskynjun. Eins og fyrr segir er ekki eiginlegt skáldsögu- snið á Brúnni á Drinu; verkið hefst með tilkomusögu og bygg- ingu brúarinnar, skilst við hana rofna í.upphafi heimsstyrjaldarinn ar fyrri hálfri fjórðu öld síðar. Brúin er samtenging verksins: í- mynd hins ævarandi lífs sem aidrei þverr þótt það eyðist stöðugt og hvjexfi. Umhverfis brúna og á brúnni þróast fjölbreytilegt mann líf, og það er mynd þessa síbreyti- lega og um leið ævarandi lífs, sem Andric dregur upp með brúna í stöðugri baksýn. Verkið er sam- flétta stuttra sagna eða sagnaþátta, leikni Andries í meðferð hinnar stuttu sögu leynir sér hvergi og þessir þættir mundu sóma sér full vel, margir hverjir, sem cjálfstæð- ar smásögur. En hagleikur höfund- arins er meiri en svo, hinum ein- stöku þáttum er öllum skipað í eitt lifrænt samhengi í verkinu eem enginn þeirra rýfur en þeir skapa ailir í senn. Hér eru sagðar heil- legar sögur, þrjú dæmi þeirra voru nefnd áðan en önnur eru sagan af Lottiku á hótelinu, eða Alihodzja ■sem negldur var á eyranu við brúna, eða sagan af etúdentunum Glasintjanin og Stikovitj (scm kynni að einhverju leytj að vera sjálfsmynd höfundarins í æsku) og Zagorku kennslukonu; hér er líka tæpt á söguefnum, brugðið upp sögum í örfáum dráttum. Og MwmwwMMwwwiwwiwMiwwiwmwaHwwvwimwmwwMWWWwwmwMMWvwwwwwwwwMW Framsókn og áætlanagerð. Þau furðulegu tíðindi hafa nú gerzt, og hefur raunar áð- ur veriö vikið að þeim hér nokkrum orðum, að Fram- sóknarmenn hafa flutt á Al- þingi þingsályktunartillögu um samningu nýrrar þjóðhags- áætlunar. Hefur fyrsta um- ræða um tillöguna þegar far- ið fram. Framsóknarflokkurinn hef- ur alla tíð verið harðsnúinn andstæðingur þjóðhags og framkvæmdaáætlana. En nú liefur blaðinu sem sagt verið snúið við, og að dómi flokks- ins eru slíkar áætlanir nú orðnar mesta þarfaþing. Sú staðreynd er Framsóknar- mönnum þó einum ný. Þeir hafa nú loks vaknað af doða- svefni í þessum málum og eru að nudda stírurnar úr augun- um. Alþýðuflokkurinn hefur lengi barizt fyrir því, að slík áætlanagerð yrði upp tekin hér á landi og loks í tíð nú- verandi ríkisstjórnar hefur það mál komizt í framkvæmd. Þjóðhags og framkvæmda- áætlanir eru nauðsynlegur þáttur í starfsemi þeirra ríkja. sem hafa vilja skipulega heild- arstjóm á efnahagsmálum sín- um. Æ fleiri Vestur-Evrópu- ríki hafa látið sérfræðinga sína gera slíkar áætlanir og hafa þær gefið góða raun. Framsókn finnur nýjan sannleik. í umræðunum um þingsá- lyktunartillögu Framsóknar- manna á Alþingi, benti Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráð- herra, á, að í vinstri stjórn- inni hefði margsinnis verið reynt að fá Framsóknarmenn til að fallast á, að gerð væri þjóðhags og framkvæmdaáætl- un. Slíkt fékk aldrei hljpm- grunn hjá Framsóknarforingj- unum. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á einni málsgrein í greinargerð Framsóknar- manna með tillögu sinni. Hún hljóðar svo: ,,Hér á landi gera nú fleiri og fleiri sér ljóst, að með óbreyttum þjóðartekjum getur ein stétt ekki bætt kjör sín nema á kostnað annarrar. Aðeins með því að auka fram- leiðslu sína og þar með þjóð- artekjur getur þjóðin sem heild bætt kjör sín. í stað 'kjara- baráttunnar, sem hefur eytt kröftum þjóðarinnar um of á undanförnum árum, verður hún nú að einbeita kröftum sín um fyrst og fremst að því að koma til leiðar sem örustum hagvexti hér á landi.” Svo mörg eru þau orð. Þetta