Alþýðublaðið - 27.11.1963, Blaðsíða 1
%W%WW>MW%WW»WWWWW*WWWHM*W WWWWWWMWMWWMWWVWWWMV
IGOÐ HALLAST
Á STALLI
Helgi Sæmun4sson skrifar um
Kiljan, Stalín og Gunnar Bene-
d..ktsson á bladsíðu 7.
Vestmannaeyjum, 26. nóv
- ES-HP -
ÞEGAR Vestmannaeyingar komu
á fætur í morgun, voru götur, hús-
þök og bílar kolsvört af ösku, sem
féll þar í nótt. Öskufallið var lát-
laust í alla nótt og af og til í dag,
en einkum bar mikið á því síð-
degis. Mikið rigndi í Eyjum í
gær, en logn var seinnipartinn, svo
að margir tengdu þakrennurnar
við brunna sína til að safna í þá
vatni, en sem kunnugt er nota Vest
mannaeyingar einkum rigningar-
vatn til neyzlu. í nótt safnaðist svo
mikil aska í brunnana, að nú er
vatnið í þeim ilia eða ónothæft.
I
Vestmannaeyingar höfðu fæst-
ir búizt við öskufalli í nótt vegna
lognsins í gær, en upp úr mið-
nætU brá til SV-áttar, og bar þá
öskuna fljótlega yfir Eyjar. í dag
hefur verið þar talsverð gola, ösku-
fall og rigning, og nú er spáð á-
framhaldandi suðvestanátt á morg
gn, svo að sennilega heldur ösku-
fallið áfram. Skyggnið í 'dag var
mjög slæmt, en eitthvað sást pó tjj
eyjarinnar, sem nú mun vera rösk-
lega 900 metra löng og yfir 100
m. á hæð. Þar virðist þó enn vera
mikið gos. Var það öflugt í nótt,
ög sáust þá eldingar og heyrðust
þrumur, en lítið hefur verifc um
það í dag. Fyrir hádegi var eins
og heldur hefði dregið úr gósinu,,
en það jókst aftur eftir hádegið-
Byssan
ist vera
Á MVNDINNI sjást forseti
íslands og utanríkisráðherra
Breta, R. A. Butler, ræða
saman áður en leiksýning
liófst í Old Vic leikhúslnu í
London 20. nóv. sl., en þar sat
forsetinn leiksýningu í boði
Butlers. Forsetafrúin, Dóra
Þórhallsdóttir, situr til liægri
við Butler. Myndin er að því
leyti söguleg, að þetta er
fyrsta myndin, sem leyft hef
ur verið að taka innan vcggja
Ieikhússins.
f%%%W%%W%W%%%l%%%M%W%%%tW
LEKI KOM
AÐ VÉLBÁT
Reykjavík, 26. nóv. GO.
■Mikill leki kom að m.b. Freyju
RE 97 í dag, er hún var að línu-
veiðum út af Garðskaga. Báturinn
v?rð að kalla á hjálp þegar sjór-
inn náði upp á miðjar vélar og dæl
ur voru hættar að starfa.
Tveir bátar, Hamravík og Von-
in II. frá Kéflavík fóru Feryja til
aðstoðar. Hamravíkin varð á und-
an að hinum nauðstadda bát og
Vonin snéri frá,
Freyja er gamall bátur, smíð-
aður árið 1920, en endursmiðaöur
árið 1947. Hann ér 24 tonn að
stærð og eigandi er Ragnar Guð-
mundsson Reykjavík. Á Freyju eru
líklega 5 menn. Feryjumenn munu
liafa komið dælunum í gang og
komizt hjálparlaust til Keflavík-
ur milli kl. átta og níu í kvöld.
Kristmann stefnir
TKor Vilhjálmss i
Reykjavík, 26. nóv. EG.
Kristmann Guðmundsson, rit-
höfundur, hefur stefnt Thor Vil-
hjálmssyni rithöfundi fyrir æru-
meiðandi ununæli í grein, sem
Thor hefur ritað í Birting, I hefti
1963. Kristmann krefst 200.000.oo
króna í skaðabætur.
Blaðið hafði í gærkveldi sam-
band við báða aðila þessarar deilu
og fara ummæli þeirra hér á eft-
ir.
Blaðið ræddi fyrst við Krist-
mann.
Hann kvað það rétt, að harin
hefði stefnt Thor Vilhjálmssyni
fyrir meiðyrði, „einhver þau ljót-
ustu, sem ég hefi séð á prenti",
sagði Kristmann.
Um upphæð skaðabótanna, tvö
hundruð þúsund krónur, sagði
hann: \
— Ja, maður verður að iáta
þetta heita eitthvað, ■— þetta er
jú atvinnurógur. Annars hefúr
þetta dregizt hjá mér, ég ætlaðd
að vera búinn að þessu fyrir löngu
Mér finnst sjálfsagt gð láta hann
borga svolítinn skenjmtanaskatt!
Ég veit, að menn kjafta endalaust
um mig, en þegar það er farið að
koma á prenti, horfir málið óneit-
anlega öðruvísi við.
Ekki mundi skáldið glögglega
hin ærumeiðandi ummæli, en við
athugun umræddrar greinar í
,%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%M
Olíumálið er nú fyrir hæsta-
rétti eins og kunnugt er
Myndin var tekin þar í gær.
Sjá frétt um málið á bak-
síðu. (Mynd: JV).
w%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
Birting virðist málsgrein sem hefst
á þessum orðum ekki ólíkleg. ,-,Það
er óafmáanleg svivdrðing frá hendi
stjórnmálamanna í garð íslenzkrar
menningar, að láta mann eins og
Kristmann hafa hæstu listamanna-
laun. Það jafngildir því að hrækja
í andlitið á hverjum einasta raun-
verulegum listamanni þessa Iands
og spræna yfir alla þjóðina".
Þá sneri blaðið sér til Thors
Vilhjálmssonar, hins aðilans að
þes.u máli, og innti hann álits á
stefnunni.
, — Ég var að frétta þetta núna
í kvöld, sagði Thor Vilhjálmsson.
Það komu tveir ábúðarmiklir menn
til mín með smáblað, með þessari
Framhald á bls. 10
Washington, 26. nóv.
(NTB-Reuter)
I.ögreglan í Washington var í dag
öll kvödd út, er það spurðist að
sést hefði til vopnaðs manns á
húsþaki andspænis dyrum þtim á
Dómsmálaráðuneyti Bandarikj-
anna er Robert Kennedy notar að
jafnaði. Var það skömmu áður en
búist var við ráðherranum til
skriístofu hans. Er lögreglumenn
komu upp á þakið var þar enginn
og var þá strax tekið til við að
leita rækilega í byggingunni
sjálfri. Seinna var tilkynnt, að
upplýst hefði verið að hér Iiefði
verið á ferðinrii verkámaður með
sóp. Atburður þessi hefur samt
leitt til þess að höfð verður
ströng varzla við ráðuneytið.
M*
lllur eftir-
íeikur