Alþýðublaðið - 27.11.1963, Qupperneq 5
Gengistryggð
aukin endurkaup
Reykjavík, 26. nóv. - EG
RÍKISSTJÖRNIN hefur lagt fram
á Alþingi frumvarp til breytinga
á lögum nm SeSlabanka íslands. í
frumvarpi þessu felast tvær meg-
inbreytingar. í fyrsta lagi, að
heimild Seðlabankans til binding-
ar innlánsf jár verði rýmkuð, þann
Ig, að heimilt sé að binda allt að
25% af innistæðufé hverrar inn-
lánsstofnunar. Þessarar heimild-
ar er æskt í þeim tilgangi að auka
Reykjavík, 26. nóv. EG.
Emil Jónsson, sjávarútvegsmála-
ráðherra (A) mælti í dag í efri
deiid fyrir frumvarpi til breytinga
á lögum um mat á matjessíld og
skozkverkaðri síld.
Breytingin sem gert er ráð fyrir
í. frumvarpinu, sagði róðherrann,
er eingöngu sú, að matsgjald verði
hækkað og verði nú 6 krónur á
tunnima í stað 0,25 kr. eins og nú
er.
I greinargerð frumvarpsins seg
ir, að tilkostnaður við siídarmat-
ið hafi stórhækkað á undanförnum
árum, og séu tekjur þe s af mats-
gjaldi og seldri tímavinnu nú ovð-
inn óverulegur hluti af gjöldunum.
Auk almennra hækkana er þess að
geta að saltsíldarverkun er nú- á
íjölmörgúm stöðum, þar sem hún
var áður.óþekkt. Ennfremur segir
í frumvarpdnu, að telja verði eðli-
legt, að matið sé greitt af and-
virði síldarinnar, fremur en ur
ríkissjóði.
endurkaup bankans á afurðavíxl-
um. Hín megin breytingin er, að
gefin verði út gengistryggð verð-
bréf. Tilgangur þeirrar ráðstöfun-
ar er að auka sparif jármyndun inn
anlands og auka traustið á gjald-
miðlinum.
Um þessar tvær breytingar seg-
ir m. a. svo í greinargerð með
frumvarpinu:
Hin meginbreytingin, sem í
greininni felst, er að heimild Se'ðla
bankans til innstæðuskuldbinding
ar hækki úr 10—20%, er nú gilda,
í 25% af heildarinnstæðum inn-
lánsstofnana. Með þessu ákvæði
mundi Seðlabankanum verða kleift
að auka innlánsbindinguna allveru
lega, en það mundi skapa tæki-
færi til bess að auka endurkaup af-
urðavíxla sjávarútvegsins og land
búnaðarins og jafnvel að auka
hlufverk endurkaupanna með því
að taka smám saman upp endur-
kám» afurðavíxla iðnaðarins, t. d.
útflutningsiðnaðar og þess iðnað-
ar. sem enirrar tollverndar nýtur.
Ríkísst.iórnin er þeirrar skoðun-
ar, að í þessnm hluta frumvarps-
ins felist mikilvæg skipulagsbreyt-
iner. er geti orðið til þess, að banka
kerfið í heild geti þ.iónað betur en
veríð hefur því mikilvæga hlut-
verki að siá undirstöðuatvinnuveg
um þjóðarinnar fyrir nauösynlegu
rekstrarfé.
Nú er það jafnframt megin-
sfefna ríkisstiórnarinnar og Seðla-
bankans, að komast hjá nýrri geng
isbreytingu, en útgáfa verðbréfa
með gengisákvaeði er um leið tæki
færi til þess fyrir Seðlabankann
að lýsa trausti sínu á núverandi
gengisskráningu með því að taka
á sig skuldbindingar með gengis-
ákvæði. Verði frumvarp þetta að
lögum, er það ætlun Seðlabank-
ans að hefja útgáfu gengisbréfa,
eins fljótt og aðstæður leyfa.
í 2. grein frumvarpsins er enn
fremur Jcveðið svo á, að eigendur
verðbréfa, sem Seðlabankinn gef-
ur út samkvæmt ákvæði þessarar
greinar, skuli njóta sömu réttinda
og sparifjáreigendur, að því er
varðar skattlagningu bæði til rík-
is og sveitarfélaga. Það er að sjálf
, sögðu bæði nauðsynlegt og rétt-
I látt, að farið verði með það spari-
, fé, sem menn leggja fram í þessu
! formi, á sama hátt og annað spari-
| fé, að því er skattlagningu við
' kemur.