er vissulega gullvægur sann- leikur, sem margsinnis hefur verið bent á hér í blaðinu. Hér er raunar um eitt af einföld- ustu lögmálum efnahagslífsins að ræða. En þetta hefur þó ekki verið Framsóknarforingj- unum ljóst. Ekki virðist þeim það fullkomlega ljóst ennþá, því að í útvarpsumræðunum í síðustu viku töluðu þeir eins og þetta einfalda lögmál væri þeim gjörsamlega ókunn stað- reynd. Hannibal hækkar kaupið sitt. Það kom fram í útvarpsum- ræðunum í síðustu viku, og því var ekki mótmælt af neinum, að í sumar hafi Hannibal Valdi marsson látið hækka laun sín hjá Alþýðusambandi íslands um 60%. Þessi sami Hannibal og þarna lét hækka hýruna sína svona ríflega, eyddi svo í það miklum orðaflaumi að óskapast yfir þeim hækkunum, sem op- inberir starfsmenn fengu nú í sumar með kjaradómi. Hækkun sú, sem opinberir starfsmenn fengu þá, var minni en Fram- sóknarmenn og kommúnistar vildu, hefðu þeir einir mátt ráða. Sérstaklega á þetta þó við um laun í efstu flokkunum, en þar minnkaði kjaradómur að mun bilið milli hæstu og lægstu launa að miklum mun, frá því sem talsmenn Fram- sóknar og kommúnista vildu. tUWmWWWWWMHWWWMWUWHIWtWW SWWWWMMWWWWWWWWWMWWWWWWWWWWWWWWWWWWW allan tímann er sagan í baksýn, saga Evrópu þessar aldir eins og hún birtist í Visjegrad; hún cr beinagrind verksins án þess a(f trana sér nokkurn tíma fram úr þeim vefi mannlegs lífs, mann- legra örlaga sem spunninn er ua brúna á Drjnu. Verkið er ein sam- fella lifandi lifs þar sem fullnaðir og ófullnaðir þættir mætast ogj ganga hver upp í öðrum, þar sem engin sagan skyggir á eða yfir- gnæfir hinar, en hver styður aðra í heildarmynd verksins, ofar ein- stökum söguefnum: þannig hrósar sýn Ivo Andrics eigri, staðfest t mannlegu lífi verksins. Sveinn Víkingur hefur þýtt bók- ina og farið eftir enskri og danskri þýðingu segir hann í formála. Slíkt er vitaskuld neyðarbrauð, en væntanlega óhjákvæmilegt þar sem ekki mun auðfundinn þýðarjk úr frummálinu. „Engum var þácf Ijósara en mér, hvílíkt vandaverk það var“ að þýða bókina, segir hann ennfreinur. Það er nú svo; mér er samt nær að halda að hon- um hafi aldrei orðið það ljóst. Á íslenzku er stösháttur bókarinnar óhæfilega stirður og eintrjánings- legur; hið hárnákvæma lifandi orð færi, nákvæm tjáning nákvæmrar skynjunar, sem manni skilst á. kunnugum aðilum að gefi stli Andrics sitt sanna líf í frumtexta og vönduðustu þýðingum, bregzð hvarvetna í íslenzku gerðinni senv þess vegna verður að jafnaði næsta þunglamaleg, mcð köflum and- kannalega stirðbusaleg. Þetta era mikil mistök og lýti á góðu fram- taki útgefandans, en allt um þatt er óhætt að mæla með bókinni: verk Andrics er nægilega traueg til að standast í meginatriðunv misheppnaða þýðingu. — Frágang ur bókarinnar er traustlegur at hálfu útgefanda, öflugt banðjr- þykkur pappír, góð prentun, en ekki fallegur; bókagerð er hév sem oft áður sneydd bóklist. Staf- setning á bókinni er með fádæm- um, mikið um alvanalegar prent- villur, en z og y komið fyrir meít natni og hugkvæmni þar sem staf- ir þeir eiga með engu móti heimá. Bókaútgáfunni Fróða skal enn sem fyrr á það bent að prófarka- lestur heyrir til almennum þrifn- aði í bókaútgófu. — Ó. J. BÍLA OG BÚVÉLA SALAN v/Mlkíatorg Sími 2 3136 Lesið áiþýðubEaðið áuglýsingasíminn 14906 ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. nóv. 1963 y

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.