Alþýðublaðið - 08.12.1963, Qupperneq 9
lltltlHW
IIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIUIIIIIX
lllllllllllll■l■lllllllllllllllll■IHI■■■■l•ll•UUUI•UII•••lllltllllllllllllllllllllllllUIII■lllll■llllltlllllllll■lll■l■U■llll■IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMII■
verið að sigla inn á Reykjavík
úrhöfn og hafa þetta fyrir aug
úm, í stað þeirrar hakkavélar-
samstæðu sem þar er nú- Hún
er ófögur sjón.
En skyldi annars vera of
seint að breyta þeim áform-
um, sem gerð hafa verið um
eyna, ef þau eru þá nokkur
Hvernig væri fyrir rétta aðila
að athuga nú málið gaumgæfi-
lega?
í framtíðinni hlýtur að
verða óhjákvæmilegt að at-
hafnasvæðið færist inn með
sundum og mætti einhverjum
segja að það yrði inni í vogum
þegar fram líða stundir. Að
minnsta kosti er ekki fráleitt
að þenkja á þann veg. Athafna
svæðri Örfirisey skapar aukið
umferðaröngþveiti í borginni
og þar að auki er staðurinn
ekki ýkja stór þegar allt kemur
til alls og. þess vegna óhægt
um öll vik í þá átt.
Nú þegar er risin á Gufu-
nesi, sú verksmiðja, sem vart
verður þaðan aftur tekin. Og
þrátt fyrir lögboðið héettusvæði
umhverfis hana, rúmar nesið
fleiri, þó ekki sé það stórt-
Það ætti ekki að vera fráleitt
að höfn framtíðarinnar yrði m.
a. í Grafarvogi. Vogsbotninn
mún vera úr gljúpu efni sem
þar af leiðandi er auðvelt að
fjarlægja unz það dýpi er feng
ið sem nægir stórskipum til
siglinga án kviðristuhættu af
hans völdum.
En nú mundi máske ein-
hver spyrja: Er nokkuð betra að
eyðileggja Grafarvoginn en Ör
firiseyna?
Svarið er þetta: Óhjákvæmi-
lega færist athafnasvæði Reykja
víkur út, um leið og hún stækk
ar. Óhjákvæmilega fylgir hafn
arborgin ströndum.
Örfirisey rúmar takmarkað-
an 'hluta verksmiðja. En máske
verði úr því bætt með uppfyll
ingu á uppfyllingu ofan, og þá
er þess skemmst að minnast að
stutt er út í Engey.
Ekki er ótrúlegt að einhverj
ir eigi ennþá þann draum að
geta gengið út í Örfirisey á
góðviðrisdögum eða kvöldum
og notið þeirrar blíðu sem
liún hefur alltaf sýnt því fólki
sem nennt hefur að heim-
sækja hana. Vonandi er að
Reykvíkingar láti ekki eyði-
leggja þennan griðastað sinn,
heldur sýni honum þann sóma
sem.hann á skilinn, gefi honum
gott og fagurt útlit. Og þegar
til kastanna kemur ætti að vera
ástæða til að gefa ungum og
efnilegum arkitektum okkar
tækifæri til að spreyta sig á
framtíðarskipulagi hans. Örfir
isey á að vera til fegurðar og
yrjdtsauka öllum þeim, sem
gera sér ferð til höfuðborgar
íslands, hvort þeir koma loft
leiðis, landleiðis eða sjóleiðis-
Og síðast en ekki sízt á hún
að vera borgarbúum griðastað
ur og tilbreyting frá erli og
önnum hversdagsins.
■ llltHIMIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIUIIIIUIIIIIlUllÍlllllHlllllllHIIIUIII'^*
Barna og unglingabækur
ANNA BETAOGFRIÐRIK
er ný bók eftir norsku skáldkonuna Evi Bögenæs, höfuiul
bókarinnar „Jóladansleikurinn", sem kom út sl. haust og
seldist upp á skömmum tíma. Þessi bók er um heilbrigt æsku-
fólk. Fyrir stúlkur 13—16 ára. Kostar kr. 95,00.
FLUGFREYJUR
er sjálfstæð bók um hið tilbreytingaríka starf flugfreyjunnar.