VWWWHWWWMMWMWWMW
Þingfréttir i
stuttu máli
Reykjavík ,26. nóv. EG.
★í dag var afgreitt sem lög frá
Alþingí frumvarp um bráðabirgða
breyting og framlenging nokkurra
laga.
★ Frumvarp um fullnustú nor-
rænna refsidóma kom íil 2. um-
ræðu í neðri deild Alþingis í dag.
Var það samþykkt og því vísað til
3. umræðu með smávægilegri orða
lagsbreytingu, sem allsherjarnefiid
deildarinnar mælti með.
★ Hjörtur Eldjárn Þórarinsson
(F) hefur nú tekjð sæti á Alþingi í
stað Ingvars Gíslasonar (F).
★ Ragnar Jónsson (S) situr nú á
Alþingi í stað Davíðs Ólafssonar
(S), sem verður fjarverandi um
skeið.
Ferðir milli
Eands og Eyja
Reykjavík, 26. nóv. - EG
Töluverðar umræður urðu í neðri
deild Alþingis í dag um ferðir
milli Vestmannaeyja og Iands. —
Tveir þingmenn Framsóknarflokks
ins í Suðurlandskjördæmi, hafa
lagrt fram frusnvarp til laga um
smíði nýs strandferðaskips fyrir
siglingaieiðina Vestmannaeyjar—
Þorlákshöfn. Fór fyrsta umræða
um frumvarpið fram í dag.
Annar flutningsmanna, Ágúst
Þorvaldsson (F) mælti fyrir frum-
varpinu. Sagði hann mikla nauð-
syn bera til þess að koma á föstum
daglegum ferðum milli Þorláks-
hafnar og Eyja. Vestmannaeying-
ar ættu skýlausan rétt á því, að
vera í sem beztum tengslum við
samgöngukerfi landsins, og sam-
göngum þeirra við meginlandið
væri ekki vel borgið fyrr en fastar
daglegar ferðir væru til lands.
Guðlaugur GMasson (S) kvað
þetta mikið áhugamál íbúa Vest-
mannaeyja. En þörf væri á að at-
huga málin nánar, en gert væri ráð
fyrir í þessu frumvarpi. Rakti
hann síðan nokkmm orðum sögu
samgangna milli lands og Eyja, og
benti m. a. á að reynslan hefði
sýnt að Herjólfur væri nú orðinn
of lítill. Skipið þyrfti einnig að
fara til Hornafjarðar. Hefði því
verið lagt til við hlutaðeigandi yf-
irvöld, að skipið yrði eingöngu
látið sigla milli Vestmannaeyja og
Reykjavikur, en Hornfirðingum
bættur skaðinn með því að láta
önnur skip anna flutningaþörfum
þeirra.
Allmiklar umræður urðu um
málið og tóku m. a. til máls auk
fyrrnefndra, Lúðvík Jósefsson (K)
og Eysteinn Jónsson (F). Málinu
var vísað til 2. umræðu og sam-
göngumálanefndar.
WMHMMMMWMWMWIMMMmiWMMMMWMMMMMMWMMMWWWMWiWWWWWWMWWWMMMMMMWMWWIMW
Lífverðirnir ekki
öfundsverðir
Starf lífvarða forseta og ann
arra þjóðhöfðingja er ekki
heiglum hent. Þeirra æðsta boð
orð er að vernda líf húsbónda
síns með eigin lífi.
Oft gerir sá, sem vernda á,
verndurunum æði erfitt fyrir.
Truman forseti var til dæmis
frægur fyrir að hafa oftsinnis
að engu allar varúðarráðstaf-
anir lífvarða sinna. Þegar •
Kennedy var á ferð í New York
fyrr á þessu ári, biðu hans 35
lögreglumenn á bifhjólum,
sem fara áttu fyrir bílalest-
inni, sem flytja átti forsetann
og fylgdariið hans inn í borg-
ina. Þegar Kennedy sá bif-
hjólin sagði hann: *,Ég vil ferð
ast eins og hver annar maður
og stanza þar sem umferðar-
ljós og annað í umferðinni
gefur tilefni til.“ Þetta var að
sjálfsögðu gert, en um leið var
lífi forsetans stofnað í nokkra
hættu Kennedy hafði einnig
orð á sér fyrir að vera ekki
alltof hrifinn af lífvarðahópn-
um í krigum sig.
