Verslunarblað Íslands - 01.05.1908, Page 1

Verslunarblað Íslands - 01.05.1908, Page 1
^ I 8 L A N D 8 1. BLAÐ MAÍ 1008. Háttvirtu lesendur! I. ÁRG. Blað þetta er hér birtist sjónum yðar, á að vera óháð málgagn íslenzkrar verzlunar. Ætlun okkar með útgáfu blaðsins er sú, að gefa verzlunarmönnum kost á að ræða áhugamál sín í blaði, sem einvörðungu mun gera sér far um að styðja alt það, er getur orðið hinni íslenzku verzlun til gagns. Við væntum að hin íslenzka verzlunarstétt taki þessari viðleitni vel, og sömuleiðis vonumst við eftir að allir, hverri stétt sem þeir tilheyra, sem unna þessu landi og þjóð, og sem hljóta að viðurkenna að góð og hagkvæm verzlun bæði innanlands og utan, er eitt af helstu lífsskilyrðum jafnt þessarar okkar litlu þjóðar, sem hinna stærri þjóðanna. íslenzkir kaupmenn og verzlunarmenn! þið hljótið að sjá og viðurkenna að íslenzka verzlunin er eigi í því lagi, sem hún þyrfti og ætti að vera, en hverj- um er málið skyldara en ykkur sjálfum? Engum ætti að vera annara um að bæta úr ýmsum stóragnúum á viðskiftalííi þjóðarinnar bæði innanlands og utan, en ein- niitt kaupmönnum og verzlunarmönnum, og við vitum ofurvel að margir, já fjölda margir íslenzkir kanpmennn hafa sýnt áhuga í því, að efla og bæta íslenzku verzlun- ina, en það þurfa að vera allir, bæði kaupmenn og verzlunarmenn þuría að leggj- ast á eitt til þess að efla og bæta verzlunarlíf landsins, og umfram allt leggjast á eitt til þess að þungamiðja verzlunarinnar verði í landinu sjálfu, þá og ekki fyr getum vér vonast eftir hagkvæmri og góðri innanlands verzlun. Yið efumst ekki um það, að allir góðir menn vilji styrkja okkur í þeirri viðleitni. Virðingarfylst Útgefendurnir.

x

Verslunarblað Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunarblað Íslands
https://timarit.is/publication/217

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.