Elsa flugfreyja lifir og hrærist í starfi sínu. Hún er ýmist í
London, París New York eða kannski á leið til Indlands. Bók-
in er ætluð stúlkum 12—16 ára. — Kostar kr. 95,00.
SKÓLASYSTUR
er eftir þýzku skáidkonuna Margarethe Haller. Barnabækur
hennar hafa selzt í milljónum eintaka erlendis. Þetta er sjálf-
stæð bók. Frú Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. Bókin er ætl-
uð stúlkum á aldrinum 10—13 ára. — Kostar kr. 75,00.
VIÐ SKULUM HALDA Á SKAGA
eftir Gunnar M. Magnúss er framhald bókarinnar „Börnin frá
Víðigérði". Nú er Stjáni, Geir og Víðigerðisfólkið komið til
Ameríku og strákarnir komast í margvísleg ævintýri. Fyrir
drengi 10—13 ára. — Kostar kr. 85,00.
VINSTRI ÚTHERJI
er knattspymusaga. Flestir drengir hafa einhvern tíma iðkað
knattspyrnu. Þetta er saga um drengi, sem stunda knatt-
spyrnu, um félagsskap þeirra og ævintýri. Freysteinn Gunnars-
son þýddi. Fyrir drengi 10—14 ára. — Kr. 85.00.
RAUÐHETTA, MJALLHVÍT 0G DVERGARNIR SJÖ,
STÍGVÉLAKÖTTURINN, og ÖSKUBUSKA.
Allt eru þetta góð og gild ævintýri. Bækurnar eru í stóru broti,
prentaðar í mörgum litum. Bækur fyrir yngstu lesendurna.
— Hver bók kr. 35,00.
BÖRNIN í ENGIDAL
er ný og sjálfstæð bók eftir Jóhönnu Spyri, höfund HEIÐU-
bókanna, sem Setberg hefur gefið út á undanförnum árum, ent
fáar barna- og unglingabækur hafa selzt jafnmikið. — BÖRN-
IN í ENGIDAL er falleg bók að efni eins og aðrar bækur
Jóhönnu Spyri. Bók fyrir stúlkur og drengi. — Kostar kr.
85,00.
E R N A
er eftir Margarethe Haller, höfund bókanna „Fríða fjörkálf-
ur“, „Dísa Dóra“, „Helga og vinkonur hennar“ og „Skólasyst-
ur.“ Þessi nýja bók, Erna er skólasaga um heilbrigðar og
tápmiklar stúlkur. Þýðinguna gerði frú Guðrún Guðmunds-
dóttir. Bókin er tilvalin fyrir stúlkur á aldrinum 9—12 ára.
— Kr. 75,00.
AMMA SEGÐU MÉR SÖGU
er barnabók með stuttum sögum, sem Vilbergur Júlíusson
skólastjóri hefur valið. Sögurnar í bókinni eru alls 13 og fjöl-
margar teikningar prýða sögurnar. Þetta er kjörin bók fyr-
ir börn, sem eru að byrja að lesa, — sögurnar við þeirra hæfi.
Bókin er fyrir börn 6—10 ára. — Kostar kr. 68,00.
LITLI REYKUR
er saga um hesta og börn, sem Vilbergur Júlíusson skólastjóri
hefur þýtt og endursagt. LITLI REYKUR er falleg bók bæði
að efni og útliti. Fjölmargar fallegar myndir af hestum og
börnum eru í bókinni ásamt litprentaðri hlifðakápu. Þetta er
bók fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 8 — 12 ára.
Bókin kostar kr. 55,00.
Ennfremur eru nýútkomnar tvær bækur um Grím grallara,
þær heita
ÁFRAM GRÍMUR GRALLARi (nr. 3)
og GRÍMUR 0 G SMYGLARARNIR (nr. 4).
Margar teikningar eru í þessum bókum, sem eru fjörlega
ritaðar. — Þessar bækur um Grím grallara eu ætlaðar drengj-
um á aldrinum 9—12 ára. — Hvor bók kostar kr. 78,00.
SETBERG
FREYJUGÖTU 14. REYKJAVÍK. PÓSTHÓLF 619. Sími 17667.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 8. des. 1963 <)
■ IIIIIIUIIUIIUIUUIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIII.