Alþýðublaðið - 24.11.1963, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 24.11.1963, Qupperneq 9
Þegar við komum akandi npp á Keflavíkurflugvöll í dag, var eins og að koma inn í yfirgefna borg. Fáir sáust á ferli, og fyrir framan aðalstöðvar hersins blakti stór bandarískur fáni í hálfa stöng. Fánann bar við reykjarsúluna miklu, sem steig til himins frá gosstöðvunum. Þegar við komum í sjónvarps- og útvarpsstöðina var Stephen Almasy, kaþólskur herprestur að flytja messu, sem var sjónvarpað. Var þetta sálumessa þar sem prest urinn bað fyrir sálu hins látna forseta, og flutti nokkur minn- ingarorð. Þá flutti hann kveðjur frá Jóhannesi Gunnarssyni, Hóla biskup, sem nú er á kirkjuþing- inu í Róm. r Yfirmaður varnarliðsins var í Bandaríkjunum í dag, en hann hafði sent mönnum sínum skeyti þar sem hann lýsti mikilli hryggð sinni vegna þessa atburðar. Hann var væntanlegur til landsins í kvöld. Á mánudaginn, þegar Kennedy verður jarðsettur, fer fram minningarathöfn í kirkju varnarliðsmanna. ' y.v.;.; mmm mmmm* /ÆRI GABB" „Misst traustan foringja" Datt henni fyrst í hug, að þetta væri einhver þáttur, eins og sá, sém Orson Welles stjórnaði á dög- unum, og allt setti á annan end- ann í Bandaríkjunum, þegar liann tilkynnti að Marzbúar hefðu gert innrás á jörðina. En tilkynningin hefði verið endurtekin aftur og aftur, og þá fyrst gerði hún sér grein fyrir hvað hefði skeð. Don- ald sagði, að þetta væri mikið á- fall fyrir bandarísku þjóðina. Hún hefði misst traustan og góðan for- seta, og heimurinn misst mikinn friðarleiðtoga. Hann sagði okk- ur að lokum, að þau hjónin myndu dvelja hér a. m. k. eitt og hálft ár í viðbót. • ÞÁ komum við til Roberts J. Ca- neperi, sem hefur gráðuna ,,Seni- or ehicf Kadioman”. Hann vár að vinna ásamt öðrum manni þegar hann lieyrði fréttina í útvarpinu. Hann hélt í fyrstu að Conolly, fylkisstjóri hefði særst alvarlega, en forsetinn ekki. Hann hringdi í konu sína, sagði henni frá þessu og bað hana jafnframt opna út- varpið. Skömmu síðar kom fréttin um lát forsetans. Canepari trúði ekki því sem hann heyrði, og hann beið lengi eftir því að þulurinn segði að þarna hefði verið um mis- skilning að ræða, og ekkert hefði komið fyrir forsetann. Hann sagði, að þetta hryllilega morð, svo ó- skiljánlegt sem það væri, hefði svipt Bandaríkjamenn hinum trausta og hæfa foringja sínum. Sjálfum fyndist honum að þetta hefði verið eins og að missa náinn ættingja sinn. Canepari kvaðst hafa átt í miklu stríði við sjálfan sig í forsetakosn- ingunum, hvort hann ætti heldur að kjósa Nixon - eða Kennedy. Sjálfur væri hann republikani, en þegar hann hefði séð hið drengi- lega andlit Kennedys í sjónvarp- inu og hlýtt á málflutning hans, þá hefði liann hiklaust ákveðið að gfa honum atkvæði sitt, og hann hefði aldrei séð eftir þeirri á- kvörðun. NÝ SENDING Svissneskar kvenblússur Glugginn 1 Laugavegi 30. SVISSNESKAR REGNHLIFAR n.ý sending Glugginn Laugavegi 30. Nýkomið Stretchbuxur, 2ja til 10 ára. Nylonskyrtur, drengja, 4ra tiíl 14 ára. Amerískar barnahúfur. Treflar og Vettlingar. Verzlunin ÁSA, Aðalstræti 18, sími 10923. Verzlunin ÁSA, Skólavörðust. 17, sími 15188. SPEGLAR í teakrömmum Speglar í teakrömmum eru komnir aftur. Fjölbreytt úfval af speglum í palisander- og eikar-römmum. — Speglar við allra hæfi — — á hagstæðu verði — SPEGLABÚÐSN Sími 1-9G-35. Stálvaskar nýkomnir í miklu úrvali, einnig tilheyrandi vatnslásar. o4L 'JóAamsson & SmítA Sími 24244 (3 Ííntoi) ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. nóv. 1963 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.