I
v !
1 Hákólamenntuð
hrausímenni
Þeir, sem hafa það hlut-
verk, að gæta bandaríska for-
setans eru í leyniþjónustunni
og eru starfsmenn bandaríska
fjármálaráðuneytisins. Þeir
eiga einnig að gæta nánust.u
ættingja hans, varaforsetans,
eða þess, sem næstur er forset
anum í valdaröðinni.
Þessir menn eru valdir af
mikilli kostgæfni. Þeir eru yf-
irleitt á aldrinum 24-30 ára,
háskólamenntaðir og hafa gegnt
herþjónustu. Ménn með sér-
kennilegt andlitsfall, eða mjög
háir vexti koma ekki til greína.
Pyrir starf sitt stunda þeir
sérstakt nám og starf, sem tek
ur 2-3 ár. Það er meðal annars
fólgið í því að þeir eru látnir
kynna sér árásir á fræga mcnn
bæði utanlands og innan,
rannsaka allar aðstæðuir, og
gera sér grein fyrir hvaða
hlekkur í öryggiskeðjunni hafi
brostið. Þeim er kennd með-
ferð hvers kyns skotvopna og
þeir eru látnir dvelja á geð-
Veikrahælum til að kynna sér
viðbrögð geðsjúklinga. Að sjálf
sögðu læra þeir judo og rík
áherzla er lögð á, að þeir séu
vel á sig komiíir til líkama og
sálar. Ein meginreglan, sem
þeim er snemma kennd er:
„Horfið ekki á forsetann, hann
fremur ekki sjólfsmorð."
Víðtækar
varúðarráðstaíanir
í Hvíta húsinu eru 40 líf-
verðir, sem mynda eiga tvö-
faldan hring um forsetann.
Þeir í ytri hringnum, gæta
allra stiga og dyía aðrir eru
í grennd við skrifstofu forset-
ans. Mjög víðtækar varnarráð-
stafanir voru gerðar til vernd
ar lífi Kennedys. Á sveitasetri
hans í Virginíu, voru þyrlur
ætíð á sveimi yfir landareign-
inni. Tveir stórir bílar voru
þar ævinlega, : bunir etutt-
bylgju- og örbylgjusenditækj-
um, símum og fjarritum. Líf-
verðirnir höfðu skipanir um
að bana, en ekki særa, þyrftu
þeir að beita skotvopnum sín-
um.
Víðtækar varúðarráðstafan
ir voru gerðar þegar forsetinn
kom til Dallas í Texas. Fimm
þúsund gular rósir voru vand-
lega athugaðar, maturinn, sem
neytt skyldj var rannsakaður,
lögreglan athugaði ýmsa kunna
vandræðamenn og einnig ýmsa
sem lfklegir voru taldir til að
valda vandræðum. En auðvit
að var ekki hægt að setja
mann í hvert hús, í hvern
glugga meðfram hinni tæplega
tíu kílómetra löngu leið sem
forsetinn ók í borginni.
Mjchael Reilly, sem eitt
sinn var yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar sagði einu
sinni." Ég held, að forsetinn sé
í mestri hættu, þegar hann er
í bílalest, seip ekur hægt um
stræti stórborgar.“ Reilly
reyndist hafa rétt fyrir sér
Hjón með tvö börn
vantar tilfinnan-
lega íbúð
2—3 eða 4. herbergja. Ábyrgjr
umst skilvísa mánaðarlegíi-
greiðslu. Hringið í síma 18752.1
WMWMMMMMMWMMMMMMMWMWMMMWWMMMMMWMMÍWMMMMMMMWMMMMWMMWMMMMWMWMMWMMMM)
Laugav. 76 sími 15425
Amerísku nylon
úlpurnar komnar
aftur
Laugav. 76 sími 15425
ALÞVÐUBLAÐIÐ — 27. nóv. 1963 ’g